Morgunblaðið - 21.05.2011, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2011
ATVINNUHÚSNÆÐI TIL LEIGU
VEL STAÐSETT SKRIFSTOFU- OG ÞJÓNUSTUHÚSNÆÐI
Grensásvegur 8, 1.203 m², 3 hæðir
Grensásvegur 10, 1.779 m², 4 hæðir
Ármúli 2, 3.384 m², 3 hæðir
Guðríðarstígur 2–4, 2.045 m², 2 hæðir
Lyngháls 9, 1.961 m², 3 hæðir
Hermann Guðmundsson | hermann@m3.is | Sími 661 4700
Örn V. Kjartansson | orn@m3.is | Sími 825 9000
Guðríðarstígur 2–4
Ármúli 2
Grensásvegur 10
Grensásvegur 8
eignamidlun@eignamidlun.is
Sverrir Kristinson, lögg. fasteignasali
Geir Sigurðsson, lögg. fasteignasali | Sími 824 9096
Hilmar Þór Hafsteinsson, lögg. leigumiðlari | Sími 824 9098
Leigist út í heilu lagi eða smærri einingum.
Teikningar og myndir á www.m3.is og www.eignamidlun.is
Bæj
V esturlandsv eg
ur
Stórhöfði
H
á
l s
a
b
ra
u
t
Grafarlækur
Guðríð a r
st
íg
u
r
Lyngháls
Suðurla
ndsbrau
t
K
ri
n
g
lu
m
ý
ra
rb
ra
u
t
S
u
ð
u
rla
n
d
s
b
ra
u
t
G
re
n
s
á
s
v
e
g
u
r
Á
lf
h
e
im
a
r
H
á
a
le
itis
b
ra
u
t
L
a
n
g
h
o
lts
v
e
g
Sk
ei
ða
rv
o
Fjölskyldu-
gar›ur
Húsd‡ra-
gar›ur
Árm
úli
Lyngháls 9 Fí
t
o
n
/
S
Í
A
TIL LEIGU
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Eins og staðan er í dag getum við
ekki skorið meira niður. Við búum
orðið við lágmarksfjölda starfsmanna
sem þarf til þess að reka þennan
fjölda útibúa. Það er komið að því að
gera eitthvað annað. Nú þurfa fleiri
að koma að hagræðingu í bankakerf-
inu,“ segir Gísli Jafetsson, upplýs-
ingafulltrúi Sambands íslenskra
sparisjóða. „Ef hagræðingin á að fel-
ast í fækkun starfa hlýtur röðin að
vera komin að stóru bönkunum.“
Sýni sjálfbærni rekstrar í verki
Sparisjóðakerfið stendur á tíma-
mótum en starfshópur á vegum spari-
sjóðanna með aðkomu Bankasýslu
ríkisins hefur unnið að mati á
rekstrarhorfum sparisjóðanna og
framtíðarsýn. Er niðurstaða vinnunn-
ar sú að mikilvægt sé að sparisjóð-
irnir „sýni í verki að þeir stundi sjálf-
bæra fjármálastarfsemi og hafi
samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi“.
Til að treysta reksturinn er lagt til að
sparisjóðirnir verði sameinaðir í 3 – 5
svæðisbundna sparisjóði.
Spurður hvort hann hyggist beita
sér gegn því að sparisjóðaútibúum á
vissum stöðum á landsbyggðinni
verði lokað vísar Steingrímur J. Sig-
fússon fjármálaráðherra til sérstöðu
margra sjóðanna í þjónustunetinu.
„Ég hugsa að það verði ekki mikið
af slíku vegna þess að þeir eru víða
eina bankastofnunin í viðkomandi
byggðarlagi. Ég hugsa að mesta hag-
ræðingin í lokun útibúa verði hér á
höfuðborgarsvæðinu á komandi miss-
erum,“ segir ráðherra.
Hann vísar svo til vinnu Banka-
sýslu ríkisins en hún hyggst taka af-
stöðu til tillagna um sameiningar
sparisjóða þegar þær liggja fyrir hjá
stjórnum sparisjóðanna.
Boltinn hjá stóru bönkunum að hagræða
Samband ísl. sparisjóða telur frekari niðurskurð kalla á fækkun útibúa sparisjóða Starfsfólki ekki fækkað frekar
Fjármálaráðherra horfir til hagræðingarmöguleika á höfuðborgarsvæðinu Bankasýsla ríkisins bíður tillagna
Gísli
Jafetsson
Steingrímur
J. Sigfússon
Tveir karlar, meðlimir í svo-
nefndum vélhjólaklúbbi, Black Pi-
stons, hafa verið úrskurðaðir í
gæsluvarðhald til 27. maí.
Þeir voru handteknir í Hafnar-
firði fyrir að halda manni, félaga í
sama vélhjólaklúbbi, nauðugum í
meira en hálfan sólarhring og berja
hann illa. Hlaut hann áverka víða á
líkamanum og er m.a. nefbrotinn.
Á dvalarstað árásarmannanna
var lagt hald á fíkniefni og barefli.
Áfram í varðhaldi
vegna líkamsárásar
Kaupmenn á Laugaveginum eru
uggandi vegna fyrirhugaðrar lok-
unar á hluta götunar. Borgarstjórn
stefnir að því að gera kaflann frá
Vatnsstíg að Skólavörðustíg að
göngugötu og loka honum fyrir bíla-
umferð.
Neyðarfundur var haldinn á veg-
um samtakanna Miðborgin okkar í
fyrrakvöld vegna þess sem kaup-
menn kalla þvingun af hálfu borg-
arinnar. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins er þungt hljóð í
kaupmönnum við Laugaveg vegna
málsins enda sé verið að spila með
ævistarf fólks sem hefur lagt allt
undir. Á svæðinu sem um ræðir eru
starfræktar 40 verslanir og 25 veit-
ingastaðir. Í tilkynningu frá meiri-
hluta borgarstjórnar í gær segir að
meirihluti hagsmunaaðila við
Laugaveg sé hlynntur breytingunni.
„Ég hefði viljað sjá þetta gert í
hægari skrefum,“ segir Guðbjörg
Kr Ingvarsdóttir skartgripahönn-
uður og eigandi verslunarinnar
Aurum. „Okkur finnst þetta ekki
hafa verið unnið í samráði við okk-
ur, því við viljum samstarf við borg-
ina en það virðist ekki ganga mjög
vel.“ Guðbjörg segir málið hafa
margar hliðar sem velt var upp á
fundinum í gær. Sumum finnist sem
verið sé að slíta Laugaveginn í
sundur og aðrir hafi bent á að veit-
ingastaðir og verslanir þurfi að
flytja til sín aðföng og þá þurfi að
vera opið fyrir umferð, a.m.k. til há-
degis. Þá var því einnig velt upp
hvernig breytingarnar kæmu niður
á öldruðum og hreyfihömluðum.
„Svo erum við auðvitað svo háð
veðrinu. Við vitum það verslunar-
eigendur þarna að ef veðrið er ekki
gott getur það gert okkur mjög erf-
itt fyrir að loka svæðinu í lengri
tíma.“
Morgunblaðið/G.Rúnar
Opið Notalegt í góðu veðri.
Líst illa á
lokun á
Laugavegi