Morgunblaðið - 06.10.2011, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2011
Kurt Wallander lögreglu-foringi er orðinn sex-tugur. Sumir er sprækirog glaðir á þeim aldri
en ekki Wallander. Að segja að
honum líði ekki vel er vægt til
orða tekið. Wallander er syk-
ursjúkur og er
orðinn gleyminn.
Ekki er betur
komið fyrir ýms-
um öðrum per-
sónum bók-
arinnar.
Fyrrverandi eig-
inkona Walland-
ers er sífull og
gömul ástkona
hans er fársjúk. Góðu fréttirnar
eru reyndar þær að Wallander er
orðinn afi en á móti kemur að
tengdafaðir dóttur hans hverfur
og síðan hverfur tengdamóðirin
einnig. Grunur leikur á að bæði
séu látin. Þannig að Wallander
hefur litla ástæðu til að vera
hress. Hann hefur vitanlega rann-
sókn þar sem ýmislegt óvænt
kemur í ljós.
Mankell er góður höfundur, um
það þarf ekki að deila. Tilvist-
arþunginn í þessari bók er hins
vegar með slíkum ósköpum að erf-
itt er annað en að fórna höndum
með reglulegu millibili. Stöðugar
hugleiðingar Wallanders um skelf-
inguna sem fylgir því að eldast og
vita af nálægð dauðans verða end-
urtekningarsamar. Það getur ekki
verið svona slæmt að vera sextug-
ur. En málið reynist flóknara en
maður ætlar í byrjun og Mankell
heldur ótrauður áfram að leggja
píslir á söguhetju sína. Þetta gerir
hann af svo miklu kaldlyndi að
manni stendur ekki alveg á sama.
Það er merkilegt hvað þessi höf-
undur er vondur við aðalpersónu
sem hefur fært honum frægð og
frama. Sakamálið sjálft er flókið
og alveg ágætlega spennandi,
næstum hressilegt miðað við ann-
an drunga, og heldur lesandanum
vel vakandi. Mankell hefði mátt
veita því meira rými um leið og
hann hefði betur dregið úr yf-
irþyrmandi lífsþreytu Wallander.
Hinn flinki Henning Mankell er
ekki upp á sitt allrabesta í þessari
bók. Hann er hins vegar það góð-
ur höfundur að þegar hann er
bara í meðallagi miðað við eigin
getu þá er hann samt betri en
flestir aðrir norrænir sakamála-
höfundar.
Vart þarf að taka fram að bók-
inni lýkur á þann hátt að aðdá-
endur Wallander eru líklegir til að
finna fyrir votti af tilvist-
arþunglyndi.
Þjáningar Wallanders
Órólegi maðurinn Eftir Henning Mankell. Útgefandi Mál og
menning. 472 bls.
KOLBRÚN
BERGÞÓRSDÓTTIR
BÆKUR
Lífsþreyta Henning Mankell hefur
skrifað síðustu bókina um Kurt
Wallander.
Á morgun kl. 18.00 verður opnað
nýtt gallerí í Sóltúni 1, Gallerí
Brek, sem Sigvaldi Viggósson rek-
ur.
Fyrsta sýning gallerísins verður
samsýning átta listamanna sem
tengjast galleríinu.
Á sýningunni verða verk eftir
listamennina Sigurð Örlygsson,
Tryggva Ólafsson, Magnús Kjart-
ansson, Hörpu Björnsdóttur,
Magdalenu Kjartansdóttur, Hauk
Dór, Sigurð Þóri Sigurðsson og
Tolla.
Samsýning átta lista-
manna í Galleríi Breki
Magnús Kjartansson, myndlistarmaður
Þessa dagana koma út í Þýskalandi,
í tengslum við bókakaupstefnuna í
Frankfurt, viðamiklar bækur um
list og feril myndlistarkvennanna
Rúríar og Gabríelu Friðriksdóttur.
Bókin um Rúrí ber nafn hennar
og kemur út hjá Hatje Cantz í rit-
stjórn Christians Schoens. Auk
hans skrifa Laufey Helgadóttir, Do-
rothea van der Koelen, Halldór
Björn Runólfsson og Gunnar J.
Árnason. Er þetta fyrsta yfirlits-
verkið um listsköpun Rúríar.
Bókin Crepusculum kom út um
leið og samnefnd sýning Gabríelu
var opnuð í Schirn Kunsthall í
Frankfurt í síðustu viku. Ritstjórar
eru Matthias Wagner K og Max
Hollein en útgefandi Kehrer. Auk
verka Gabríelu eru textar margra
höfunda í bókinni, sem er 308 bls.
Bækur um
list Rúríar
og Gabríelu
Gabríela
Friðriksdóttir
Rúrí
Kortasalan í fullum gangi!
Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F
Íslenski dansflokkurinn
568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Fullkominn dagur til drauma (Stóra svið)
Fös 7/10 kl. 20:00
Sun 9/10 kl. 20:00
Sun 23/10 kl. 20:00
Sun 30/10 kl. 20:00
Sun 6/11 kl. 20:00
Leikhúsin í landinu
www.mbl.is/leikhus
Tjarnarbíó
5272100 | tjarnarbio@leikhopar.is
Eftir Lokin
Lau 29/10 kl. 20:00
Fim 3/11 kl. 20:00
Lau 5/11 kl. 20:00
Lau 12/11 kl. 20:00
Fim 17/11 kl. 20:00
Fös 18/11 kl. 20:00
Fös 25/11 kl. 20:00
Lau 26/11 kl. 20:00
Fös 2/12 kl. 20:00
Lau 3/12 kl. 20:00
Svanurinn
Sun 6/11 kl. 14:00 U
Sun 13/11 kl. 14:00 U
Sun 13/11 aukas. kl. 17:00
Sun 20/11 kl. 14:00 U
Sun 20/11 aukas. kl. 17:00
Sun 27/11 kl. 14:00 U
Söngleikir með Margréti Eir
Lau 8/10 kl. 20:00
Fös 21/10 kl. 20:00
Lau 22/10 kl. 20:00
Sun 30/10 kl. 20:00
Lau 19/11 kl. 20:00
Lau 10/12 kl. 20:00
Miðasala sími: 571 5900
L AU 01 /10
L AU 08/10
FÖS 14/ 10
L AU 1 5/ 10
LAU 22/10
L AU 29/10
FÖS 04/11
L AU 05/11
L AU 18/11
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
-Elísabet Brekkan, Fréttablaðið.
Ö
Ö
Ö
U
Ö
U
Ö
Ö
Ö
Hjónabandssæla
Hrekkjusvín – söngleikur
Fös 14 okt kl 20 frumsýning
Lau 22 okt kl 20 opnunartilboð
Sun 23 okt kl 20 opnunartilboð
Fim 27 okt kl 20
Fös 28 okt kl 20
Fös 07 okt. kl 20 U
Lau 08 okt. kl 20 U
Sun 09 okt. kl 20 Ö
Lau 15 okt. kl 20 Ö
Sun 16 okt. kl 21