30. júní - 15.06.1968, Síða 1

30. júní - 15.06.1968, Síða 1
\ Halldóra °g Kristján Eldjárn Maður þjóðariunar ForsetaembættiÖ er æðsta embætti þjóðarinnar og forsetinn sjálfur einingartákn landsmanna. Með beinu kjöri er ætlazt til að þjóðin ráði milliliðalaust vali þess manns, sem hún getur treyst til að rækja hið tigna embætti sem fulltrúi hennar allrar en einskis flokks, hagsmunahóps né stéttar. Eins og forseta- embættinu er háttað, liggur í augum uppi, að það á að vera endanleg trygging fyrir fyllsta lýðræði handa fólkinu. Forseti valinn með beinu kjöri landsmanna er leiðtogi, sem reynir á, ef sundurþykki stjórnmálamannanna horfir til vandræða. Póli- tísk flokkaskipting er eðlileg í lýðræðisþjóðfélagi og pólitískur ágreiningur óhjákvæmilegur. Og það er eitt af hlutverkum stjórnmálamannanna að sjá um, að andstæðar stjórnmálaskoð- anir eigi sér rödd á vettvangi þjóðmálanna. En um forseta sinn verður þjððin að geta sameinazt, og hann verður ávallt að tala máli hennar heillar og óskiptrar. Hann er tákn þess, að við erum ein þjóð, þrátt fyrir skiptar skoðanir í þjóðmálum. Stjórnmála- mennirnir eru hins vegar tákn þeirrar skoðanaskiptingar. Því er nú mjög haldið á loft, að við komandi forsetakjör sé valið á milli þaulæfðs stjórnmála- og lagamanns og sérhæfðs vísindamanns með verklega kunnáttu í sínum fræðum. Sú skil- greining ristir grunnt. Hinn 30. júní er raunverulega kosið milli fulltrúa stjórnmálamannanna og fulltrúa þjóðarinnar. Ekki skulu brigður bornar á hæfileika dr. Gunnars Thorodd- sens sem stjórnmálamanns. En með framboði dr. Kristjáns Eld- járns gefst þjóðinni kostur á að velja 1 hið æðsta embætti óháðan. fulltrúa þess bezta, sem hún á sameiginlegt. Uppruni hans og persónuleiki, starfsferill hans og verkleg fræðimennska í þeim greinum, sem dýpst snerta menningarlega sameign fólksins, gera hann frábærlega vel til þess fallinn að tala máli þjóðar sinnar í samræmi við sögu hennar, menningu og lífsháttu í þessu landi. .. Ragnar Jónsson.

x

30. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 30. júní
https://timarit.is/publication/815

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.