Morgunblaðið - 21.05.2011, Qupperneq 11
Ljósmynd/Jóhann Óli
hafði aldrei veitt neina athygli áður.
Reyndar var þetta lómapar eitthvað
þreytt því það svaf nánast allan þann
klukkutíma sem ég fylgdist með því.
Næst sá ég skúfönd sem var þarna á
tjarnarbakka eitthvað að dunda sér,
auk þess sem óðinshani spókaði sig
um. Skemmtilegast þótti mér samt að
fylgjast með hversdagslegu stokk-
andarpari sem var í miklum athöfn-
um á tjörninni. Þær voru eitthvað að
knúsast og atast hvor í annarri, fá sér
að éta og annað sem stokkendur
gera. Ég gleymdi mér í langan tíma
við að fylgjast með þeim enda um af-
skaplega lífsglaðar endur að ræða
sem hlökkuðu eflaust til að fá litlu
ungana sína í heiminn síðar í vor.
Bjarthegri sá sjaldgæfasti
Jóhann Óli sagði sjötíu til áttatíu
fuglategundir hafa sést á svæðinu,
sumar bara einu sinni. Tuttugu og
fimm tegundir verpa á svæðinu að
staðaldri. „Lómurinn er einkenn-
isfugl friðlandsins, svo eru þrjú pör af
álft sem halda sig hér og margar
andategundir. Branduglan er sjald-
gæfasti varpfuglinn hér auk grafand-
arinnar. Sjaldgæfasti fugl sem hefur
sést á svæðinu er bjarthegri. Rúkragi
hefur líka sést einu sinni,“ segir Jó-
hann Óli. En hvenær er besti tíminn
til að fara í fuglaskoðun?
„Vorið er yndislegur tími; apríl,
maí, júní og aðeins fram í júlí. Hérna
er sennilega besti tíminn í kringum
mánaðamótin maí-júní. Þá er mjög
gott að vera hérna á morgnana og
kvöldin, fuglar eru fjörugastir þá. Yf-
ir hádaginn dettur lífið aðeins niður,
þá fá þeir sér síestu. Fuglalífið róast í
september, október og er lítið yfir
vetrartímann.“
Jóhann Óli verður hugsi þegar
ég spyr hver sé uppáhaldsfuglinn
hans. Það er erfitt að gera upp á milli
þeirra. „Í uppáhaldi eru eiginlega
þeir fuglar sem ég er að vinna með í
það og það skiptið. Þegar ég var að
vinna að lundabókinni var lundinn
uppáhaldsfuglinn minn. Nú er ég að
vinna að endurútgáfu á Fuglavísinum
og þá eru allir fuglarnir í uppáhaldi,“
segir hann og í því flýgur stari í
kringum okkur. Starinn á hreiður
undir þakskegginu á fuglaskoð-
unarhúsinu. „Þetta er einn al-
skemmtilegasti fugl sem ég veit um,“
segir Jóhann Óli og bendir á starann.
Hann er örugglega einn af fáum sem
finnst það. „Þegar maður kynnist
staranum og er í nábýli við hann
breytist viðhorfið. Það eru þrjú stara-
hreiður heima hjá mér, í varpkössum
sem ég er með utan á húsinu.“
Óþolinmóðir
fuglaskoðarar til
Friðland í Flóa er um 50 hekt-
arar að stærð og mun jafnvel stækka
á næstu árum. Þetta er vinsælt fugla-
skoðunarsvæði og nokkur þúsund
manns sem heimsækja það á hverju
ári að sögn Jóhanns Óla. Fólk getur
skoðað fuglana úr fuglaskoðunarhús-
inu eða gengið hring sem er stikaður
á svæðinu. Reyndar var ekki hægt að
ganga hann þennan dag þar sem
jörðin var of blaut.
Jóhann Óli segir að fuglaskoðun
fari allavega fram, sumum finnist
best að setjast á þúfu eða undir vegg
með kaffibrúsa og fylgjast með því
sem fram fer.
„Þeir sem stunda fuglaskoðun
eru að sækjast eftir útiverunni, sam-
neyti við náttúruna og að fræðast um
hana. Sumir eru safnarar, safna
fuglategundum, aðrir teikna þá, mála
eða skera út. Það hefur líka orðið
gríðarleg sprenging í þeim sem
mynda fugla með tilkomu stafrænu
myndavélanna. En fyrir tíu árum var
hægt að telja okkur á fingrum ann-
arrar handar sem tókum fuglamynd-
ir. Fuglarnir eru svo stór hluti af ís-
lenskri náttúru, þeir vekja
stemningu, eru fallegir, gefa frá sér
falleg hljóð og þeir eru skemmtilegir.
Við eigum svo fá landspendýr og þess
vegna spila fuglarnir stærri hlutverk
í náttúrunni en ella.“
Jóhann Óli segir að fyrstu skref-
in fyrir þá sem vilja gera fuglaskoðun
að sínu áhugamáli sé að eignast sjón-
auka og fá sér fuglabók.
„Þá er bara að fara út á örkina
og æfa sig í að þekkja fugla. Það er
líka gott að punkta hjá sér upplýs-
ingar. Síðan er hægt að leita til
félagsskapar eins og Fuglaverndar,
þar eru alltaf fræðslufundir og ým-
iskonar uppákomur en það er gott að
fara með reyndu fólki í ferðir.
Fræðsluvefir eru líka margir og góðir
eins og fuglavefur Námsgagnastofn-
unar.“
Spurður hvort fuglaskoðun sé
ekki áhugamál sem krefst þolinmæði
hlær Jóhann Óli og segist nú alveg
þekkja óþolinmóða fuglaskoðara.
„Það er sérstaklega ljósmyndunin
sem er þolinmæðisvinna. Stundum
þarf að sitja dögunum saman í felu-
skýli og það er verst þegar ekkert
gerist. Sumir geta setið tímunum
saman og fylgst með fuglum enda er
þetta oft mikil upplifun, sérstaklega á
þessum árstíma,“ segir Jóhann Óli.
Frá Friðlandinu í Flóa hélt hann á
Seltjarnarnesið þar sem hann átti
líka að leiða fuglaskoðun þennan dag.
Ég hélt aftur á móti sæl og glöð heim
á leið, nokkru vitrari um fuglalífið.
Á sundi Lómur er einkennisfugl Friðlandsins enda fallegur fugl.
ww.fuglavernd.is
Rólegheit
Álftapar með
ungana sína
á sundi á tjörn
í Flóanum.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2011
„Ég ætla ekki á
fætur fyrr en um
tíu, því ég var að
sauma fram á
nótt,“ segir Gunn-
hildur Stefáns-
dóttir eigandi
Gamms, nýrrar ís-
lenskrar hönn-
unar og fram-
leiðslu á
kvenfatnaði, en
hún heldur gangbrautartískusýningu
á gatnamótum Hverfisgötu og Klapp-
arstígs í kvöld. „Dagurinn fer allur í
undirbúning fyrir kvöldið. Í hádeginu
hitti ég Önnu, eiganda Barber thea-
ter, sem heldur partýið með mér. Fyr-
irsæturnar koma svo klukkan sex og-
fagnaðurinn byrjar klukkan átta og
allir eru velkomnir. Tískusýningin
verður klukkan níu en þar ætla ég að
kynna vor- og sumarlínuna mína.“
Gunnhildur segir að borgarumhverfið
og þar með gatnakerfið hafi áhrif á
hönnun hennar. „Gatnamót Hverfis-
götu og Klapparstígs henta mjög vel
til tískusýningar, þetta er skemmti-
legt svæði, hér er fornbókabúðin
hans Braga, hótel og listagallerí og
það er gaman að nýta þetta lifandi
umhverfi til að halda götupartý,“
segir Gunnhildur en Gammur opnaði
verslun í húsnæði Barber Theater við
Hverfisgötu 37 í febrúar og viðtökur
hafa verið afar góðar. Nafnið Gamm-
ur segist hún hafa gefið fyrirtækinu
til að heiðra minningu handavinnu-
kennara síns frá því í grunnskóla sem
var þýsk og hét Margot Anna Klara
Gamm. „Til að gera það íslenskt
bætti ég -ur aftan við. Margot hafði
mikla trú á mér og leyfði mér að gera
svo margt. En leiðin var löng að
Gammi, ég tók BA í íslensku, kenndi,
fór svo í Kennó og útskrifaðist sem
textílkennari, en endaði hér og er
komin á réttan stað.“
Hvað ætlar þú að gera í dag?
Flott Sýnishorn af því sem kemur frá Gammi og verður á sýningunni í kvöld.
Fer með Gamminn út á götu
Gunnhildur
Stefánsdóttir
Hnetur
Varasamar á
marga vegu.
Fuglaskoðun Óðinshani sást þennan dag.
*Bremsuklossar að framan í
Volkswagen Fox með vinnu.
Eru bremsurnar í lagi?
25.067*
Laugavegi 170 -174 • 590 5000 • hekla.is • hekla@hekla.is • Þjónustuverkstæði um land alltTímapantanir í síma 590 5000 og á gvf@hekla.is
Das Auto.
24.–26. júní Hvammstanga Húnaþingi vestra
www.landsmotumfi50.is
m
ag
gi
@
12
og
3.
is
24
8.
18
7