Morgunblaðið - 06.10.2011, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2011
SVIÐSLJÓS
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Öryggi gesta í Þríhnúkagíg verður
í hávegum haft og heimsókn þang-
að verður ekki áhættusöm, segir
Björn Ólafsson, framkvæmdastjóri
Þríhnúka ehf. sem vinnur að því að
gera gíginn að ferðamannastað.
Augljóst er að hrunið hefur úr
veggjum gígsins en Björn segir
óvíst hvenær það hrun hafi orðið,
en líklegt að það hafi gerst strax
við myndun gígsins. Hann hafi
aldrei orðið var við hrun í gígnum í
þeim fjölmörgu ferðum sem hann
hefur farið ofan í gíginn á sl. 20 ár-
um, né heyrt af því hjá öðrum leið-
öngrum. Hugmynd Þríhnúka-
manna er sú að gera um 300 metra
jarðgöng frá aðkomuhúsi að gígn-
um. Göngin myndi opnast í 50-65
metra hæð frá gígbotninum og þar
gætu gestir gengið út á pall og virt
fyrir sér hvelfinguna. Enn er verið
að meta hvar best sé að staðsetja
jarðgangaopið.
Rannsóknir á jarðlögum sýna að
á kafla, fljótlega eftir að göngin
byrja, þarf að styrkja jarðgöngin
með sprautusteypu. Nær gígnum
er hins vegar farið í gegnum grá-
grýti sem er gott berglag fyrir
göng. Gert er ráð fyrir að jarð-
göngin verði boruð með hefð-
bundnum hætti, þ.e. borvagnar
muni bora göt í bergið og síðan
yrði sprengt, að sögn Björns. Ekki
sé talið að borunin hafi nokkur
áhrif á gíginn. Á lokametrunum
yrði ekki sprengt heldur yrði síð-
asta haftið borað og fleygað burt.
Hugsanlega U-laga
Björn segir að staðsetning palls-
ins verði einnig valin með tilliti til
þess að upplifunin gesta verði sem
mögnuðust. Hugmyndir hafa verið
uppi um að smíða hringstiga sem
myndi liggja niður á botninn og
þar gæti fólk gengið um en Björn
segir að ekkert sé ákveðið í þeim
efnum. Slíkt myndi vera áhrifa-
ríkara en ýmis álitamál séu uppi
varðandi öryggi og hönnun slíks
stiga. Taka verði afstöðu til þess
hvað raunhæft sé að bjóða upp á
og hvort það samræmist hugmynd-
um Þríhnúka um hófstillta nálgun.
„Ég efast ekki um að það væri
áhrifamesta upplifunin að síga nið-
ur á botn í körfu en það varla
raunhæf leið,“ segir hann.
Ýmsar hugmyndir hafa einnig
verið nefndar um pallinn sem mun
skaga út í gíghvelfinguna. Ein er
sú að pallurinn verði U-laga og
verði að hluta til opinn í miðjunni.
Einnig hefur verið rætt um að
gera tvö jarðgöng þannig að þeir
sem eru á leið inn í gíginn fari aðra
leið en þeir sem eru á leið út. Ekki
hefur verið ákveðið hvernig þetta
verður útfært.
Gatið yrði að skugga
Björn leggur áherslu á að þó að
gat verði gert í gíghvelfinguna
verði það lítið og aðeins brotabrot
af heildar veggjarfleti. Verði
rekstri hætt sé einfalt mál að fjar-
lægja pallinn. Þá muni gatið falla
sem skuggi inn í vegginn.
Ferðin í eldfjallið
verður örugg
Bora síðustu metrana að gíghvelfingunni sérlega varlega
Ljósmynd/Kristján Maack
Hyldýpi Sigið ofan í Þríhnúkagíg. Um 120 metrar eru niður á botn.
Þríhnúkagígur
Uppdráttur VSÓ frá árinu 2009
*Ekki er víst að
göngin verði
Nákvæmlega á
þessum stað
Jarðgangaleið*
Strompur
Gígop
Margar ferðir hafa verið farnar í Þríhnúkagíg og stund-
um hefur legið við alvarlegum slysum.
Það var einhvern tíma fyrir árið 1980 sem Pétur Ás-
björnsson fór með námskeiðshóp frá Íslenska alpaklúbbn-
um að Þríhnúkagíg með það í hyggju að síga með hópinn
ofan í. Pétur segir að þá hafi ekki legið fyrir hversu djúp-
ur hann var en talað hefði verið um 105 metra. Hann batt
saman þrjár klifurlínur sem hver var á 40-45 metrar og
festi tryggilega uppi áður en hann lagði af stað niður.
Þegar Pétur kom niður sá hann að það vantaði 1 til 1,5
metra upp á að línan næði niður á hellisgólfið og hann ákvað að stökkva rest-
ina. Hann hafði hins vegar ekki hugsað út í að klifurlínur eru teygjanlegar.
„Og um leið og ég leysti mig úr línunni skaust hún upp,“ segir hann. „Og þú
getur ímyndað þér hvað svona jólasveinn hugsaði þegar línan þaut upp.“ Pét-
ur náði ekki til línunnar en hann hlóð í skyndingu litla vörðu og með því að
stíga upp á hana tókst honum, rétt svo, að teygja sig í línuna.
Féllu 5-10 metra þegar kápan á línunni slitnaði
Haustið 1989, að því viðmælendur minnir, var Pétur í
ferð með Hjálparsveit skáta í Reykjavík þegar annað og
ekki síður hrollvekjandi atvik varð í gígnum, í þetta skipt-
ið þegar verið var að klifra aftur upp. Línur sem þessar
eru annars vegar úr kápu og hins vegar úr kjarna. Mesta
hættan við að klifra upp úr gígnum er að línurnar skemm-
ist við að nuddast utan í bergvegginn efst í hellinum, fyrst
skemmist kápan en svo kjarninn. Á undan Pétri upp fór
Anna María Lind Geirsdóttir. Bæði notuðu sérstök tól til
að klifra upp línur, svokallaða júmmara, sem eru föst við
línurnar. Þegar Anna María var komin 90-100 metra upp slitnaði kápan og
við það rann hún niður eftir kjarnanum. Bæði Anna María og Pétur hröpuðu,
líklega um 5-10 metra, áður en kápan krumpaðist undan þunga Önnu Maríu
og fallið stöðvaðist. Pétur segist hafa talið að sín síðasta stund væri nú upp
runnin. „Að segja að maður sjái lífið fyrir sér er tóm vitleysa. Það eina sem
ég hugsaði var: Jæja, nú er þetta búið,“ segir hann. Önnu Maríu brá ekki síð-
ur. „Við sáum ekki neitt, maður sá bara þar sem höfuðljósið lýsti og ég sá
bara gulu hanskana mína. Ég reyndi að grípa línuna með höndunum en það
virkaði auðvitað ekki neitt.“ Fallið hafi virst endalaust. Aftur lagði Anna af
stað upp og nú þurfti hún að klifra á berum línukjarnanum sem var ekki
beinlínis traustvekjandi.
Skaust 10-15 metra beint upp í loftið
Árið 1991 var Einar Stefánsson, sem vinnur nú að því
ásamt fleirum að opna gíginn fyrir almenning, í rannsókn-
arferð í gígnum. Hann klifraði síðan upp línuna en jafn-
framt var hún dregin upp á handknúnu spili. Einhvern
veginn hafði línan skorðast á bak við stein og var því föst.
Þeir sem voru á spilinu vissu það ekki og skildu ekkert í
því hvers vegna svo erfitt væri að draga línuna inn. Á
meðan teygðist á línunni en línur sem þessar geta teygst
um 40-50%, að sögn Einars. Loks var hlaupið til niðri og
línan losuð. Við það skaust Einar 10-15 metra beinustu
leið upp í loftið og húrraði svo aftur niður sömu vegalengd. Þar dúaði hann í
smá stund. „Það var svo mikið myrkur að ég vissi ekkert hvort ég væri á leið
upp eða niður.“
Einar bendir á að með því að opna gíginn fyrir almenning dragi úr hætt-
unni sem myndast í hvert skipti sem sigið er þar ofan í.
Einn á gígbotninum
og náði ekki í línuna
Legið við slysum í Þríhnúkagíg
Umsögn Orkuveitu Reykjavíkur um
tillögu að matsáætlun fyrir fram-
kvæmdir við Þríhnúkagíg er nei-
kvæð. OR telur að framkvæmdin og
starfsemin sem henni fylgir muni
fela í sér óviðunandi hættu á meng-
un grunnvatns og vatnsbóla höfuð-
borgarsvæðisins.
Þríhnúkagígur er á svæði sem er
skilgreint sem fjarverndarsvæði A.
Áhyggur OR lúta ekki síst að auk-
inni umferð um Bláfjallaveg. Í um-
sögn sinni segir að auk þess sem
áhættan sé „algerlega óviðunandi“
geti miklar framkvæmdir á svæðinu
haft slæm áhrif á ímynd fyrir öruggt
neysluvatn.
Hólmfríður Sigurðardóttir, um-
hverfisstjóri OR, segir að í umsögn-
inni felist ábendingar sem fram-
kvæmdaraðili muni vinna úr.
Fyrirhugaðar framkvæmdir við
Þríhnúkagíg eru ekki eina starfsem-
in á svæðinu sem OR hefur áhyggj-
ur af. Hólmfríður bendir á að OR
hafi margoft lýst yfir áhyggjum af
starfsemi á skíðasvæðinu í Bláfjöll-
um. Væri sú starfsemi ekki á staðn-
um og óskað yrði eftir leyfi til að
hefja hana myndi OR ekki taka vel í
þá hugmynd og myndi líta svo á að
hún væri óviðunandi.
Í umsögn OR er lýst yfir áhyggj-
um af samlegðaráhrifum skíðasvæð-
anna, Þríhnúkagígs og hugsanlega
fleiri rekstraraðila sem myndu vilja
selja ferðamönnum þjónustu.
Björn Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Þríhnúka ehf., seir að svo
megi standa að framkvæmdum við
Þríhnúka að vatnsbólum stafi ekki
hætta af. Hann minnir á að umsögn
OR byggi á tillögu að matsáætlun.
Eftir sé að gera ýmsar rannsóknir
og leggja fram meiri gögn áður en
eiginlegt umhverfismat fer fram.
Eftir sé að greina möguleg um-
hverfisáhrif, hvaða mótvægisað-
gerðir séu mögulegar o.s.frv. Eðli-
legt sé að ljúka þessu ferli áður en
menn dragi ályktanir um áhrif á
umhverfið.
Björn bendir einnig á niðurstöður
áhættumats vegna vatnsverndar á
Bláfjallasvæðinu sem verkfræðistof-
an Mannvit vann fyrir Samtök sveit-
arfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Þar
hafi verið komist að þeirri niður-
stöðu að umferð um svæðið gæti tí-
faldast, án þess að það hefði áhrif á
vatnsvernd höfuðborgarsvæðisins.
Áhyggjur af mengun
OR telur áhættuna algerlega óviðunandi Þríhnúkamenn
segja hægt að koma í veg fyrir mengun Matsvinnan eftir
Vatnsverndarsvæði höfuðborgarsvæðisins
Kortagrunnur: Loftmyndir ehf.
Þríhnúkagígur
Vatnsvernd,
fjarsvæði A
Vatnsvernd,
Fjarsvæði B
Brunnsvæði
Grannsvæði