Morgunblaðið - 06.10.2011, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2011
Hólmfríður Garðarsdóttir, hjúkrun-
arfræðingur Rauða kross Íslands,
hefur hafið störf á vegum Rauða
krossins í Kúrdahéruðum í Írak.
Nú eru þrír íslenskir hjúkrunar-
fræðingar við störf í landinu. Auk
Hólmfríðar eru Áslaug Arnoldsdóttir
og Magna Björk Ólafsdóttir við verk-
efni í Írak á vegum Rauða krossins.
Hólmfríður er einn reynslumesti
sendifulltrúi Rauða kross Íslands.
Hún hefur meðal annars starfað. á
vegum Rauða krossins í Afganistan,
Bosníu-Hersegóvínu, Tansaníu,
Norður-Kóreu, Súdan, Íran, Indóne-
síu, Mósambík og Malaví. Hún hefur
meistaragráðu í lýðheilsu í þróunar-
löndum.
Meginverkefni Hólmfríðar í Írak
verða að fylgjast með frumheilsu-
gæslu á svæðinu ásamt því að heim-
sækja fangelsi og huga að velferð
fanga.
Á síðasta ári heimsóttu starfsmenn
Alþjóða Rauða krossins 23.000 fanga í
haldi yfirvalda í Írak og 3.500 í haldi
stjórnvalda í Kúrdahéruðum. Þá hef-
ur Rauði krossinn þjálfað hundruð
lækna og hjúkrunarfræðinga í land-
inu.
Þrír hjúkrunarfræð-
ingar við störf í Írak
Írak Hólmfríður Garðarsdóttir heimsækir fæðingardeild í Írak.
Laugardaginn 8. október verður
haldin í Félagsgarði matarhátíðin
Krásir í Kjósinni. Kjósarstofa
stendur að hátíðinni en þar munu
matreiðslumeistararnir Ólöf Jak-
obsdóttir og Jakob H. Magnússon
töfra fram krásir úr hráefni beint
frá býlum. Kl. 19 verður sérstök
kynning á nýjasta „landnemanum í
Kjós“, grjótkrabba, sem Halldór
Pálmar Halldórsson líffræðingur
sér um. Framleiðendur í Kjós munu
jafnframt kynna framleiðsluvörur
sínar og bjóða gestum að bragða á.
Borðhald hefst kl. 20 og kostar
kvöldverðurinn 6.500 kr. Borða-
pantanir sendist á netfangið kjos-
arstofa@kjos.is. Veislustjórn verð-
ur í höndum Sólveigar Ólafsdóttur.
Kynning Fjölmenni í Félagsgarði.
Matarhátíð í Kjós
Ný dögun, samtök um sorg og sorg-
arviðbrögð, mun á þessu hausti
veita þeim, sem misst hafa í sjálfs-
vígum margvíslegan stuðning:
Þannig verður fræðslufyrirlestur
um sjálfsvíg í kvöld 6. október kl.
20.30 í safnaðarheimili Háteigs-
kirkju. Fyrirlesari er sr. Svavar
Stefánsson. Húsið verður opnað kl.
19 þar sem fólk getur komið, spjall-
að og fengið kaffi.
Í kjölfarið eða 10. október fer af
stað stuðningshópur fyrir aðstand-
endur sem verður vikulega á mánu-
dögum kl. 20 í Fella- og Hólakirkju.
Umsjón hefur sr. Svavar Stef-
ánsson. Hvert sjálfsvíg skilur oft
stóran hóp fólks eftir í sárum og
það tekur nánustu aðstandendur
undantekningarlaust langan tíma
að vinna úr sorginni.
Fundur um sorg og
sorgarviðbrögð
Í kvöld kl. 20 mun Signe Kongebro
frá dönsku teiknistofunni Henning
Larsen Architects í Kaupmanna-
höfn halda fyrirlestur í Norræna
húsinu. Stofan er margverðlaunuð
og hefur starfað allt frá árinu 1959.
Hún er alþjóðlegt fyrirtæki með
útibú og verkefni í yfir 20 löndum.
Mikil áhersla er lögð á vistvæna
nálgun og orkusparandi lausnir.
Stofan hefur komið að stórum verk-
efnum á Íslandi, m.a. Háskólanum í
Reykjavík og tónlistar- og ráð-
stefnuhúsinu Hörpu.
Ræðir um arkítektúr
Stuðnings-
mannaklúbbur
Manchester Unit-
ed á Íslandi fagn-
ar 20 ára afmæli
sínu í október en
klúbburinn hefur
aldrei verið fjöl-
mennari en nú.
Í tilefni af af-
mælinu koma til
landsins tveir af
Evrópumeisturum félagsins frá
1968, þeir Alex Stepney og Paddy
Crerand, ásamt upptökufólki frá
sjónvarpsstöðinni MUTV.
Þeir verða heiðursgestir á af-
mælishátíð klúbbsins sem fram fer
á skemmtistaðnum Spot í Kópavogi
á laugardagskvöldið kemur, 8.
október.
Þekktir leikmenn
á afmælishátíðinni
Paddy
Crerand
STUTT