Morgunblaðið - 16.05.2011, Síða 5
ÍÞRÓTTIR 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. MAÍ 2011
1:0 21. Jóhann tók hornspyrnufrá vinstri og sendi boltann
inn í miðjan vítateiginn þar sem Þór-
ir Hannesson stökk hæst allra og
skallaði boltann í netið.
STÖNG 36. Jóhann Þór-hallsson var
með boltann úti við vinstra vítateigs-
hornið og átti fast skot sem small í
fjærstönginni og fór þaðan aftur út á
völlinn. Hefði orðið stórglæsilegt
mark.
STÖNG 58. Jón VilhelmÁkason var ná-
lægt því að jafna metin fyrir Vals-
menn þegar hann náði skoti rétt ut-
an vítateigs en boltinn fór í vinstri
stöngina og þaðan út. Guðjón Pétur
fylgdi á eftir og skoraði en markið
var dæmt af vegna rangstöðu. Vals-
menn höfðu skorað annað mark sem
einnig var dæmt af vegna rangstöðu.
2:0 69. Jóhann átti þrumuskotfrá hægra vítateigshorn-
inu sem Haraldur varði en Albert
Brynjar Ingason var vel staðsettur,
náði frákastinu og skoraði af stuttu
færi.
2:1 90. Guðjón Pétur tók auka-spyrnu af vinstri kantinum
og Jónas Tór Næs stökk hæst allra,
og náði að skalla boltann efst í
hægra markhornið.
I Gul spjöld: Þórir (Val) 75.(brot), Ásgeir Börkur (Fylki)
83. (brot).
I Rauð spjöld:Engin.
MMM
Enginn
MM
Enginn
M
Þórir Hannesson (Fylki)
Kristján Valdimarsson (Fylki)
Valur Fannar Gíslason (Fylki)
Tómas J. Þorsteinsson (Fylki)
Gylfi Einarsson (Fylki)
Andrés Már Jóhannesson (Fylki)
Jóhann Þórhallsson (Fylki)
Albert Brynjar Ingason (Fylki)
Jónas Tór Næs (Val)
Jón Vilhelm Ákason (Val)
Albert Brynjar Ingason hefur nú
skorað fjórum sinnum í leikjum
Fylkis og Vals í efstu deild. Þrisvar
fyrir Fylki gegn Val og einu sinni
fyrir Val gegn Fylki, en Albert lék
með Valsmönnum 2008.
Baldur
Bett gat ekki
leikið með
Fylki í gær
vegna
meiðsla en
hann er með
sprungu í rif-
beini og óvíst
hvenær hann
getur leikið
að nýju að
sögn Ólafs
Þórðarsonar þjálfara Fylkismanna.
Á miðjunni hjá Fylki í stað Bald-
urs Bett var Ásgeir Börkur Ás-
geirsson sem var að leika sinn fyrsta
leik á þessu leiktímabili. Ástæðan er
sú að Ásgeir Börkur var dæmdur í
þriggja leikja bann í lok síðasta
keppnistímabils og gat ekki tekið
það bann út
fyrr en nú í
fyrstu leikj-
unum í vor.
Haukur
Páll Sigurðs-
son gat ekki
leikið með Val
vegna meiðsla
sem hann varð
fyrir í leik
gegn Grinda-
vík í síðustu
viku þar sem hann varð fyrir afar
harkalegri tæklingu. Óvíst er ná-
kvæmlega hvers eðlis meiðslin eru
en það kemur í ljós í vikunni að sögn
Kristjáns Guðmundssonar þjálfara
Vals. Haukur Páll var engu að síður
á meðal varamanna hjá Val en kom
eins og áður segir ekkert við sögu.
Á mbl.is er að finna myndbands-
viðtöl við Andrés Má Jóhannesson
leikmann Fylkis og Sigurbjörn
Hreiðarsson leikmann Vals.
Þetta gerðist á
Fylkisvelli
Haukur Páll
Sigurðsson
Baldur
Bett
Morgunblaðið/Ernir
myndinni, verður fyrir því óláni að setja boltann í eigið net. Hörður Árnson, sem felur sig á bakvið stöngin, átti góðan sprett á vinstri vængnum og sendinguna fyrir
r Fram sem horfir á eftir boltanum í markið, þurfti fimm sinnum að hirða hann úr netinu, þar af fjórum sinnum á 25 mínútna kafla í seinni hálfleik.
Í ÁRBÆNUM
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Það var engin Evróvisjónþynnka í
leikmönnum Fylkis þegar þeir sigr-
uðu Valsmenn í Árbænum í gær-
kvöldi, 2:1, og komu sér í hóp efstu
liða Pepsideildarinnar í knatt-
spyrnu. Fylkismenn komust 2:0 yfir
í leiknum og sigurinn var aldrei í
mikilli hættu þó að Valsmenn næðu
að minnka muninn í lokin. Fylkir
hefur þar með náð í sjö stig úr síð-
ustu þremur leikjum eftir tapið
fræga gegn Grindavík í fyrstu um-
ferð. Valsmenn hafa hins vegar nú
tapað tveimur leikjum í röð eftir
sigra í fyrstu tveimur umferðunum.
Fylkisliðið hefur átt misjöfnu
gengi að fagna undir stjórn Ólafs
Þórðarsonar síðustu ár en virðist
nú koma vel undan vetri. Af leikn-
um í gær að dæma spila reynslu-
miklir leikmenn á borð við Gylfa
Einarsson og Jóhann Þórhallsson
þar stórt hlutverk. Gylfi hefur
mikla yfirvegun á miðjunni og stýr-
ir spilinu vel með léttleikandi leik-
menn eins og Jóhann, Andrés Má
Jóhannesson og Ingimund Níels
Óskarsson í kringum sig svo Fylk-
isliðið getur boðið upp á flotta spila-
kafla. Þeir mættu að ósekju vera
lengri. Gylfi var svo með vinnuhest-
inn Ásgeir Börk Ásgeirsson með
sér á miðjunni sem mun eflaust
koma enn betur út eftir því sem Ás-
geir Börkur kemst í betra leikform,
en þetta var hans fyrsti leikur eftir
þriggja leikja bann. Fremstur er
svo Albert Brynjar Ingason sem er
feikilega góður framherji og nýtti
markanef sitt vel í gær.
Valsmenn héldu áfram þar sem
frá var horfið í tapinu gegn ÍBV á
miðvikudag og sköpuðu sér vart
færi í fyrri hálfleiknum í gær. Held-
ur rættist úr í seinni hálfleiknum en
leikmenn eins og Hörður Sveinsson
og Christian Mouritsen verða að
sýna meira því sóknarleikurinn var
bitlaus. Ég hélt hreinlega að Fjalar
Þorgeirsson væri að fara að halda
hreinu annan leikinn í röð þegar
mark Valsara kom á 90. mínútu.
Fjalar hefur engu að síður aðeins
fengið á sig tvö mörk í þremur
leikjum eftir að Bjarni Þórður Hall-
dórsson fékk á sig þrjú í fyrsta
leiknum. Fjalar var með sterka
vörn fyrir framan sig í gær og
þurfti nánast aldrei að taka á hon-
um stóra sínum.
Fylkismenn hafa verið í ein-
hverjum vandræðum með það að
innbyrða sigur í leikjum sem þeir
þó ná forystunni í og það læddist að
manni sá grunur í upphafi seinni
hálfleiks að sú yrði raunin í gær.
Valsmenn náðu þá stjórn á leiknum
og sóttu nokkuð en svo var eins og
heimamenn áttuðu sig á því að eitt
mark dugar sjaldan til sigurs. Þeir
sýndu í gær hvernig á að gera út
um leiki – leyfðu andstæðingnum
aldrei að jafna metin, í fyrsta sinn á
leiktíðinni – og það er list sem
Fylkismenn ættu að tileinka sér.
Mikið var rætt um titilvonir Vals-
manna í byrjun móts í ljósi frábærs
árangurs í vormótunum. Sigrar í
fyrstu tveimur leikjum gáfu góð
fyrirheit en prófraun Kristjáns
Guðmundssonar og hans sveina,
sem svo margir komu nýir á Hlíð-
arenda í vetur, snýst um að sýna
stöðugleika í gegnum allt sumarið.
Valsmenn voru á toppi deildarinnar
ásamt Fram eftir 8 umferðir í fyrra
á tímabili sem þegar upp var staðið
var talið gríðarlegt vonbrigða-
tímabil. Eigi slík vonbrigði ekki að
endurtaka sig þarf liðið að spila
mun betur en í gær og sýna að það
búi yfir vopnabúri til að bregðast
við skakkaföllum.
List sem Fylkismenn
ættu að tileinka sér
Fylkir hélt loksins forystu út leikinn Bitlaus sóknarleikur Valsmanna
Fylkisvöllur, Pepsi-deild karla, 4.
umferð sunnudaginn 15. maí 2011.
Skilyrði: Nánast logn og hálf-
skýjað. Völlurinn flekkóttur og
slæmur.
Skot: Fylkir 12 (5) – Valur 9 (5).
Horn: Fylkir 7 – Valur 5.
Lið Fylkis: (4-3-3) Mark: Fjalar
Þorgeirsson. Vörn: Þórir Hann-
esson, Kristján Valdimarsson, Val-
ur Fannar Gíslason, Tómas Þor-
steinsson. Miðja: Ásgeir Börkur
Ásgeirsson, Gylfi Einarsson, Andr-
és Már Jóhannesson (Davíð Þór
Ásbjörnsson 88.). Sókn: Ingi-
mundur Níels Óskarsson, Albert B.
Ingason, Jóhann Þórhallsson
(Andri Már Hermannsson 78.).
Lið Vals: (4-3-3) Mark: Haraldur
Björnsson. Vörn: Jónas Þór Næs,
Halldór Kristinn Halldórsson, Atli
Sveinn Þórarinsson, Pól Jóhannus
Justinusson (Andri Fannar Stef-
ánsson 56.). Miðja: Sigurbjörn
Hreiðarsson, Christian Mouritsen
(Rúnar Már Sigurjónsson 46.),
Guðjón Pétur Lýðsson. Sókn: Jón
Vilhelm Ákason (Þórir Guðjónsson
73.), Hörður Sveinsson, Matthías
Guðmundsson.
Dómari: Örvar Sær Gíslason – 8.
Áhorfendur: 1.463.
Fylkir – Valur 2:1
rg