Morgunblaðið - 06.10.2011, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2011
Akureyringar og íbúar næstu
sveita eiga von á góðu í kvöld og
annað kvöld. Sá snjalli Elías Örn
Guðmundsson, Mugison, kemur þá
fram á Græna hattinum. Einir tón-
leikar eru á dagskrá í kvöld og
tvennir annað kvöld, vegna mikillar
spurnar eftir miðum.
Mugison leikur gamalt og nýtt
efni. Hann hefur jafnan slegið í gegn
hér fyrir norðan, eins og annars
staðar. Nýr diskur meistarans hefur
fengið afar góða dóma og Mugison
þótti frábær á tónleikum í Fríkirkj-
unni á dögunum.
Á laugardagskvöld koma fram
þrjár hljómsveitir á Græna hatt-
inum, Spaceships are Cool og Yu-
nioshi frá Bretlandi, og hin íslenska
Bloodgroup sem ætlar að sýna á sér
nýja hlið og spila órafmagnað, eða
allt að því, eins segir í tilynningu.
Ýmsir gestir leika með Blood-
group á þessum rafmagnslausu tón-
leikum; Halldór Warén píanóleikari,
fiðluleikararnir Roland Hartwell og
Lin Wei, Helen Maddison víólueik-
ari og Bryndís Halla Gylfadóttir
sellóleikari.
Bloodgroup kemur til Akureyr-
ar frá Kína þar sem sveitin var á
tónleikaferðalagi en hún hefur kom-
ið fram á 70 tónleikum í 20 löndum á
árinu.
Menningin er í hávegum höfð í
höfuðstað Norðurlands um þessar
mundir og verður eflaust í allan vet-
ur. Margt var í boði um síðustu helgi
og talið er að samtals um 5.000
manns hafi notið þess sem var í boði!
Einn af föstu punktunum að vetr-
inum eru Föstudagsfreistingar í
Ketilhúsinu. Boðið er upp á fyrstu
freistingar haustsins á morgun kl.
12.00 þegar Einar Clausen tenór og
Daníel Þorsteinsson píanóleikari
flytja sönglög eftir Sigfús Hall-
dórsson í bland við ítalskar perlur.
Tónlistarfélag Akureyrar heldur
samkomurnar í samstarfi við menn-
ingarmiðstöðina í Listagili og Goya
Tapas bar.
Auðvelt að velja lið ársins
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Liður ársins Jóhann Helgi Hannesson fagnar marki í sumar ásamt Páli
Gíslasyni þjálfara Þórs og Baldvin Ólafssyni. Öxlin í góðu lagi þarna.
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Á þessum árstíma er í tísku að
velja lið ársins. Eins og gömlum
íþróttafréttamanni sæmir ákvað ég
að standa fyrir mínu eigi vali – og
það verður að segjast eins og er að
valið var býsna auðvelt.
Margir voru vissulega kallaðir en
aðeins einn útvalinn að vanda, og að
sjálfsögðu héðan að norðan; vinstri
axlarliður Jóhanns Helga Hann-
essonar, framherjans unga og harð-
skeytta fótboltamanns í Þór, er liður
ársins í Pepsi-deildinni.
Jóhann Helgi er þekktur fyrir
allt annað en að kveinka sér og gef-
ast upp en jafnvel mestu harðjaxlar
dáðust að honum á laugardaginn
þegar sýnt var frá leik Keflavíkur og
Þórs á Stöð 2. Hann fór úr axlarlið, í
annað skipti á stuttum tíma reyndar,
en hafði ekki tíma til að bíða eftir að
fagmenn í þessum fræðum hlypu inn
á völlinn heldur lagðist í grasið og
smellti öxlinni í lið með aðstoð eins
Keflvíkingsins.
Dömulegir dekurdagar eru
haldnir á Akureyri um helgina.
Þetta er orðinn árviss viðburður og
ótrúlega margt í boði hér og þar um
bæinn fyrir dömur á öllum aldri. Of
langt mál yrði að telja það upp, en
upplýsingar má finna á vefsíðunni
www.visitakureyri.is.
Akureyrsk börn á öllum aldri
glöddust í gærmorgun þegar búið
var að nudda stírurnar úr augunum.
Jörð var alvhít, eins og nánar er
greint frá hér ofar á síðunni. Glað-
asta barnið sem ég heyrði af er fjög-
urra ára stúlka. Bros færðist yfir
andlitið og hún kallaði: „Mamma,
mamma, það eru komin jól!“
Fyrsti snjór haustsins féll á Akur-
eyri og víðar á norðanverðu landinu
í fyrrinótt og bæjarbúar vöknuðu
við hvíta jörð í gærmorgun. Áður
hafði gránað ofan í miðjar hlíðar
Vaðlaheiðar og Hlíðarfjalls.
Lítils háttar snjókoma var fram
eftir degi á Akureyri í gær. Börnin
notfærðu sér það út í ystu æsar og
bjuggu til snjókarla og snjókerl-
ingar víða um bæinn.
Færðin var þó sæmileg og akveg-
ir auðir að mestu. Viðbúið er að
snjórinn hafi stutta viðkomu í bæn-
um því hlýna fór í veðri síðdegis í
gær og við tók slydda og rigning.
Veðurfræðingur á Veðurstofu Ís-
lands sagði aðspurður að fyrsti
snjórinn kæmi ekki óvenju snemma
nyrðra í ár. Hann sagði að útlit væri
fyrir minnkandi úrkomu í dag og ró-
legaheitaveður á morgun, föstudag.
Spáð er norðvestanátt á morgun
með lítilsháttar éljum við norð-
austurströndina, en hægri breyti-
legri átt og skúrum vestanlands.
Hitinn verður 1-6 stig á sunnan-
verðu landinu en víða vægt frost
norðan- og austanlands.
Veðurstofan spáir rigningu og 13-
20 m/s sunnan- og vestanlands um
morguninn á laugardag en síðan
suðvestan 8-13 m/s og skúrum. Útlit
er fyrir að það hláni fyrir norðan á
laugardag og hitinn á landinu verði
þá 6-12 stig síðdegis.
Þótt snjór ætti ekki að verða til
vandræða í byggð á næstu dögum
þurfa ökumenn að vera viðbúnir
hálku og snjó á fjallvegum. Á norð-
austanverðu og austanverðu landinu
og á Vestfjörðum er snjóþekja og
hálkublettir nokkuð víða, að sögn
Vegagerðarinnar. Þæfingur er á
Hólssandi og ófært á Hellisheiði
eystri. Syðra og á Suðausturlandi
eru vegir greiðfærir.
Börnin vöknuðu
glöð við hvíta jörð
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Kærkominn Börnin notfærðu sér snjókomuna til að búa til snjókarla á skólalóðinni við Oddeyrarskóla. Á myndinni
eru, frá vinstri, félagarnir Ólafur Helgi, Ellert Goði, Sæmundur og Henrik.
Vaskur Þessi piltur lét snjókomuna á Akureyri ekki á sig fá og hjólaði gal-
vaskur í skólann í gærmorgun. Færðin á götum bæjarins var sæmileg.
Ungviðið á Akureyri skemmti sér í fyrsta snjó haustsins en það var skammgóð skemmtun
Taktu þátt í
málefnastarfinu
Velkomin á vinnudag
í Valhöll á laugardaginn.
www.xd.is
Fjallað verður um atvinnumál, efnahags- og skattamál
og velferðarmál á opnum vinnufundi í Valhöll nk.
laugardag, 8. október.
» Dagskráin hefst kl. 09:30 með hressandi morgunkaffi
» Nefndir starfa frá kl. 10.00 og lýkur dagskránni kl. rúmlega 13.15
» Samantekt formanna málefnanefndanna verður send beint út
á xd.is kl. 12.45
Vinnum saman og höfum áhrif á stefnu og framtíðarsýn
Sjálfstæðisflokksins.
Skráning er óþörf en senda má fyrirspurnir á neðangreind netföng.
efnahagsogskattanefnd@xd.is
atvinnumalanefnd@xd.is
velferdarnefnd@xd.is
Sjálfstæðisflokkurinn