Morgunblaðið - 16.05.2011, Page 7
ÍÞRÓTTIR 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. MAÍ 2011
Kolbeinn Sigþórsson og Jóhann Berg Guð-
mundsson leika í Evrópudeildinni í knatt-
spyrnu á næstu leiktíð fari svo að þeir haldi
áfram með AZ Alkmaar eftir sumarið en liðið
endaði í 4. sæti í hollensku úrvalsdeildinni sem
lauk í gær. AZ tapaði 5:1 í lokaleiknum en hélt
þó 4. sætinu þar sem næsta lið, Groningen,
gerði markalaust jafntefli við PSV.
Kolbeinn lék allan leikinn en Jóhann var á
varamannabekknum. Með því að ná 4. sætinu
komst AZ beint í forkeppni Evrópudeild-
arinnar og slapp við að fara í umspil um sæti
þar eins og liðin í 5.-8. sæti þurfa að gera. Það
umspil stendur yfir fram til mánaðamóta sem
hefði ekki verið gott fyrir þá félaga sem eru í
U21-landsliði Íslands. Kol-
beinn endaði í 6.-8. sæti yfir
markahæstu leikmenn
deildarinnar með 15 mörk
en markahæstur varð Belg-
inn Björn Vleminckx hjá
NEC Nijmegen með 23
mörk.
Ajax varð hollenskur
meistari í 30. sinn en þetta
sögufræga félag hafði ekki
orðið deildarmeistari síðan
árið 2004. Liðið vann 3:1 sigur á Twente í gær
en Twente hefði dugað jafntefli til að landa titl-
inum annað árið í röð. sindris@mbl.is
Landsliðsmenn sluppu við umspil
Kolbeinn
Sigþórsson
Tottenham kom sér í góða stöðu fyrir loka-
umferðina í ensku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu í gær með því að sigra Liverpool á
Anfield í fyrsta skipti í deildarleik frá árinu
1993, 2:0. Raphael van der Vaart kom Totten-
ham yfir með glæsimarki snemma leiks og
Luka Modric bætti við öðru marki úr víta-
spyrnu í seinni hálfleiknum.
Sigurinn þýðir að Tottenham komst upp
fyrir Liverpool og í 5. sæti deildarinnar, en
það sæti gefur keppnisrétt í forkeppni Evr-
ópudeildarinnar og er því afar dýrmætt. Einu
stigi munar á liðunum fyrir lokaumferðina og
á Tottenham heimaleik gegn Birmingham þá,
á meðan Liverpool sækir Aston Villa heim.
Liverpool átti erfitt upp-
dráttar lengi framan af
leiktíðinni en náði sér vel á
strik eftir að Kenny Dalgl-
ish tók við stjórnartaum-
unum um áramótin. Liðið
át upp forskot Tottenham
og hafði unnið þrjá stóra
sigra í röð þegar kom að
leiknum í gær, á meðan
Tottenham hafði ekki unn-
ið sigur í fimm leikjum í
röð. Úrslitin í gær komu því nokkuð á óvart
og nú þarf Liverpool að treysta á Birm-
ingham í lokaumferðinni. sindris@mbl.is
Evrópudeildin blasir við Tottenham
Raphael van
der Vaart
ENGLAND
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Við höfum lagt grunninn með þess-
um sigri og með því að komast í for-
keppni Meistaradeildar Evrópu.
Þetta er grunnurinn og núna getum
við reist húsið,“ sagði Vincent
Kompany, einn besti leikmaður
ensku úrvalsdeildarinnar í knatt-
spyrnu á þessari leiktíð, eftir að lið
hans Manchester City gat fagnað
langþráðum titli með sigri á Stoke í
úrslitaleik ensku bikarkeppninnar.
Það er óhætt að taka undir orð
Kompany. Með þeim tveimur risa-
skrefum sem City tók á þessari leik-
tíð, það er að segja að landa fyrsta
alvöru titlinum í 35 ár og komast í
Meistaradeildina, hefur liðið af al-
vöru sannað sig sem eitt það besta á
Englandi. Forríkir eigendur félags-
ins sem eignuðust það í ágúst 2008
spenntu bogann strax hátt en það er
með þessum áföngum sem brautin
hefur verið rudd fyrir glæsta tíma
hjá félaginu. Bestu leikmenn heims
ættu nú ekki að þurfa að óttast að fá
ekki að keppa um bikara kjósi þeir
að klæðast búningi Manhcester City.
Að öðrum ólöstuðum má segja að
miðjumaðurinn Yaya Touré hafi átt
hvað stærstan þátt í því að City varð
bikarmeistari um helgina. Touré
skoraði sigurmarkið gegn Man-
chester United í undanúrslitum bik-
arsins og bætti um betur með því að
skora einnig eina markið í sigrinum
á Stoke á laugardag.
Þessi 28 ára gamli Fílabeins-
strendingur ákvað að söðla um í
fyrrasumar og halda til Manchester
frá Barcelona þar sem hann hafði til-
heyrt einu besta liði knattspyrnu-
sögunnar. Touré varð þar með
launahæsti leikmaður úrvalsdeild-
arinnar og því mikil pressa á honum
að standa sig vel strax á sinni fyrstu
leiktíð. Hann stóðst þá pressu al-
gjörlega. Eftir að hafa sinnt hlut-
verki varnarsinnaða miðjumannsins
hjá Barcelona hefur hann leikið
framar á vellinum fyrir stjórann Ro-
berto Mancini og skilað því hlutverki
af stakri prýði. Enginn horfir í
launakostnaðinn við Touré eftir
mörkin mikilvægu.
Ástæðan fyrir kaupunum
„Þetta er ástæðan fyrir því að við
keyptum hann. Hann er stórkostleg-
ur leikmaður. Hann skoraði í undan-
úrslitunum og úrslitunum, og hefur
verið afar góður alla leiktíðina,“
sagði Mancini um Touré.
Sigurinn um helgina var ekki bara
mikill sigur fyrir City heldur einnig
Ítalann Mancini sem hefur oft mátt
sæta gagnrýni í vetur enda krafan
um árangur rík þegar stórstjörnur
hrannast inn í félagið. Mancini hefur
nú svarað gagnrýnisröddunum með
árangri sem er í góðum takti við feril
þessa mikla sigurvegara, og það á
hans fyrstu heilu leiktíð með félagið.
Mancini er hins vegar strax farinn
að hugsa lengra.
„Þetta er bara byrjunin“
„Ég er hæstánægður fyrir hönd
stuðningsmanna liðsins. Eftir svona
mörg mögur ár eiga þeir skilið að fá
þennan titil. Við réðum ekki beint
lögum og lofum í leiknum, og þurfum
að bæta okkur áfram, en við erum
mjög glaðir. Við skráðum stuttan
kafla í sögu Manchester City, en
þetta er bara byrjunin,“ sagði Manc-
ini.
Stoke reyndi allt hvað það gat að
jafna metin á laugardaginn en það
dugði ekki til. Tímabilið hefur engu
að síður verið gott og gjöfult fyrir
Tony Pulis og hans menn. Þeir leika
í forkeppni Evrópudeildarinnar á
næstu leiktíð þrátt fyrir tapið, og
geta þakkað það árangri Manchest-
er City í úrvalsdeildinni.
Nú er hægt að reisa hús
Manchester City bikarmeistari og í Meistaradeild á fyrstu heilu leiktíð Mancini
Fyrsti alvöru titill félagsins í 35 ár Yaya Touré reyndist auranna virði
Reuters
Fögnuður Leikmenn Manchester City nutu þess að fagna bikarmeistaratitlinum um stund en ekki lengi því liðið
mætir Stoke að nýju í mikilvægum leik strax annað kvöld. Leikmenn voru því í áfengisbanni á laugardagskvöld.
Titlasafnið
» Man. City hefur nú orðið
enskur bikarmeistari fimm
sinnum. Síðasti bikarmeist-
aratitillinn á undan þeim um
helgina kom árið 1969.
» City hefur tvívegis orðið
Englandsmeistari og einu sinni
unnið Evrópukeppni bikarhafa,
árið 1970. Þá hefur liðið tvisvar
unnið deildabikarinn, síðast ár-
ið 1976.
Tvö mörk fráfyrrum sam-
herja Gylfa Þórs
Sigurðssonar hjá
Hoffenheim,
Demba Ba,
dugðu West Ham
ekki til sigurs á
Wigan í ensku úr-
valsdeildinni í
gær. Hamrarnir komust í 2:0 en
Wigan tryggði sér 3:2 sigur með
mark Charles N’Zogbia í uppbót-
artíma. Þar með er West Ham fallið
úr úrvalsdeildinni þó enn sé ein um-
ferð eftir. Wigan á hins vegar enn
von um að halda sæti sínu í deildinni
og ljóst að fallbaráttan verður rosa-
leg um næstu helgi. Eitt stig skilur á
milli Blackburn í 15. sæti og Wigan í
19. og næstneðsta sætinu.
Arsenal tapaði sínum fjórðaheimaleik á leiktíðinni í gær
þegar liðið lá fyrir Aston Villa, 2:1.
Arsenal á því á hættu að missa 3.
sætið í hendur Manchester City sem
á leik til góða fyrir lokaumferðina
um næstu helgi og er aðeins tveimur
stigum á eftir
Arsenal. Robin
van Persie náði
að skora sitt 17.
mark í deildinni á
þessu ári, sem
eru jafnmörg
mörk og leik-
menn Blackburn
hafa skorað sam-
tals! Villa hafði að
litlu að keppa í leiknum en er í 13.
sæti deildarinnar. Darren Bent
skoraði bæði mörk liðsins.
Rangers varð skoskur meistari íknattspyrnu í gær með því að
sigra Kilmarnock 5:1 í lokaumferð-
inni. Liðið varð einu stigi á undan
erkifjendunum í Celtic. Í þriðja sæt-
inu urðu Eggert Gunnþór Jónsson
og félagar í Hearts þrátt fyrir 2:1
tap gegn Dundee í lokaumferðinni.
David Gill framkvæmdastjóriManchester United sagði frá
því í viðtali við út-
varpsstöð BBC
um helgina að
það kæmi ekki á
óvart ef Paul
Scholes legði
skóna á hilluna í
sumar. Scholes
hefur verið mátt-
arstólpi í United-
liðinu í áraraðir
og fagnað tíu Englandsmeistara-
titlum en er orðinn 36 ára gamall. Í
sama viðtali sagði Gill að búið væri
að ákveða hvaða markvörður myndi
leysa Edwin van der Sar af hólmi
þegar hann hættir í sumar.
Chelsea gerði aðeins jafntefli viðNewcastle í næstsíðustu um-
ferðinni í ensku úrvalsdeildinni í
gær, 2:2. Newcastle jafnaði metin í
uppbótartíma. Chelsea á því enn á
hættu að missa Man. City upp fyrir
sig þó það sé í raun aðeins töl-
fræðilegur möguleiki.
Fólk sport@mbl.is
„Í þetta skiptið má þakka liðinu öllu
fyrir titilinn. Ef maður spyrði tíu
manns hver væri leikmaður ársins
hjá okkur, þá fengi maður líklega
tíu ólík svör. Það má nefna Nani
með mörkin sín og stoðsendingar,
Dimitar Berbatov með mörkin sín,
Javier Hernandez hefur verið
magnaður á sinni fyrstu leiktíð,
Nemanja Vidic stórkostlegur eins
og alltaf, Antonio Valencia kom inn
af krafti á mikilvægum tíma, og
Edwin van der Sar hefur verið stöð-
ugur alla leiktíð-
ina. Svona held-
ur listinn áfram
lengi, en það er
ekki hægt að
segja að einhver
einn standi upp
úr í þetta sinn,“
sagði Walesverj-
inn Ryan Giggs
eftir að hann
hafði fagnað sín-
um 12. Englandsmeistaratitli á ferl-
inum með Manchester United, og
19. Englandsmeistaratitlinum frá
upphafi. United hafði nánast tryggt
sér titilinn um síðustu helgi með
sigri á Chelsea, en gerði það svo
endanlega með 1:1 jafntefli við
Blackburn þar sem Wayne Rooney
jafnaði metin úr vítaspyrnu.
United náði þar með að komast
fram úr Liverpool og á topp listans
yfir þau lið sem flesta Englands-
meistaratitla hafa unnið. Liverpool
hefur þar með kannski verið „hrint
af stallinum“ eins og Alex Ferguson
á að hafa sagst ætla að gera. Giggs
vildi þó ekki meina að titillinn væri
sá kærkomnasti á ferlinum.
„Mér finnst enn að fyrsti titilinn,
árið 1993, hafi meira gildi. Þá hafði
biðin verið orðin 26 ár sem er allt of
langur tími fyrir félag eins og Unit-
ed. Eftir að hafa unnið þann titil
var eins og gríðarlegri pressu hefði
verið létt af en mig grunaði samt
ekki það sem fylgdi í kjölfarið,“
sagði Giggs. sindris@mbl.is
Fyrsti titillinn hafði enn meira gildi
Ryan Giggs fagnaði sínum 12. Englandsmeistaratitli Liverpool „hrint af stallinum“
Ryan
Giggs