Morgunblaðið - 21.05.2011, Side 10
PRUFUTÍMINN
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Fuglaskoðunin var undirstjórn Jóhanns Óla Hilm-arssonar fuglafræðings.Hann sagði að gott væri að
mæta með sjónauka, fuglahandbók
og vaðstígvél ef hægt væri að ganga
um svæðið. Öllu þessu var reddað,
auk þess sem lopapeysan og polla-
gallinn voru dregin fram. Friðland í
Flóa er fuglafriðland Fuglaverndar
og Árborgar. Það er rétt fyrir utan
Eyrarbakka, og
telst ásamt Ölfus-
forum til ósa-
svæðis Ölfusárs.
Þegar ég mætti á
staðinn kom mér
á óvart að helj-
arinnar húskofi er
á svæðinu sem
kallast víst fugla-
skoðunarhús.
Okkur sem vorum
mætt í fugla-
skoðun þennan dag var boðið inn í
húsið en þar inni eru lúgur sem snúa
út að votlendinu og til þess ætlaðar að
sitja við og horfa á fugla út um. Ég
hafði búist við því að fuglaskoðun færi
fram á þúfu úti í móa en ekki í húsi
sem gæti talist höll í sumum löndum.
„Húsið var vígt í fyrravor þótt
það hafi verið standandi í tvö ár. Í
haust var settur upp hjólastól-
arampur svo þetta er eitt af fáum
fuglaskoðunarhúsum með aðgengi
fyrir fatlaða. Á þriðja tug fuglaskoð-
unarhúsa er um landið. Við vorum
mjög seinir í þessu, Íslendingar.
Fyrsta húsið reis í Borgarfirði eystra
í maí 2001 og síðan hefur þetta verið
sett upp víða,“ segir Jóhann Óli.
Fuglalífið í friðlandinu
Jóhann Óli byrjaði á að stilla upp
fjarsjá, sem er mjög öflugur sjónauki,
í eina lúguna í húsinu. Síðan hafði
hann uppi á fuglum fyrir okkur hin og
leyfði okkur að skiptast á að kíkja á
þá í gegnum fjarsjána. Ég kom mér
líka vel fyrir í einni lúgunni með kík-
inn minn og fuglahandbókina og
fylgdist með lífinu í friðlandinu. Það
fyrsta sem Jóhann Óli benti mér á var
lómapar á nærliggjandi tjörn. Lómur
er afskaplega fallegur fugl sem ég
Lífsglaðar stokkend-
ur og sofandi lómapar
Fuglaskoðun er áhugamál sem krefst þolinmæði. Líklega þess vegna hef ég aldrei
sótt í að fara í fuglaskoðun. En þegar boðið var upp á slíka í Friðlandi í Flóa um
síðustu helgi ákvað ég að skella mér enda blómatími fuglalífsins núna.
Fuglaskoðun Blaðamaður með fjarsjána að skima eftir fuglum.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2011
Nú þegar sumarið er komið á stjá
vaknar áhugi landsmanna fyrir nátt-
úrunni og öllu sem þar lifir og hrær-
ist. Fólk ferðast um landið og verður
margs vísara, til dæmis þeir sem
heimsækja Mývatn, en þar er lífríkið
afar fjölbreytt. Þeir sem eiga ekki
leið norður í land en vilja forvitnast,
geta í staðinn kíkt inn á vef Náttúru-
rannsóknastöðvarinnar við Mývatn
(RAMÝ) á slóðinni: ramy.is. Þar er
hægt að fræðast í máli og myndum
um dýralífið, jarðfræði, gróður, sögu
og menningu Mývatns sem og rann-
sóknir. Vefurinn gagnast líka þeim
sem til dæmis hafa almennan áhuga
á fuglum, því þarna eru myndir og
greinargóðar lýsingar á fuglateg-
undum. Vegna nýfallins snjós hefur
verið gert hlé á fuglatalningu á Mý-
vatni í bili en hún var komin vel á veg,
taldir höfðu verið um 5.000 fuglar. Í
fyrra voru taldir 29 þúsund fuglar.
Vefsíðan www.ramy.is
Morgunblaðið/Ómar
Fuglar Endur setja mestan svip á fuglalífið í Mývatnssveit.
Náttúra og saga við Mývatn
Kirsuberjatréð á Vesturgötu 4 í
Reykjavík er með kompumarkað í dag,
laugardag, á milli klukkan 12 og 17.
Markaðurinn er í kjallaranum í port-
inu og þar verður selt kompudót;
barna- og fullorðinsföt, dót og ein-
hverjir leirmunir og listmunir sem eru
hóflega gallaðir.
Konurnar sem standa að Kirsu-
berjatrénu halda kompumarkaðinn og
er þetta í annað sinn sem þær standa
fyrir honum. Sá fyrsti var síðastliðið
haust og stefna þær að því að halda
hann tvisvar á ári héðan af.
Allir eru velkomnir í kjallarann í
Kirsuberjatrénu í dag.
Endilega …
… kíkið á
kompumarkað
Morgunblaðið/Kristinn
Kirsuberjatréð Margt fallegt.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Sönghópurinn Spectrum heldur vor-
tónleika sína annað kvöld, sunnu-
dagskvöld, í Guðríðarkirkju í Graf-
arholti. Tónleikarnir hefjast kl. 20 og
standa til kl. 22. Söngdagskráin er
vorleg með vönduðum útsetningum.
Meðal laga eru „Bridge over trou-
bled water“, „Love me tender“, „Con
te partirò“, „Down to the river to
pray“, Gershwin-syrpa, bandarísk
þjóðlög og fleira. Stjórnandi er Ingv-
eldur Ýr Jónsdóttir og píanóleikari er
Vignir Þór Stefánsson.
Miðaverð er 2.000 kr. sé greitt við
innganginn og 1.500 kr. hjá félögum.
Tónleikar
Morgunblaðið/Ómar
Guðríðarkirkja Spectrum syngur þar.
Vortónleikar sönghópsins
Spectrum annað kvöld
Læknar í Hollandi segja að sex ára gamall drengur
með hnetuofnæmi hafi fengið ofnæmislost eftir að
honum var gefið blóð frá blóðgjafa sem hafði borðað
hnetur stuttu fyrir blóðgjöf. Drengurinn var í meðferð
við hvítblæði. Eftir blóðgjöf fékk hann útbrot, blóð-
þrýstingurinn féll og hann átti erfitt með andardrátt.
Hann jafnaði sig eftir að hafa fengið viðeigandi með-
ferð við kastinu. Móðir drengsins sagði að hann hefði
fengið svipuð einkenni um eins árs aldur eftir að hafa
borðað hnetur og hefði því ekki borðað þær síðan.
Blóðprufa sýndi fram á að drengurinn fékk ofnæm-
isviðbrögð vegna blóðgjafarinnar. Þrír af þeim fimm
blóðgjöfum sem voru notaðir mundu eftir að þeir
höfðu borðað hnetur kvöldið áður en þeir gáfu blóð.
Heilsa
Fékk hnetuofnæmiskast
vegna blóðgjafar
Ljósmynd/Jóhann Óli
Skoðunarhús Litið út um lúgu á húsinu sem er opið frá vori fram á haust.
Jóhann Óli
Hilmarsson
– Lifið heil
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
54
87
2
05
/1
1
SUNNY GREEN
CHLORELLA
Er svitalykt eða táfýla?
Fyrir þig
í Lyfju