Morgunblaðið - 09.07.2011, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 2011
BAKSVIÐ
Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
„Við tökum eftir því að hreinsunar-
starf í Reykjavíkurborg er aðeins
hægara núna en fyrri ár og sóðaskap-
ur er kannski aðeins meiri núna en
oft áður,“ segir Þórir Garðarsson,
sölu- og markaðsstjóri ferðaþjón-
ustufyrirtækisins Iceland Excursion.
Fyrirtækið hefur umsjón með
margvíslegum ferðum um borgina og
út á land sem allar byrja á Lækjar-
torgi. Morgunblaðið hefur undan-
farna daga birt fréttir af því að vegna
niðurskurðar hjá Reykjavíkurborg
og Vegagerðinni sé minna um slátt og
umhirðu á ýmsum svæðum í borginni
en fyrri ár.
„Allir sem vinna í ferðaþjónustu
hafa hagsmuni af því að Reykjavík sé
snyrtileg enda hefur það verið hluti af
aðdráttarafli borgarinnar. Hún hefur
það orð á sér að vera hreinleg og það
er mikilvægt að við töpum ekki því
orðspori,“ segir Þórir.
Hann segir jafnframt að um 80.000
manns nýti sér þjónustu Iceland Exc-
ursion á ári.
„Við förum með mörg hundruð
manns á hverjum degi á sumrin í
ferðir út á land. Við förum jafnframt í
bæjarferð um Reykjavík á hverjum
morgni allt árið um kring. Ég vil þó
taka fram að við teljum alls ekki að
um hreina vanrækslu sé að ræða og
vitum að borgarstarfsmenn gera sitt
besta. Okkur finnst hins vegar mik-
ilvægt að það verði ekki frekar dregið
úr hreinsuninni. Okkar starfsemi er
hérna í hjarta miðborgarinnar og við
leggjum áherslu á að umhverfið sé
snyrtilegt.“
Angrar okkur ekki
Þórarinn Þór, sölu- og markaðs-
stjóri Reykjavík Excursion – Kynn-
isferða segist ekki telja að órækt í
Reykjavík hafi mikil áhrif á útlend-
inga eða ferðaþjónustu í borginni.
„Þetta er ekki eitthvað sem fer í
taugarnar á okkur. Náttúran verður
bara að hafa sinn gang og við getum
ekki látið það angra okkur. Reykja-
vík er jafnfalleg þó hún sé dálítið loð-
in,“ segir Þórarinn og bætir við að
einstaklega snyrtilegt umhverfi sé
ekki það sem útlendingar sækist sér-
staklega eftir að upplifa hér á landi.
Sláttur í borginni er almennt á veg-
um Reykjavíkurborgar en meðfram
þjóðvegum innan borgarmarkanna
sér Vegagerðin um að greiða fyrir og
annast sláttur. Á svæðum lengra frá
vegunum hefur Reykjavíkurborg
umsjón með slættinum.
Síðustu ár hafa flest svæði iðulega
verið slegin í 4-6 skipti yfir sumarið
en í ár verða þau flest slegin 2-4 sinn-
um vegna niðurskurðar. Af þessum
sökum blasir órækt við á mörgum
stöðum í borginni en sláttur er þó víð-
ast hvar hafinn.
Reykjavík verði áfram snyrtileg
Talsmenn ferðaþjónustu segja að Reykjavík megi ekki missa orðspor sitt sem hrein borg „Hluti af
aðdráttarafli borgarinnar“ Niðurskurður veldur því að gras er sjaldnar slegið og umhirða er minni
Morgunblaðið/Ómar
Njólar Njólaskógurinn hefur nú verið fjarlægður við Eiðisgranda og við hlaupurum blasir snyrtilegra umhverfi.
„Það getur auðvitað myndast
ákveðin hætta ef ekki er sleg-
ið. Það getur til að mynda
myndast sina þegar líður á
sumarið ef ekki er slegið og þá
getur mjög auðveldlega kvikn-
að í, til dæmis ef einhver fleyg-
ir frá sér sígarettu,“ segir
Steinn Kárason garðyrkjufræð-
ingur.
Hann segir jafnframt að það
hafi alltaf verið svæði í Reykja-
vík sem ekki hafi verið slegin.
„Þetta er ekki eitthvað sem er
bundið núverandi borgarstjórn.
Það hafa alltaf verið óslegin
svæði.“
Steinn segir jafnframt að
áhrif þess að minna sé um
slátt í borginni geti verið þau
að njóli, fíflar og annað illgresi
breiðist frekar út.
„Illgresi getur þá náð að
breiða úr sér og skotið rótum
inni á einkalóðum fólks. Við-
brögð hjá almenningi hafa jafn-
an verið þau að reyna að eyða
illgresinu og sumir grípa þá til
eiturefna, sem er algjör firra.
Það á að reyna að fyrirbyggja
illgresi en ekki slást við það
með eiturefnum.“ haa@mbl.is
„Eiturefnin
eru firra“
STEINN KÁRASON
Flúðir | Fyrstu kartöflur sumarsins
eru farnar að koma upp úr görðum
á Suðurlandi. Á bænum Auðsholti 1
í Hrunamannahreppi var byrjað að
taka upp kartöflur á fimmtudaginn.
Þær eru ræktaðar í upphituðum
garði sem er um einn hektari að
stærð. Garðurinn er hitaður upp
með hveravatni, sem nóg er af á
bænum. Plaströrum hefur verið
komið fyrir ofan í moldinni. Sett var
niður í þriðju viku maí og breytt yf-
ir með akrýldúk og plastdúk. Það
eru þeir Ingibjörn Öxndal Reynis-
son og Ari Jónsson bændur sem eru
að taka upp. Kartöflurnar eru að
vísu ekki stórar en þetta lítur vel
út. Farið er að selja þær í Bænda-
markaðinum á Flúðum en síðar
munu þær koma á markað á
Reykjavíkursvæðinu. Bændur á
þessum bæ eru mikið áhugafólk um
kartöflurækt en allnokkuð er að
auki ræktað í köldum garðlöndum.
Fram hefur komið í fréttum að
kartöflusprettan hafi farið hægt af
stað í sumar vegna kuldanna.
„Þetta er alls staðar þremur vikum
á eftir venjulegu sumri,“ var haft
eftir Bergvin Jóhannssyni, bónda á
Áshóli í Grýtubakkahreppi og for-
manni Landssambands kart-
öflubænda, hér í blaðinu, þegar
hann var spurður um kartöflu-
sprettuna. Ef veður verður gott í
júlí, ágúst og september mun ræt-
ast úr, að mati Bergvins, en þó sé
fyrirsjáanlegt að ekki verði mikil
kartöfluuppskera í haust.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Uppskera Ingibjörn Öxndal Reynisson og Ari Jónsson, bændur í Auðsholti 1, með fyrstu uppskeru sumarsins.
Fyrstu kartöflurnar teknar upp
Bændur á Auðsholti 1 í Hrunamannahreppi tóku upp úr
upphituðum garði Kartöflur almennt seint á ferðinni
Hjalti Geir Erlendsson
hjaltigeir@mbl.is
Héraðsdómur Reykjaness hefur
dæmt 23 ára gamlan karlmann,
Junierey Kenn Pardillo Juarez, til
fangelsisvistar í sex og hálft ár.
Hann var fundinn sekur um stór-
fellt brot á fíkniefnalöggjöfinni
með innflutningi á nærri 37 þúsund
e-töflum og 4.471 skammti af LSD.
Þetta mun vera eitt stærsta þekkta
smygl á e-töflum hingað til lands og
aldrei áður hefur verið lagt hald á
jafnmarga LSD-skammta í einu.
Götuverðmæti e-taflnanna var talið
vera yfir 70 milljónir króna.
Lét sér í léttu rúmi liggja að
kanna magn og tegund efnanna
Juarez var handtekinn á Kefla-
víkurflugvelli við komuna til lands-
ins hinn 23. mars síðastliðinn. Toll-
verðir höfðu fundið fíkniefnin í
ferðatöskum hans, en þau voru fal-
in undir fölskum botni. Juarez var
úrskurðaður í gæsluvarðhald sam-
dægurs. Með manninum í för var
kona og hún var einnig handtekin
og úrskurðuð í gæsluvarðhald.
Henni var þó sleppt eftir viku í
haldi og var ekki ákærð í málinu.
Málavextir voru með þeim hætti
að Juarez hafði farið til Kanaríeyja
í því skyni að sækja fíkniefni og
flytja þau til Íslands. Fyrir þetta
átti fíkniefnaskuld hans að lækka
um nokkur hundruð þúsund krón-
ur. Hann sagði að ekki hefði verið
rætt um hve mikið magn hann ætti
að flytja til landsins. Þá hafi hann
haldið að efnin væru kannabisefni.
Héraðsdómur telur varhugavert að
fullyrða um að hugur Juarez hafi
staðið til að flytja umræddar teg-
undir fíkniefna í svo miklu magni
sem um ræðir. Dómstóllinn telur
Juarez þó bera fulla refsiábyrgð í
málinu þar sem hann hafi látið sér í
léttu rúmi liggja hvaða fíkniefni
var um að ræða og magn þeirra.
Juarez hélt því fram fyrir dómi
að e-töflur væru ekki eins hættu-
legar og talið hafi verið í dóma-
framkvæmd og því ætti að líta til
þess við ákvörðun refsingar. Máli
sínu til stuðnings vísaði Juarez til
greinar í tímaritinu Addiction um
að efnið valdi ekki vitrænni skerð-
ingu. Dómurinn féllst ekki á þau
rök. Með brotinu rauf Juarez skil-
orðsdóm sem hann fékk árið 2008.
Hann er með nokkurn sakaferil að
baki en árið 2006 fékk hann tveggja
ára skilorðsbundinn fangelsisdóm
fyrir þjófnað, tilraun til þjófnaðar
og fíkniefnalagabrot. Þá fékk hann
þriggja mánaða skilorðsbundinn
fangelsisdóm árið 2008 fyrir þjófn-
að og fíkniefnalagabrot. Juarez
hefur einnig gengist undir sektar-
greiðslur vegna fíkniefnalaga-
brota.
Sekur um stórfelldan
fíkniefnainnflutning
Efaðist um skaðsemi e-taflna
Dóp Tugir milljóna voru í spilunum.