Morgunblaðið - 21.05.2011, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2011
VIÐTAL
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Hún kemur brosandi til dyra og býð-
ur mig velkomna, Guðríður Guð-
brandsdóttir, sem næstkomandi
mánudag fagnar 105 ára afmæli
sínu. Guðríður býr í þjónustuíbúð
fyrir aldraða í Furugerði 1 en þar
hefur hún búið frá því byggingin var
reist árið 1979 og borðar hún hádeg-
ismat og sækir það félagsstarf sem
boðið er upp á, m.a. leikfimi tvisvar í
viku.
Guðríður fer allra sinna ferða fót-
gangandi og örstutt er síðan hún fór
að ganga við grind, þangað til dugði
henni stafur til að styðja sig við.
Dótturdóttir hennar, Júlíana, er
ömmu sinni innan handar við að taka
á móti blaðamanni og ljósmyndara,
enda tekur Guðríður það sér-
staklega fram hvað hún er lánsöm að
eiga mörg dásamleg barnabörn.
Alin upp af ömmu
Guðríður fæddist á Spágilsstöðum
í Laxárdal í Dalasýslu, 23. maí 1906,
sjötta af ellefu systkinum. Þar var
mikill búskapur, kindur, kýr og hest-
ar og stúlkan ung þegar hún var lát-
in hjálpa til. Margt var af fullorðnu
fólki á bænum en það var amma
Guðríðar og nafna sem ól hana upp.
„Amma mín var þarna hjá for-
eldrum mínum og var látin taka við
mér þegar ég var skírð. Hún var
sjálfrar sín eins og kallað var, hafði
allt sitt sjálf og réð sér sjálf, og hafði
mig til yfirráða. Hún var 74 ára þeg-
ar ég fæddist en mjög brött. Hún ól
mig upp og hugsaði um mig þegar ég
var krakki og seinna mátti enginn
hugsa um hana nema ég. Þá sagðist
hún vera búin að leggja það inn hjá
mér,“ segir Guðríður og hlær dátt.
Þegar amma Guðríðar lést fór
stúlkan í fyrsta sinn að heiman rúm-
lega tvítug og dvaldi aðra hverja
viku á næsta býli sem hét Hjarð-
arholt. Þar fékk hún þann starfa að
búa til leðurskó á vinnumennina,
sem var erfitt starf en fór henni vel
úr hendi. Stuttu seinna var hún ráð-
in vinnukona í Brautarholti en þar
kynntist hún manni sínum, Þorsteini
Jóhannssyni, og fluttust þau fljót-
lega til Búðardals og byggðu sér þar
hús. Í Búðardal starfaði Þorsteinn
sem skósmiður en réð sig síðan til
kaupfélagsins þegar gúmmískórnir
komu til sögunnar og minna varð að
gera, segir Guðríður.
Var gefin stúlka
Guðríður og Þorsteinn áttu engin
börn saman en tóku að sér og ólu
upp tvö uppeldisbörn, Sigurð og
Halldóru, og ættleiddu dótturina
Gyðu, sem var bróðurdóttir Þor-
steins.
„Þegar Sigurður og Halldóra voru
að stálpast fóru þau að Laugum á
sundnámskeið og við fórum inn að
Sælingsdal en þar var nýfædd
stúlka. Pabbi hennar segir við mig:
Á ég ekki að gefa þér stelpuna? Jú,
segi ég, ef þú ætlar að gefa mér
hana, þá tek ég hana. En hvað segir
Gunna? sagði ég. Jú, ætli það ekki,
sagði hún. Og það var úr að ég fór
með hana heim. Hún var ekki nema
16 merkur. Og það var mamma
hennar, Gyða,“ segir Guðríður og
bendir á Júlíönu sem brosir við.
Eftir tæp tuttugu ár í Búðardal
flutti fjölskyldan til Reykjavíkur þar
sem Guðríður hélt stórt heimili og
var mikill gestagangur. Bjuggu þau
á nokkrum stöðum í borginni þar til
þau fengu íbúð í nýbyggðu húsinu
við Furugerði 1.
Guðríður tekur undir það að hún
hafi sannarlega lifað tímana tvenna
og þjóðfélagið hafi tekið miklum
stakkaskiptum á ævi hennar. Hún á
hins vegar ekki erfitt með að gera
upp við sig hvað henni finnst bera
hæst þegar hún lítur tilbaka.
Rafmagnið breytti miklu
„Það er rafmagnið sem mér finnst
hafa gert mikla lukku. Þegar ég var
að alast upp var margt erfitt, bæði
þvottar og fleira þess háttar. Þegar
ég var að vakna á morgnanna og
langaði í kaffi þá þurfti ég að byrja á
því að kveikja eldinn og sækja vatnið
en núna þarf ég ekki nema að ýta á
takka, þá er kaffið tilbúið. Þetta er
mikill munur,“ segir Guðríður.
Við ræðum það einnig hvernig
dægradvöl fólks hefur breyst í gegn-
um árin og ég spyr hana hvort það
sé rétt sem ég hef heyrt að hún
stytti sér stundir við að fara með
þulur. „Jú,“ svarar Guðríður um hæl
og rifjar upp atvik sem er henni eft-
irminnilegt; þegar hún var að leika
sér með skeljar með bræðrum sínum
og amma hennar kallaði á þau til að
kveða fyrir þau við tóvinnuna. Að
sögunni lokinni kveður hún fyrir mig
eitt af uppáhaldskvæðum ömmu
sinnar, kvæði sem hún segist aldrei
hafa lesið á bók og lifir nú í minninu.
Merkisafmælið er rétt handan við
hornið og tvær stórar tertur hafa
verið pantaðar í tilefni dagsins og
búið að bjóða nánustu ættingjum og
nágrönnunum í Furugerði. Há-
punktur veisluhaldanna verður án
efa þegar afmælisbarnið sjálft stígur
á stokk og kveður 84 erinda kvæða-
bálk, einnig eftir minni.
„Ég þakka því bara að ég hef ver-
ið jákvæð,“ svarar Guðríður að lok-
um, hinni óhjákvæmilegu spurningu
um hverju hún eigi langlífið að
þakka. „Ég hef alltaf reynt að
gleyma ef eitthvað hefur verið verra.
Það má fara í skuggann,“ segir hún,
áður en við kveðjumst.
Rafmagnið mesta byltingin
Guðríður Guðbrandsdóttir fagnar 105. aldursárinu næstkomandi mánudag Eitt af fyrstu störf-
unum var að sauma leðurskó á vinnumenn Ætlar að fara með 84 erinda kvæði í afmælisveislunni
Morgunblaðið/Eggert
Merkisafmæli Guðríður Guðbrandsdóttir fagnar 105 ára afmæli sínu næstkomandi mánudag. Hún þakkar langlífið
jákvæðu hugarfari og segist hafa reynt að gleyma því sem ekki hafi verið gleðilegt.
Afmælisbarnið
» Guðríður Guðbrandsdóttir
fæddist á Spágilsstöðum í Lax-
árdal í Dalasýslu 23. maí 1906.
» Hún fer allra sinna ferða fót-
gangandi og fer m.a. í leikfimi
tvisvar í viku og stundar allt fé-
lagslíf sem í boði er í Furu-
gerði.
» Guðríður ætlar í tilefni 105
ára afmælisins að fara með 84
erinda kvæði, eftir minni.
Guðríður segir tilkomu rafmagns-
ins hafa verið meðal þeirra breyt-
inga sem mestu skiptu en mörg
störf hafi verið erfið áður en það
kom til sögunnar. Henni eru mjög
eftirminnilegar eldavélar sýslu-
mannsins í Búðardal en hjá honum
var hún starfsstúlka fyrir daga raf-
magnsins þar í bæ.
„Þá var þar kolaeldavél en mikið
notaður mór í hana. Og hún var
svo lítil að þegar fólk kom að
borða frá býli sem sýslumaðurinn
átti, þá var eldamennskan svo mik-
il að ég þurfti að láta það sem var í
eftirmatinn í hitakassa. Þá hélst
það heitt. En rétt eftir að ég fór þá
kom stór vél sem alltaf var heit og
það var alltaf hægt að hita á henni
kaffi,“ segir Guðríður.
Hún var ekki há í loftinu þegar
hún fór fyrst að vinna og man sér-
staklega eftir því að hafa verið lát-
in skúra gólf á sumrin. Rétt um tví-
tugt hóf hún störf sem vinnukona
á bænum Brautarholti í Haukadal,
þar sem hún kynntist manni sínum
Þorsteini, en í þá daga var frítím-
inn af skornum skammti.
„Það var aldrei frí,“ segir Guð-
ríður. „Við unnum mikið. Maður
átti nú að eiga frí svona á sunnu-
dögum en þá þurfti maður að
þjóna sjálfum sér,“ segir hún.
Margt hafi breyst og störf orðið
léttari með nýjum tímum.
Mörg verk léttari í dag
BREYTTIR TÍMAR
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
Hagfræðingarnir Jón Steinsson, að-
stoðarprófessor við Columbia-há-
skóla í Bandaríkjunum, og Þórólfur
Matthíasson, prófessor við Háskóla
Íslands, hafa verið fengnir til að rita
greinargerðir um frumvarp Jóns
Bjarnasonar til laga um stjórn fisk-
veiða.
Þegar leitað var staðfestingar á
þessu í forsætisráðuneytinu í gær
fengust þær upplýsingar frá ráðu-
neytissstjóra, Ragnhildi Arnljóts-
dóttur, að fyrirspurninni væri rétt að
beina til viðeigandi ráðuneytis, sem
væri sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðuneytið. Þar könnuðust starfs-
menn hins vegar ekki við að hafa
fengið hagfræðingana tvo til starf-
ans.
Jón Bjarnason skipaði nýlega
starfshóp undir forystu hagfræð-
ingsins Axels Hall, til að meta hag-
ræn áhrif frumvarpsins, eins og áður
hefur verið greint frá. Sá hópur mun
skila skýrslu í byrjun júní.
„Ég var beðinn um að skrifa álits-
gerð um frumvarpið sjálft. Ég hef
gert það, skrifað um mitt persónu-
lega álit út frá minni sérþekkingu,“
sagði Þórólfur Matthíasson í samtali
við Morgunblaðið í gær. Um efnis-
legt innihald greinargerðarinnar
segir Þórólfur að hann telji að hægt
sé að ná því markmiði að koma arð-
inum af sjávarauðlindinni í ríkari
mæli til almennings með minni inn-
gripum en lagt er til í frumvarpinu.
Þar sé fullmikið lagt í hendur stjórn-
málamanna að ráðstafa veiðiheimild-
um. Þá orki útdeiling teknanna af
veiðigjaldinu tvímælis og heppilegra
gæti verið að nota jöfnunarsjóð
sveitarfélaga í það.
Þórólfur kvaðst þá þegar hafa
skilað áliti sínu til forsætisráðuneyt-
isins, sem hefði beðið hann um að
skrifa greinargerðina.
Samkvæmt heimildum innan úr
stjórnsýslunni ríkir nokkur óánægja
í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðu-
neytinu með afskipti forsætisráðu-
neytisins af matinu á hinum hag-
rænu áhrifum kvótafrumvarpsins,
sem annar hópur sinnir nú þegar.
Þórólfur
Matthíasson
Jón
Steinsson
Jón og Þórólfur gefa álit
Icecold silfurhálsmen
kr. 12.900
FALLEGAR ÚTSKRIFTARGJAFIR
HJÁ JÓNI OG ÓSKARI
Icecold silfurhálsmen
kr. 8.100
með zirkoníu steinum
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
11
13
01
www.jonogoskar.is LAUGAVEGUR / SMÁRALIND / KRINGLAN