Morgunblaðið - 21.05.2011, Síða 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2011
Í gær var tilkynnt að Stykkishólms-
bær hefði verið útnefndur EDEN-
gæðaáfangastaður í Evrópu 2011
fyrir varðveislu og endurnýjun
menningarminja og metnaðarfulla
stefnu í sjálfbærri þróun í ferða-
þjónustu. Viðurkenninguna fær
bæjarfélagið vegna markvissrar
uppbyggingar gömlu húsanna í
bænum sem gengið hafa í endurnýj-
un lífdaga og öðlast nýtt hlutverk í
ferðaþjónustu, þar sem sjálfbærni-
og umhverfishugsun er í forgrunni.
Í rökstuðningi dómnefndar segir
meðal annars: „Stykkishólmur hef-
ur eflst sem áfangastaður fyrir
ferðamenn á síðustu árum og gegn-
ir ferðaþjónusta æ mikilvægara
hlutverki í atvinnusköpun og tekju-
öflun bæjarins. Við uppbyggingu
ferðaþjónustunnar hefur m.a. verið
tekið mið af hugmyndafræði sjálf-
bærrar þróunar um varðveislu
menningarminja, sögu og náttúru.
Eitt helsta aðdráttarafl Stykk-
ishólms eru gömlu húsin sem hafa
gengið í gegnum endurnýjun líf-
daga og gegna nú mörg hver ferða-
þjónustutengdu hlutverki.“
Fær verðlaun
vegna gömlu
húsanna
Flott Gömlu húsin eru bæjarprýði.
Kristinn Örn Björnsson píanó-
leikari heldur burtfar-
arprófstónleika sína frá Píanó-
skóla Þorsteins Gauta í
Norræna húsinu á sunnudag
kl. 17:00. Á efnisskránni verða
verk eftir J.S. Bach, L.W.
Beethoven , F. Chopin og A.
Skrjabin.
Kristinn Örn Björnsson er
fæddur 1990. Hann hóf nám í
píanóleik árið 2000 hjá Guð-
rúnu Birnu Hannesdóttur, en frá haustinu 2004
hefur hann stundað nám við Píanóskóla Þorsteins
Gauta undir leiðsögn Þorsteins Gauta Sigurðs-
sonar, fyrir utan veturinn 2007-2008, en þá nam
hann hjá Svönu Víkingsdóttur.
Tónlist
Burtfararpróf
Kristins Arnar
Kristinn Örn
Björnsson
Píanóleikarinn kunni Maria
João Pires heldur tvenna tón-
leika í Hörpu þann 8. og 10 júlí
næstkomandi. Á fyrri tónleik-
unum leikur hún píanókonsert
í d-moll k 466 eftir Mozart, en
hún varð einmitt heimþekkt
fyrir flutning sinn á verkum
hans. Á seinni tónleikunum
leikur hún einleiksverk. Pires
er portúgölsk og hóf feril sinn
sjö ára þegar hún flutti píanó-
konserta eftir Mozart og níu ára gömul hlaut hún
ein virtustu verðlaun Portúgala fyrir unga tónlist-
armenn. Hún hefur leikið með mörgum þekktustu
hljómsveitum heims og er sérstaklega þekkt fyrir
flutning sinn á píanókonsertum Mozarts.
Tónlist
Maria João Pires
leikur í Hörpu
Maria
João Pires
Í dag kl. 16:00 verður opnuð í
Listasafni ASÍ sýning á verk-
um Hörpu Árnadóttur en sýn-
inguna nefnir hún Mýrarljós.
Sýningin er liður í Listahátíð í
Reykjavík.
Á meðan Harpa dvaldi á
gestavinnustofunni Bæ síð-
asta sumar í einstöku um-
hverfi Skagafjarðar hélt hún
óformlega dagbók í máli og
myndum. Á staðnum urðu til
listaverk með hjálp ólíkra miðla, úti undir beru
lofti eða á gestavinnustofunni. Þá tók við frekari
úrvinnsla í málverkum á vinnustofunni í Reykja-
vík yfir veturinn. Sýningin er nátengd útgáfu
nýrrar bókar, Júní, sem kemur út 1. júní.
Myndlist
Mýrarljós Hörpu
Árnadóttur
Mynd úr
myndröðinni Júní.
Díana Rós A. Rivera
diana@mbl.is
Sýningin Sjónarmið – Á mótum
myndlistar og heimspeki verður
opnuð í dag í Listasafni Reykjavík-
ur, en hún er í senn sumarsýning
Listasafnsins og liður í Listahátíð í
Reykjavík. Á sýningunni er að finna
fjölmörg verk eftir íslenska og er-
lenda samtímalistamenn sem verða
skoðuð í öðru samhengi en áður hef-
ur verið gert enda er verkunum ætl-
að kveikja heimspekilega umræðu
og vera innlegg í hana.
Átta sýningarstjórar standa að
sýningunni en þeir eiga það sameig-
inlegt að vera heimspekimenntaðir
eða hafa fengist við heimspekileg
skrif. Samkvæmt fréttatilkynningu
hafa þeir verið í fararbroddi í um-
fjöllun og greiningu á íslenskri sam-
tímalist út frá heimspekilegu sjón-
arhorni. Þetta eru þau Aðalheiður
Lilja Guðmundsdóttir, Gunnar J.
Árnason, Gunnar Harðarson, Haf-
þór Yngvason, Jón Proppé, Margrét
Elísabet Ólafsdóttir, Oddný Eir Æv-
arsdóttir og Ólafur Gíslason.
Samræða um myndlist
Margrét Elísabet segir Hafþór
Yngvason, safnstjóra Listasafns
Reykjavíkur, eiga heiðurinn af hug-
myndinni að sýningunni en hann sé
sjálfur heimspekimenntaður list-
fræðingur með mikinn áhuga á
tengslum heimspeki og listar. Þegar
Hafþór hafi tekið við stöðu safn-
stjóra Listasafns Reykjavíkur hafði
hann búið og starfað í rúma tvo ára-
tugi í Bandríkjunum. Við heimkom-
una hafi hann veitt því eftirtekt að
margir þeirra sem fást við að skrifa
um myndlist hérlendis hafa bak-
grunn í heimspeki og nálgist mynd-
listina á heimspekilegum forsendum
í skrifum sínum. „Hafþór fékk þá
hugmynd að kalla þetta fólk saman
og fá það í samræðu um samband
heimspeki og myndlistar sem myndi
síðan leiða til veglegra greinaskrifa.
Greinarnar styðjast allar við
ákveðnar heimspekikenningar en
fjalla um leið um verk einstakra
listamanna. Verkin sem rötuðu inn í
greinarskrifin urðu síðan uppistaðan
í sýningunni Sjónarmið,“ segir Mar-
grét Elísabet. Hún bætir því við að
þessi leið til að velja verk saman á
samsýningu sé óvenjuleg þar sem
sýningarstjórarnir séu margir og
komi allir með sitt framlag. Í þessu
fyrirkomulagi felist ákveðin áhætta
því verkin séu ekki valin á sýninguna
með heildarsvip endanlegrar út-
komu í huga.
Spurningum svarað
Öll verkin hafa verið sýnd áður en
ekki endilega saman og birtast því
væntanlega í nýju samhengi á sýn-
ingunni. „Það var ekki lagt af stað
með ákveðið þema í byrjun annað en
það að spyrja hvernig heimspekin
mætir myndlistinni og myndlistin
heimspekinni. Það má segja að
greinarhöfundar reyni að svara fyrri
spurningunni í skrifum sínum en
svarið við síðari spurningunni verð-
ur vonandi að finna á sýningunni,“
segir Margrét Elísabet.
Sýningarskrá sýningarinnar inni-
heldur greinar eftir sjö af átta sýn-
ingarstjórum og segir Margrét El-
ísabet hana óhefðbundna þar sem
hún innihaldi nokkuð langar fræði-
greinar og líkist meira bók en sýn-
ingarskrá. Hún hefur einnig að
geyma ljósmyndir af verkum sem
verða á sýningunni auk greinar eftir
franskra heimspekinginn Jean-Luc
Nancy sem hann skrifar sérstaklega
fyrir bókina sem gefin verður út
samhliða sýningunni. Sýningin
stendur til 4. september.
Heimspeki og myndlist mætast
Morgunblaðið/Eggert
Samræður Átta sýningarstjórar standa að sýningunni Sjónarmiðum í Listasafni Íslands en þeir eiga það sameig-
inlegt að vera heimspekimenntaðir eða hafa fengist við heimspekileg skrif.
Sýningin Sjónarmið
– Á mótum myndlistar
og heimspeki verður
opnuð í dag í Listasafni
Reykjavíkur
Karlakór Reykjavíkur fagnar 85 ára afmæli sínu á
tónleikum í Langholtskirkja á sunnudag kl. 16:00.
Auk kórsins koma fram á tónleikunum eldri fé-
lagar karlakórins, Drengjakór Reykjavíkur,
hljóðfæraleikararnir Anna Guðný Guðmunds-
dóttir, Lenka Mátéová, Ásgeir H. Steingrímsson
og Eiríkur Örn Pálsson og söngvararnir Bergþór
Pálsson og Sveinn Dúa Hjörleifsson.
Karlakór Reykjavíkur var stofnaður 3. janúar
1926. Aðalhvatamaður að stofnun hans var Sig-
urður Þórðarson tónskáld, sem stjórnaði kórnum
samfellt, að einu ári undanskildu, til ársins 1962.
Nánast frá stofnun hefur kórinn farið í söngferðir,
fyrst innanlands en frá 1935 hefur hann farið í
fjölmargar ferðir til annarra landa og sungið á
hinum Norðurlöndunum og víðar í Evrópu, auk-
inheldur sem hann hefur farið í ferðir vestur um
haf og eins alla leið til Kína.
Stjórnendur kórsins í gegnum tíðina hafa verið
Sigurður Þórðarson, þá Páll Ísólfsson, Jón S.
Jónsson, Páll Pampichler Pálsson og Catherine
Willams. Núverandi söngstjóri er Friðrik S.
Kristinsson.
Á efnisskrá afmælistónleikanna eru ýmis þekkt
kórlög, m.a. syngur karlakórinn ásamt eldri fé-
lögum lögin Brennið þið vitar og Hrausta menn,
Hallelujakórinn eftir Handel verður fluttur með
orgeli, trompetum og pákum, Sveinn Dúa syngur
með kórnum rússneska lagið Áfram veginn, Berg-
þór Pálsson syngur lag úr óperunni Porgy and
Bess ásamt kórnum og Drengjakór Reykjavíkur
flytur þrjú lög.
Karlakór Reykjavíkur 85 ára
Morgunblaðið/Kristinn
Afmælisgleði Frá æfingu Karlakórs Reykjavík-
ur, en kórinn fagnar 85 ára afmæli á árinu.
Afmælistónleikar
karlakórsins í Langholts-
kirkju á sunnudag
Þegar Justin kemur
til Los Angeles frá
New York eyða þau oft
miklum tíma saman 51
»
Vorsýning Iðnskólans í Hafnarfirði
verður opnuð í dag kl. 13:00 af for-
seta Íslands í húsnæði skólans við
Flatahraun 12. Sýningin er árlegur
viðburður þar sem tekin er saman
vinna nemenda í iðn- og hönn-
unargreinum yfir skólaárið. Við
opnunina frumflytja útskriftar-
nemar af listnámsbraut „hreyf-
anlega sinfóníu“, þar sem leikið er á
hljóðfæri sem knúin eru með afli
reiðhjóla og nemendur í hár-
greiðsludeild verða með lifandi hár-
greiðslu og tískusýningu.
Meðal hluta á sýningunni að þessu
sinni má nefna sérsmíðaða hágæða-
magnara, plasmahátalara og gam-
aldags „gufu-“ eða „hamfara-
útvarp“. Tækniteiknarar sýna loka-
verkefni sín, byggingardeild sýnir
ferlið í smíði húsgagna og líkan af
Krísuvíkurkirkju sem nemendur eru
að endurreisa. Ljóð eftir nemendur
starfsbrautar verða sýnd í tengslum
við útkomu ljóðabókar auk þess sem
fjöldi smíðisgripa úr málmi, tré og
plasti verður á sýningunni.
Sýningin verður opin daglega frá
21. maí til og með 29. maí, frá kl.
13:00 til 16:00.
Vorsýning
Iðnskólans í
Hafnarfirði
Sýning Einn smíðisgripa úr vetr-
arstarfi Iðnskólans í Hafnarfirði.