Morgunblaðið - 21.05.2011, Blaðsíða 34
34 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2011
Hinn 5. maí síðast-
liðinn undirritaði
samninganefnd VR
nýjan kjarasamning
við Samtök atvinnu-
lífsins. Þar með var
höggvið á þann gor-
díonshnút sem hnýtt-
ur hafið verið í
strembnum kjara-
viðræðum síðustu
mánaða. Margt kom
þar við sögu og sitt sýnist hverjum
um þau mál sem inn í viðræðurnar
flæktust.
Ábyrg nálgun
Í samningaviðræðunum leituðust
fulltrúar VR við að feta það ein-
stigi sem felst í því að vinna til
baka þá kjararýrnun sem orðið
hefur síðustu þrjú árin, án þess að
ógna stöðugleika og rekstrarskil-
yrðum fyrirtækja í landinu. Það er
flókið verk og vandasamt, ekki síst
í ljósi þess að atvinnurekendur
hafa kveinkað sér mjög undan
þeim aðstæðum sem þeir búa við
um þessar mundir. Ljóst er að
launahækkanir munu alltaf koma
með einhverju móti við rekstur fyr-
irtækja en þá er einnig vert að
minnast þess að launþegar í þessu
landi hafa á liðnum misserum axlað
þungar byrðar, m.a. þær sem felast
í beinum og óbeinum launalækk-
unum, svo ekki sé minnst á aðra
þætti á borð við verð-
bólgu og gengisfall ís-
lensku krónunnar. Allt
hefur verið lagt í söl-
urnar til að fyrirtækin
í landinu geti haldið
sjó.
Þrjár leiðir
Þrjár leiðir eru fær-
ar til þess að rétta
stöðu launafólks í
landinu. Hægt er að
hækka laun, hægt er
að lækka skatta og
hægt er að treysta
undirstöður efnahagslífsins sem
aftur styðja við bakið á styrkingu
krónunnar og draga úr líkum á
óeðlilega mikilli verðbólgu. Í núver-
andi aðstæðum er nauðsynlegt að
fara blandaða leið að því marki
sem sótt er að og sækja fram á öll-
um þremur sviðum. Laun verða
hækkuð í áföngum á næstu þremur
árum og koma umtalsverðar hækk-
anir til framkvæmda strax 1. júní.
Ríkisvaldið verður að draga úr
skattpíningu, jafnt á atvinnulíf og
einstaklinga. Má þar sérstaklega
líta til lækkunar tryggingagjalds
og verðtryggingar persónu-
afsláttar. Ef kverkatakið verður
ekki losað eins fljótt og auðið er
mun engin uppbygging eiga sér
stað og framtakssemi fólks mun
lamast. Með öflugri sókn í atvinnu-
málum mun efnahagslífið ná sér á
strik á nýjan leik. Þar skiptir
mestu að líta til auðlindanýtingar
og má í því tilliti sérstaklega fagna
nýrri áætlun Landsvirkjunar sem
mun, þegar til framtíðar er litið,
verða einhver dýrmætasta eign
okkar Íslendinga.
Samþykkjum samninginn
Ég hvet alla félagsmenn VR til
þess að kynna sér nýgerðan kjara-
samning og vega og meta afstöðu
sína til hans út frá þeim aðstæðum
sem hann er sprottinn úr. Vissu-
lega hefði samninganefnd VR viljað
vinna stærri sigra að þessu sinni
en það er mat okkar sem að samn-
ingunum komu að lengra verði ekki
gengið að sinni, öðruvísi en að
ógna með því efnahagslegri stöðu
okkar allra. Sýnum ábyrgð í þess-
um efnum og nú þegar við gerum
það sem í okkar valdi stendur til að
vinna okkur út úr kreppunni, leggj-
um okkar lóð á vogarskálarnar,
skulum við minnast orða Einars
Benediktssonar þegar hann sagði:
„hvað má höndin ein og ein, allir
leggi saman!“.
Eftir Stefán
Einar
Stefánsson
»Ég hvet alla fé-
lagsmenn til þess að
kynna sér nýjan kjara-
samning og vega og
meta afstöðu sína til
hans út frá þeim að-
stæðum sem hann er
sprottinn úr.
Stefán Einar
Stefánsson
Höfundur er formaður VR.
Nýr kjarasamn-
ingur VR og SA
Þann 5. maí sl. birt-
ist í Morgunblaðinu
grein eftir Eyjólf
Ingva Bjarnason sem
bar heitið „Akademísk
vinnubrögð?“ Þar voru
gerð að umfjöllunar-
efni skrif fyrrverandi
nemanda við lagadeild
Háskólans í Reykja-
vík. Taldi höfundur
ýmislegt í þessum
skrifum ekki vera háskólanum til
sóma. Benti hann sérstaklega á eft-
irtaldar tvær setningar máli sínu til
stuðnings:
„Orðrómur hefur verið á kreiki á
Íslandi að ýmislegt mætti betur fara
í þeim efnum, sem tengjast dýra-
vernd í framleiðslu minkaskinna“ og:
„Þannig er það á almannarómi að [X]
sækir reglulega fé til slátrunar,
vinnslu og markaðssetningar frá býl-
inu [X] og stuðlar þannig að áfram-
haldandi búskap á býli, sem marg-
sinnis hefur fengið athugasemdir
fyrir slæma meðferð á dýrum.“
Vegna þessa telur
undirritaður mikilvægt
að eftirfarandi komi
fram. Umræddur nem-
andi skrifaði vissulega
meistararitgerð við
lagadeild Háskólans í
Reykjavík sem bar heit-
ið: „Um réttaráhrif og
framkvæmd dýravernd-
arlaga á Íslandi.“ Þau
skrif sem fjallað var um
í framangreindri blaða-
grein eru hins vegar
annað og nýtt verk
þessa fyrrverandi nemanda sem ber
heitið: Hin leynda þjáning búfjár á
Íslandi“. Þó vissulega byggi það verk
að stofni til á meistararitgerð hans
er þar á ferð nýtt verk sem höfundi
þess ber að kynna sem slíkt en ekki
sem meistararitgerð frá Háskól-
anum í Reykjavík. Þetta er sér-
staklega mikilvægt þar sem í þessu
nýja verki er m.a. að finna efni sem
ekki er að finna í meistararitgerðinni
vegna þess að nemandanum var ráð-
lagt að sleppa því með vísan í fræði-
leg vinnubrögð. Skal sérstaklega á
það bent að framangreindar tvær
setningar sem höfundur blaðagrein-
arinnar vísar til er ekki að finna í
meistararitgerðinni.
Ég er því hjartanlega sammála
þeirri sýn sem fram kemur í blaða-
greininni að það beri óvönduðum
vinnubrögðum vitni að byggja rök-
semdafærslu á „orðrómi“ eða „al-
mannarómi“ og get fullvissað höf-
undinn um að slík vinnubrögð eru
ekki kennd við lagadeild Háskólans í
Reykjavík.
Eftir Guðmund
Sigurðsson
Guðmundur Sigurðsson
» Þó vissulega byggi
það verk að stofni til
á meistararitgerð hans
er þar á ferð nýtt verk
sem höfundi þess ber að
kynna sem slíkt en ekki
sem meistararitgerð frá
Háskólanum í Reykja-
vík.
Höfundur er forseti lagadeildar Há-
skólans í Reykjavík.
Frekar um aka-
demísk vinnubrögð
Morgunblaðið birtir alla útgáfudaga aðsendar umræðu-
greinar frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að
hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og
ákveða hvort grein birtist í umræðunni eða í bréfum til
blaðsins.
Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og
fremst til að kynna starfsemi einstakra stofnana, fyr-
irtækja eða samtaka eða til að kynna viðburði, svo sem
fundi og ráðstefnur.
Innsendikerfið
Þeir sem þurfa að senda Morgunblaðinu greinar eru
vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins.
Formið má m.a. finna undir Morgunblaðshausnum efst
t.h. á forsíðu mbl.is. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein.
Ekki er lengur tekið við greinum sem sendar eru í
tölvupósti og greinar sem sendar eru á aðra miðla eru
ekki birtar.
Í fyrsta skipti sem formið er notað þarf notandinn að
nýskrá sig inn í kerfið, en næst þegar kerfið er notað
er nóg að slá inn netfang og lykilorð og er þá not-
andasvæðið virkt.
Ekki er hægt að senda inn lengri grein en sem nem-
ur þeirri hámarkslengd sem gefin er upp fyrir hvern
efnisþátt en boðið er upp á birtingu lengri greina á
vefnum.
Nánari upplýsingar gefur starfsfólk greinadeildar.
Móttaka aðsendra greina
www.gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Ódýr og góð gisting
í hjarta Kaupmannahafnar
Skipholti 29a
Sími 530 6500
www.heimili.is
SKÚLAGATA – ELDRI BORGARAR
Mjög vel skipulögð
63,6 fm 2ja herbergja
íbúð á 7. hæð með
glæsilegu útsýni
ásamt 15 fm stæði í
lokaðri bílageymslu.
Íbúðina má aðeins selja félagsmönnum í Félagi eldri
borgara sem eru 60 ára og eldri. Laus til
afhendingar. V. 19,9 millj. kr.
Andri
Sigurðsson,
sölufulltrúi
690 3111
Stórglæsileg, 155 fm íbúð á 6. hæð (efstu) og rishæð ásamt stæði í bíla-
geymslu. Tvennar svalir. Glæsilegar innréttingar. Góð tenging á milli hæða. Sér
þvottahús. Frábært útsýni. ÍBÚÐIN ER LAUS. VERÐ KR. 39,9 MILLJ.
SÖLUMAÐUR TEKUR VEL Á MÓTI ÁHUGASÖMUM.
Ármúla 21 • 108 Reykjavík • Sími 533 4040
kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali gsm 896 4013
Dan V. S. Wiium Ólafur Guðmundsson
hdl., lögg. fasteignasali. s. 896 4013 sölustjóri s. 896 4090
jöreign ehf
OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 13:00-15:00
BARÐASTAÐIR 9, REYKJAVÍK - ÍBÚÐ MERKT 0601
ÞAKÍBÚÐ Á TVEIMUR HÆÐUM ÁSAMT
STÆÐI Í LOKAÐRI BÍLAGEYMSLU
Óskum eftir til leigu 5 herbergja (4 svefnherbergi) íbúðarhæð eða raðhús í
Garðabæ fyrir traustan aðila.
Nánari upplýsingar gefur Magnús á skrifstofu FM
í síma 550 3000/892 6000
GARÐABÆR - LEIGA
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is