Morgunblaðið - 21.05.2011, Síða 27

Morgunblaðið - 21.05.2011, Síða 27
FRÉTTIR 27Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2011 Um helgina stendur Bílgreina- sambandið fyrir stórsýningu á far- artækjum á hjólum í Fífunni. Opið er frá kl. 11-18 á laugardaginn, en frá 11-16 á sunnudaginn. Ókeypis er inn á sýninguna. Sýnt verður á yfir 4.000 fm og sýnendur eru flest bílaumboð lands- ins ásamt fyrirtækjum sem bjóða upp á vörur og þjónustu sem á einn eða annan hátt tengjast farar- tækjum. Á sýningunni verður að finna nýjustu bílana á markaðnum auk þess sem nokkur bifreiðaumboð frumsýna nýjar gerðir bíla á sýn- ingunni sem ekki hafa sést hér áð- ur. Einnig verða til sýnis ferðabílar, hjólhýsi, mótorhjól, fjórhjól og raf- hjól, svo eitthvað sé nefnt. Morgunblaðið/Árni Sæberg Glæsikerrur Bílasýningingar eru vinsælar víða um heim. Bílasýning í Fífunni Vísindamennirnir dr. Laurie Bert- ram frá háskólanum í Toronto og Lorena Fountaine prófessor frá há- skólanum í Winnipeg verða með þrjá fyrirlestra í maímánuði, bæði í Reykjavík og á Akureyri, sem fjalla um tengsl frumbyggja og íslenskra landnema í Kanada. Fyrsti fyrir- lesturinn verður í Þjóðmenning- arhúsinu við Hverfisgötu í dag, laugardag kl. 14:00. Hann nefnist „Moccasintreyjur og elgskjöt: Saga kanadískra frumbyggja og Vestur- Íslendinga 1875 til dagsins í dag“. Vestur-Íslendingar og frumbyggjar Maí er alþjóðlegur fótverndarmán- uður og í ár er ljósinu beint að fót- um og gigt. Af því tilefni munu Fé- lag íslenskra fótaaðgerðafræðinga og Gigtarfélag Íslands standa fyrir opnum fræðslufundi á Grand Hótel við Sigtún á þriðjudag nk. kl. 18. Á fundinum mun Ingvar Teitsson gigtarlæknir fjalla um fætur og gigt og Guðrún Sigurbjörnsdóttir fótaaðgerðafræðingur flytur erindi undir heitinu „Fæturnir í fyrir- rúmi“. Þá munu Guðrún V. Eyjólfs- dóttir, Guðmundur R. Magnússon og Gíslný Bára Þórðardóttir frá Stoð tala um „Hvað er til ráða?“ Fundur um fótvernd Innanríkis- ráðherra hefur sett á stofn þriggja manna fagráð sem fjalla skal um ásakanir vegna ofbeld- isbrota og kyn- ferðisbrota, m.a. hjá trúfélögum. Fagráðið skal vera ráðherra til ráðgjafar í málum sem þessum og leiðbeina um leiðir til úrbóta. Þá skal það móta reglur fyrir starf- semina sem yrði grundvöllur að breytingum á lögum um skráð trú- félög og eftir atvikum stofnanir og félagasamtök sem njóta opinbers stuðnings og miði að því að koma kærumálum í markvissan farveg. Starfshópinn skipa Guðrún Ög- mundsdóttir, tengiliður vistheimila, Bragi Guðbrandsson, forstöðumað- ur Barnaverndarstofu, og Björgvin Björgvinsson, aðstoðaryfirlög- regluþjónn hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu. Fagráð um kynferð- isbrot sett á stofn Guðrún Ögmunds- dóttir STUTT Átta smíðavellir verða starfræktir í Reykjavík í sumar. Smíðavellirnir sem eru fyrir börn á aldrinum 9- 13 ára (fædd 1998-2002) verða við Ársel, Rima- skóla, Hólmasel, Miðberg, Breiðholtsskóla, Há- teigsskóla, Melaskóla og Álftamýrarskóla. Flestir vellirnir hefja starfsemi 6. júní og standa yfir í 3-5 vikur. Skráningargjaldið er 1000 kr. og skráning fer fram á Rafrænni Reykjavík http://rafra- en.reykjavik.is/pages/. Á smíðavöllunum gefst krökkunum tækifæri til að virkja sköpunargáfu sína og fá leiðsögn við að smíða kofa og ýmislegt fleira skemmtilegt. Foreldrum, öfum og ömmum, frænkum og frændum er velkomið að aðstoða við smíðarnar. Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur (ÍTR) býður auk smíðavallanna upp á sumarfrístund fyr- ir 6-9 ára börn, fædd 2001- 2004, á frístundaheim- ilum, sumarsmiðjur fyrir 10-12 ára börn, fædd 1998-2000, og sumaropnun í félagsmiðstöðvum fyrir 13-16 ára unglinga, fædda 1995-1997. Að auki býður ÍTR upp á siglinganámskeið og klúbba í Siglunesi fyrir 9 ára og eldri, sem og bátaleigu fyr- ir alla fjölskylduna. Þá verður boðið upp á dýra- námskeið í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum fyrir 10-12 ára börn og eru þau líka sívinsæl. Skráning er hafin á http://rafraen.reykjavik.is/pages/ Upplýsingar um þetta starf hjá ÍTR sem og sumarstarf fjölmargra annarra aðila er að finna á vefnum www.itr.is/sumar. Með leitarvél á vefnum er hægt að finna framboð á viðfangsefnum og leita eftir tímabili, aldri, hverfi og efnisflokki. Afþreying í boði fyrir börn og unglinga Í sumar Smíðavellirnir hafa notið mikilla vin- sælda hjá börnum á undanförnum árum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.