Morgunblaðið - 21.05.2011, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2011
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
Áfram verður kalt í veðri norðan-
lands um helgina og verður víða tals-
verð snjókoma eða slydda, að sögn
veðurfræðings á vakt hjá Veðurstofu
Íslands.
Segja má að landið skiptist í tvennt
með tilliti til veðurs um helgina.
Sunnanlands verður víðast hvar bjart
og fínt veður megnið af helginni, en
bjart með köflum austast á Suður-
landi og á Breiðafirði.
Síðustu nótt og framan af deginum
í dag, laugardegi, var spáð mjög svip-
uðu veðri og var í gær, en sú breyting
átti helst að verða að léttara yrði yfir
á Suðausturlandi.
Jörð var orðin hvít víða á Norður-
landi í gær og fengu Akureyringar
sinn skerf af því, eins og sést á með-
fylgjandi myndum. Reikna má með
því að jörð verði áfram hvít víða norð-
anlands um helgina. Það verður élja-
gangur norðvestantil en samfelldari
úrkoma á Norður- og Austurlandi.
Ekki komast lömbin út um sinn
Í gær var hitastig núll til ein gráða
á láglendi norðanlands, en reiknað er
með því að hiti verði þar svipaður um
helgina og lítill munur á milli héraða,
í mesta lagi ein til tvær gráður. Ekki
er því útlit fyrir að bændur sem vaka
yfir ám sínum í sauðburði geti sett
bornar ær og lömb út um helgina og
því verður enn meiri þröng á þingi í
fjárhúsum þeirra eftir helgina en nú
þegar er.
Sunnanlands er hins vegar spáð
fimm til níu stiga hita, víðast úr-
komulausu en helst von á rigningu í
Reykjavík síðdegis eða í kvöld.
Víða er hálka eða hálkublettir á
fjallvegum, samkvæmt upplýsingum
frá Vegagerðinni og verður víða
skafrenningur eða snjókoma á heið-
um um helgina. Þeir sem ætla að
vera á faraldsfæti ættu því að aka
varlega og vera vel búnir.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Gaman Börn í Bárðardal leika sér í snjónum við bæinn Svartárkot í gær; Tryggvi Snær Hlinason, Elín Heiða Hlinadóttir og Sandra Sif Agnarsdóttir. Hundurinn Kátur fylgist spenntur með.
Kuldaboli slettir úr klaufunum
Bjart og úrkomulaust sunnanlands en kalt og snjókoma norðanlands Spáð snjókomu og slyddu
Reikna má með að jörð verði áfram hvít víða norðanlands um helgina Þröng á þingi í fjárhúsum
Ljósmynd/Magnús Skarphéðinsson
Hvítt Sigfús Ólafur Helgason, formaður Þórs, og Rögnvaldur Jónsson vallarstarfsmaður á Þórsvellinum á Akureyri
í gær. Von er á FH-ingum í heimsókn á morgun og vonast er til þess að völlurinn verði leikfær, ef ekki frystir mikið.
Akureyri er rómuð fyrir veður-
blíðu og Eyjafjörðurinn allur.
Ekki síst á sumrin þegar sólin
skín þar bæði skærara og and-
varinn yljar betur en sunnan
heiða. Nú ber hins vegar svo við
að hitamælirinn á Ráðhústorgi
þeirra Akureyringa sýnir ekki
jafnháa tölur og oft áður
snemmsumars. Stundum hafa
þær verið svo háar að utanbæj-
armenn hafa efast um sann-
leiksgildið.
Á hádegi í gær sýndi mæl-
irinn hitastig við frostmark en
klukkan tíu um morguninn var
tveggja stiga frost.
MISHEITT Í MAÍ
Kalt á Ráð-
hústorginu
Mikið fannfergi gerði vegfarendum
lífið leitt á Austurlandi í gær, en
samkvæmt lögreglunni á Egilsstöð-
um féllu hátt í 15 sentimetrar af snjó
yfir daginn. Farið var að sjást í heið-
an himin undir miðnættið. Ökumenn
fjölda bíla lentu í vandræðum vegna
snjós og krapa á vegum.
Þversum á veginum
Fjórir stórir flutningabílar lentu
þversum á veginum og þurftu á að-
stoð að halda, þar af einn sem fór
hálfur út af veginum á leið sinni upp
á Fagradal. Einn flutningabílanna
var olíubíll, en hann lenti þversum á
veginum við Heiðarenda ofan Jökul-
dals. Engan sakaði og engar
skemmdir urðu á bílunum. Hins veg-
ar þurfti að flytja ökumann fólksbíls
á heilsugæslustöðina á Egilsstöðum,
en hann hafði velt bíl sínum á leið
upp á Fjarðarheiði. Ekki var talið að
áverkar hans væru alvarlegir. Tveir
fólksbílar til viðbótar lentu utan veg-
ar án þess að slys yrðu á fólki.
Vegna hins óvænta vetrarveðurs
var erill hjá lögreglu í gær, en veðrið
batnaði eftir kvöldmatarleyti. Þá var
færðin eins og verst gerist á vetrum,
og ekki fyrir ökumenn annarra bíla
en fjórhjóladrifinna að aka um götur
Egilsstaða. Vegfarendur vanbúinna
bifreiða eru því varaðir við því að
vera á ferðinni þar til aðstæður
batna. einarorn@mbl.is
Fólksbílar gagns-
litlir fyrir austan
Mikil snjókoma á Austurlandi í gær