Morgunblaðið - 21.05.2011, Side 31
FRÉTTIR 31Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2011
Stjórnvöld í Kína segja að „alvarleg
vandamál“ hrjái nú Þriggja gljúfra
stífluna miklu, stærsta vatnsorku-
ver heims. Mengun og setmyndun
hafa valdið miklum vandræðum,
einnig skriðuföll. Þunganum á
vatninu í stíflunni er einnig kennt
um jarðhræringar og landrof, að
sögn vefsíðu Guardians.
Lengi var gert lítið úr allri gagn-
rýni á framkvæmdina. En í yfirlýs-
ingu stjórnvalda, sem samþykkt var
af Wen Jiabao forsætisráðherra, er
einnig viðurkennt í fyrsta sinn að
mannvirkið hafi haft slæm áhrif á
flutninga niður eftir fljótinu og
vatnsbúskapinn á svæðinu öllu.
Byrjað var að reisa verið og stífl-
una 1992, flytja varð um 1,4 millj-
ónir manna af stíflusvæðinu á brott
og yfir 1000 smáborgir og þorp
fóru undir vatn. Verið framleiðir
um 18.200 megavött af rafmagni í
26 hverflum. Stíflan, sem er rúmir
tveir km að lengd, á að tryggja að
vatnavextir í Jangtze-fljótinu valdi
minni spjöllum en þeir hafa gert
öldum saman. kjon@mbl.is
Viðurkenna vandamál
vegna Jangtze-stíflu
Vatnið beislað Þriggja gljúfra stíflan er geysimikið mannvirki og á m.a. að hindra mannskæð flóð í Jangtze.
Ein af deildum þýska endurtrygg-
ingarisans Munich Re, Ergo, hefur
viðurkennt að hafa launað bestu
sölumönnum sínum árið 2007 með
svallferð og veislu á baðstað í Búda-
pest. Þar gátu þeir valið milli 20
vændiskvenna.
Um var að ræða 100 sölumenn,
að sögn BBC sem hefur eftir þýska
Handelsblatt að vændiskonurnar
hafi borið armbönd með litum sem
sýndu hvaða þjónustu þær veittu.
Eftir að hafa sinnt viðskiptavini
fengu þær stimpilmerki á hand-
legg.
„Þarna voru líka konur með hvít
armbönd,“ er haft eftir ónafn-
greindum manni sem var meðal
gestanna. „Þær voru fráteknar
handa stjórnarmönnum og allra
bestu sölumönnunum.“ Talsmaður
Ergo sagði BBC að veislan hefði
verið haldin en starfsmönnum væri
yfirleitt ekki launað með þessum
hætti. kjon@mbl.is
Sölumenn fengu
svallferð að launum
hjá Munich Re
Ný Gallupkönnun í Bandaríkjunum
gefur til kynna að 53% landsmanna
séu sátt við að samkynhneigðir fái
að giftast. Fyrir 15 árum var stuðn-
ingurinn aðeins um 27% og tveir af
hverjum þremur voru beinlínis á
móti, að sögn L.A. Times.
Á sl. 12 mánuðum hefur stuðn-
ingurinn einkum aukist meðal
demókrata og óflokksbundinna.
Stuðningur er mun meiri eða um
70% meðal 18-34 ára en hjá eldra
fólki. Hlutfallslega fleiri kaþólikkar
en mótmælendur eru fylgjandi því
að samkynhneigð pör geti gengið í
hjónaband. kjon@mbl.is
Styðja hjónabönd
samkynhneigðra
AP
Ást Samkynhneigðir karlar í Boston.
Þótt konur væru
mjög framarlega
í flokki þegar
uppreisnin hófst
gegn Muammar
Gaddafi í Líbíu
eru aðeins 2 kon-
ur í 40 manna
bráðabirgða-
stjórninni í Beng-
hazi. Þrátt fyrir
harðstjórn Gadd-
afis sóttu konur fram á ýmsum svið-
um í valdatíð hans, fengu m.a að
stunda menntaskóla- og há-
skólanám. En nú óttast sumar líb-
ískar konur að sigri uppreisn-
armenn verði afturhvarf í þessum
efnum. kjon@mbl.is
Uppreisnin slæm
fyrir líbískar konur?
Uppreisninni
fagnað í Benghazi.
Fræðslumynd um krabbamein í ristli og endaþarmi
sýnd á RÚV þriðjudaginn 24. maí kl. 21:25„Þetta er svo lúmskt“
Krabbameinsfélag Reykjavíkur, Ristilfélagið og Stómasamtök Íslands. Auglýsingin er gerð í samvinnu við Roche og Merck Serono.
Krabbameinsfélagið