Morgunblaðið - 21.05.2011, Qupperneq 33
33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2011
Vor Í gær snjóaði víða um land og sumum þótti nóg um blásturinn í Reykjavík en þessar ungu stúlkur mættu vindinum með bros á vör á Ingólfstorgi enda veðrið sennilega hvergi betra en þar.
Árni Sæberg
Að mati Seðlabankans
hafa 28 þúsund störf tap-
ast frá miðju ári 2008. Í
fyrra var heildarfjöldi
starfa á Íslandi um 167
þúsund. Um mitt ár 2008
voru þau hinsvegar um
195 þúsund. Tæplega
17% starfa hafa því tap-
ast á rúmum tveim árum.
Vinnustundum hefur
fækkað enn meira. Í
fyrra voru um 14 þúsund
án atvinnu. Aðrir 14 þúsund höfðu horfið
af vinnumarkaði eða flutt úr landi.
Augljóst er að mörg störf töpuðust í
hruninu þegar fyrirtæki urðu gjaldþrota
og atvinnugreinar drógust saman. En
störfum heldur áfram að fækka. Fá ný
störf verða til. Af hverju skyldi það vera?
Í hagfræði er talað um muninn á því
sem einstaklingurinn ber úr býtum fyrir
vinnu sína og því sem hann fer að lokum
með heim sem skattafleyg. Því stærri
sem þessi fleygur er því minni hvati er til
að vinna og því erfiðara er að stunda at-
vinnurekstur.
Nýverið birti OECD skýrslu þar sem
fram kemur að skattafleygurinn á Ís-
landi hefur stækkað hvað mest af öllum
löndum OECD. Öll vitum við að skattar
hafa hækkað meira hér á landi en góðu
hófi gegnir en að við eigum nærri heims-
met – það vissi ég ekki.
Um 125 þúsund starfsmenn vinna nú í
einkageiranum. Þessir starfsmenn þurfa
að bera uppi framfærslu sína og tæplega
193 þúsund annarra Íslendinga. Hver
starfsmaður í einkageiranum þarf því að
bera uppi 1,54 aðra. Árið 2007 þurfti
starfsmaðurinn í einkageiranum að bera
framfærslu sína og 1,29 annarra. Byrðin
hefur þyngst um 20% á þrem árum!
Á sama tíma hafa allir skattar hækk-
að. Tekjuskattur einstaklinga hefur
hækkað um 9% síðan 1997 og er nú orð-
inn sá annar hæsti innan OECD, næstur
á eftir Danmörku. Virðisaukaskattur
hefur hækkað um 4% og er sá hæsti í
heimi. Jafnframt hafa skattar á fjár-
magn, hagnað og lögaðila verið hækk-
aðir og fjölmargir nýir skattar verið inn-
leiddir.
Skattar meðalfjölskyldu með tvö börn
(ein fyrirvinna) stóðu nærri í stað milli
áranna 2009 og 2010 innan
OECD. Á Íslandi hækkuðu
þeir um 5%! Skattar meðal-
einstaklings hækkuðu um
3,3% á Íslandi en stóðu nærri
í stað innan OECD. Skattar á
einstæð foreldri hækkuðu
mest á Íslandi af öllum lönd-
um OECD.
Nú er svo komið að skatta-
umhverfi einstaklinga og fyr-
irtækja er þannig að enginn
hvati er til að stofna ný fyrir-
tæki og skapa ný störf. Ofan
á þetta er svo smurt óvissu
sem hamlar fjárfestingu enn frekar. Það
hriktir í fiskveiðistjórnunarkerfinu og
erlendum fjárfestum er hótað þjóðnýt-
ingu. Allar eru þessar skattahækkanir
kynntar til sögunnar í nafni þess að rík-
isfjármálin þurfi að laga. Það er vissu-
lega rétt að fjármál ríkisins eru í ólestri
en það eru til aðrar aðferðir til að laga
þau.
Sjálfstæðismenn hafa margoft bent á
að besta leiðin til að laga ríkisfjármálin
sé að endurheimta skattstofnana. Það
gerum við með því að búa fyrirtækj-
unum það umhverfi að þau fjárfesti og
ráði nýja starfsmenn – með því að end-
urheimta þau störf sem töpuðust í
hruninu. Leiðin til þess er að eyða óvissu
og lækka skatta á fólk og fyrirtæki eins
og Sjálfstæðisflokkurinn tíundaði í viða-
miklum efnahagstillögum sem enn eru í
fullu gildi.
Það er ekki hægt að skatta sig út úr
vandanum en það er hægt að skatta sig í
vanda eins og nú er berlega að koma í
ljós!
Eftir Tryggva Þór
Herbertsson
» Tekjuskattur ein-
staklinga hefur hækk-
að um 9% síðan 1997 og er
nú orðinn sá annar hæsti
innan OECD, næstur á
eftir Danmörku. Virð-
isaukaskattur hefur
hækkað um 4% og er sá
hæsti í heimi.
Tryggvi Þór
Herbertsson
Höfundur er prófessor í hagfræði og al-
þingmaður.
Samhengi skatta og
atvinnu
Velferðarráðherra,
Guðbjartur Hann-
esson, ræðst ómak-
lega að tannlæknum
úr ræðustól Alþingis í
óundirbúinni fyr-
irspurn þingmanns-
ins Þorgerðar Katr-
ínar Gunnarsdóttur.
Hann sakar tann-
lækna um að nota
börn í kjarabaráttu
sinni. Vegna þessara ummæla er
okkur bæði ljúft og skylt að upp-
lýsa ráðherrann um eftirfarandi
staðreyndir, sem ættu þó að vera
honum vel kunnar.
Hjálparvakt eða
átaksverkefni
Tannlæknafélag Íslands átti
frumkvæðið að Hjálparvakt tann-
lækna árið 2009. Hjálparvaktin var
unnin í sjálfboðavinnu í samstarfi
við tannlæknadeild Háskóla Ís-
lands. Hjálparvaktin var öllum opin
óháð efnahag og nýttu fjölmörg
börn með illa skemmdar tennur sér
þjónustuna. Tannlæknar víðs vegar
af landinu unnu án launa þann tíma
sem vaktin stóð.
Átaksverkefni velferðarráðu-
neytis er allt annars eðlis. Þar sem-
ur velferðarráðuneytið við tann-
læknadeild Háskóla Íslands um
tímabundna tannlæknaþjónustu
fyrir börn efnaminni foreldra að
undangengnu mati. Ekki er þó
metið eftir ástandi tanna eða með-
ferðarþörf – sem þó ætti að vera
grundvallaratriði. Þessi þjónusta
stendur öllum börnum efnaminni
heimila til boða og er greiddur
ferðastyrkur til þeirra sem búa ut-
an höfuðborgarsvæðisins. Það get-
ur farið töluvert hærri upphæð í að
greiða ferðakostnað barna og
fylgdarmanna en í tannlækning-
arnar sjálfar. Dæmi eru um ein-
staklinga sem aldrei hafa greinst
með tannskemmdir, en nýta sér
þessa þjónustu og fá ferðastyrk
fyrir sig og fylgdarmann til
Reykjavíkur algerlega að ástæðu-
lausu.
Samningar
Velferðarráðherra talar um að
ekki hafi tekist samningar við tann-
lækna. Árið 2007 náðust samningar
við Tannlæknafélag Íslands um
gjaldfrjálsar skoðanir sex og tólf
ára barna. Velferðarráðherra er
flokksmaður Samfylkingarinnar
sem ásamt Sjálfstæðisflokki stóð
fyrir nýjum lögum um sjúkratrygg-
ingar nr. 112/2008 sem gera ekki
ráð fyrir að samið sé við fag- eða
stéttarfélög. Í umsögn um lögin
gerði Tannlæknafélag Íslands at-
hugasemd við þetta fyrirkomulag
og gagnrýndi að ekki væri hægt að
semja við félagið í heild sinni.
Ítrekað hefur verið bent á þetta á
fundum með forsvarsmönnum
Sjúkratrygginga Íslands.
Einnig hefur verið bent á árleg-
an afgang af fjárlögum sem nota
má til endurgreiðslu tannlækn-
areikninga. Þessi afgangur nemur
hundruðum milljóna ár hvert og á
tíu ára tímabili eru ónýttar heim-
ildir um þúsund milljónir króna. Á
þessum árum hefur ráðherrum
heilbrigðismála verið í lófa lagið að
hækka endurgreiðslugjaldskrá
sjúkratrygginga með einni til-
skipun, sem hefði haft þær afleið-
ingar að tryggðir sjúklingar fengju
meira endurgreitt af útlögðum
tannlæknakostnaði. Endur-
greiðsluskrá SÍ hefur ekki hækkað
síðan árið 2004. Börn, sem fæddust
það ár, eru komin í grunnskóla –
svo langt er um liðið og lýsir þetta
vilja ráðherra og embættismanna
til að bæta úr. Núverandi velferð-
arráðherra getur breytt endur-
greiðslugjaldskrá SÍ með einu
pennastriki.
Hrein tönn skemmist ei
Síðast en ekki síst: Af hverju
skemmast tennur? Grundvall-
aratriði sem oft hefur gleymst í
hinni almennu umræðu. Við fæð-
umst öll með heilar tennur – reynd-
ar getur glerungur verið gallaður í
undan tekningartilfellum, en
meginreglan er sú að tennur koma
heilar í munn. Í munninum er sam-
safn baktería sem skemma tennur.
Ráðið sem við höfum til að halda
þeim í skefjum er hreinsun með
tannbursta og tannþræði. Einnig
getum við haft áhrif með því að
fylla ekki munninn endalaust af
næringu fyrir bakteríurnar, en
sykur, gos og önnur óhollusta er
þar efst á óskalista þeirra. Tennur
skemmast ekki, ef um þær er al-
mennilega hugsað. Því er grunn-
skylda okkar sem foreldra og heil-
brigðisstarfsmanna að hugsa um
tennur barnanna.
Áhersluatriði
Við verðum að leggja áherslu á
forvarnir, flúorlökkun, skorufyll-
ingar og fræðslu fyrir börn og ung-
linga og reynslan hefur sýnt að vel
er hægt að ná samkomulagi við
tannlækna um tannlækningar
barna. Viljinn þarf að vera til stað-
ar hjá embættismönnum og stjórn-
völdum. Með því að fara að tillögum
starfshóps Tannlæknafélags Ís-
lands um forvarnir og skiptingu í
áhættuhópa má leggja grunn að
góðri tannheilsu þjóðarinnar. Þess-
ar tillögur hafa legið í velferð-
arráðuneytinu frá hausti 2010.
Hættum að berja höfðinu við stein-
inn eða hnefanum í ræðupúltið og
hefjumst handa í sameiningu og af
viti. Átaksverkefni velferð-
arráðherra er hliðarspor sem engu
skilar til frambúðar.
Eftir Sigurð Bene-
diktsson og Krist-
ínu Heimisdóttur
»Núverandi
velferðarráðherra
getur breytt endur-
greiðslugjaldskrá SÍ
með einu pennastriki.
Kristín
Heimisdóttir
Höfundar eru tannlæknar. Sig-
urður er formaður Tannlækna-
félags Íslands og Kristín er gjald-
keri Tannlæknafélags Íslands.
Með einu pennastriki
Sigurður
Benediktsson