Morgunblaðið - 06.10.2011, Side 31
DAGBÓK 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
SKOR-
DÝRAEITUR
AAAAHHH.. FURU-
ILMUR
LYKTAR-
EYÐIR
KALLI,
VEISTU AF
HVERJU ÞAÐ
VERÐUR ALDREI
NEITT ÚR ÞÉR?
ÉG VISSI EKKI AÐ ÞAÐ VÆRI
NÚ ÞEGAR KOMIÐ Á HREINT
AÐ ÞAÐ YÐRI EKKERT ÚR MÉR
JÚ AUÐVITAÐ,
ÞAÐ VITA ÞAÐ ALLIR
AF HVERJU FÆ ÉG ALLTAF
AÐ VITA ALLT SÍÐASTUR?
ÚFF!
ÞESSI KULDI
HÆGIR SVO
SANNARLEGA Á OKKUR
ÉG TEK UNDIR ÞAÐ,
VIÐ ERUM BÚNIR AÐ VERA
FASTIR HÉRNA Í VIKU
ÉG HELD AÐ KRAKKARNIR HAFI
HAFT MJÖG GAMAN AF ÞVÍ AÐ KOMA
FRAM Í ÞESSUM RAUNVERULEIKAÞÆTTI
ÞRÁTT FYRIR AÐ ÞAU HAFI
EKKI UNNIÐ KEPPNINA ÞÁ VORU
ÁHORF-ENDURNIR MJÖG HRIFNIR AF
ÞEIM OG ÉG HELD AÐ ÞAÐ HAFI GERT
MIKIÐ FYRIR SJÁLFSTRAUSTIÐ
JÁ...
POTTÞÉTT ERUÐ
ÞIÐ BÚIN AÐ
FINNA UMBOÐS-
MANN FYRIR
OKKUR?
HVAR
ER HANN?
HVAR ER
ÞESSI PADDA!? TÓKSTU
BÚNINGINN MEÐ?
ER ÞAÐ Í
LAGI?
Í LAGI?
ÞAÐ ER ALVEG
FRÁBÆRT!
ÉG
SKAL SKIPTA
VIÐ ÞIG Á
MYNDAVÉLINNI
ÞETTA ER JÓI
VINUR MINN.
HANN ER MEÐLIMUR Í
ÁHUGAMANNA-
LEIKHÓPI
EN FRÁBÆRT,
ERU ÞIÐ AÐ
SÝNA EITTHVAÐ
SKEMMTILEGT Á
NÆSTUNNI?
SÝNA?
NEI, VIÐ
KUNNUM EKKERT
AÐ LEIKA
ÞAU HAFA
BARA MJÖG
MIKINN ÁHUGA
Fasteignaspeki
Nú tala spekingar
miklir víða í þjóð-
félaginu og í fjöl-
miðlum um að nauð-
synlegt sé að hækka
fasteignaverð, það sé í
raun krafa fjárfest-
anna. Þannig er að
sjálfsögu mál með
vexti að því fer fjarri
að það sé rétt. Hið
rétta er að verð á fast-
eignum á auðvitað að
byggjast á vitrænum
sjónarmiðum. Allir
aðilar málsins, allt frá
fasteignasölum og
arkitektum til byggingaverka-
mannsins, eiga að vera raunhæfir í
sinni kröfu um gjald fyrir sitt fram-
lag. Fjölskyldur og einstaklingar
ásamt atvinnulífinu eða fyrirtækjum
þurfa að sjálfsögðu sitt húsnæði en
ekki er mikill búmannsbragur að því
að slá lán í banka eða öðrum lána-
stofnunum út á falskt fasteignaverð
hvort heldur við rekstur fyrirtækis
eða heimilis eins og oft hefur tíðkast
þá með þeim hætti að fasteignamat
(byggingaverð) hefur verið ofreikn-
að, sem hefur valdið því að bruna-
bótamatsverð hefur hækkað. Bygg-
ingaraðilar, verktakar og
byggingarfyriræki þurfa líka að vera
sanngjörn með sitt
gjald fyrir byggingar,
þá ekki hvað síst vegna
tilkomumikillar bygg-
ingatækni við hús-
byggingar. En mennt
er máttur eins og sagt
er. Það má samt ekki
gleyma því að hið op-
inbera, þ.e. fólkið, hef-
ur jafnan borið hitann
og þungann af mennt-
un, t.d. byggingaver-
fræðinga, arkitekta,
fasteignasala, lögfræð-
inga og hagfræðinga,
jafnvel kennaranna
sjálfra. Þannig að
menn mega ekki van-
meta þann þátt að þeir hafa jafnan
menntast á kostnað fólksins ef svo
má segja. Það má ekki selja tækni of
dýru verði, menn verða að sjá hluti í
réttu samhengi. Heiðarlegir menn
hugsa nú kannski ekki beint um arð-
semiskröfu hvað varðar húsnæði
fyrir sitt heimili eða fyrirtæki ef
menn stunda atvinnustarfsemi held-
ur notagildi, svo kemur hagnaður
fyrirækisins.
Kristján Snæfells
Kjartansson
skipstjóri.
Ást er…
… þessi sérstaka
tilfinning.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9,
gönguhópur kl. 10.30, myndlist/
prjónakaffi kl. 13. Bókmkl. kl. 13.15,
spænska kl. 16.30, jóga kl. 18, hekl kl.
20. Bingó fellur niður 7. okt. vegna
starfsdags starfsfólks.
Árskógar 4 | Handavinna, smíði/
útskurður kl. 9. Botsía kl. 9.30. Helgi-
stund kl. 10.30. Myndlist kl 13.30.
Boðinn | Handavinna/jóga kl. 9.
Vatnsleikfimi kl. 9.15. Ganga kl. 11,
bingó kl. 13.30, hefst 8. september, og
verður annan hvern fimmtudag.
Bólstaðarhlíð 43 | Myndlist, bók-
band, leikfimi. Skartgripagerð og
handavinna.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8.
Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Skvettuball í Gullsmára 8. okt. kl. 20.
Hljómsveitin Prima. Veitingar á góðu
verði.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids kl. 13.
Félagsheimilið Gjábakki | Ramma-
vefnaður kl. 9.05, leikfimi kl. 9.15,
málm- og silfursmíði kl. 9.30, bókband
kl. 13 og myndlistarhópur kl. 16.10.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ
| Qi gong kl. 8.10, handav./karla-
leikfimi kl. 13, botsía kl. 14, kóræfing
kl. 16.
Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn-
arnesi | Vatnsleikfimi kl. 7.15. Gler
Mýrarhúsaskóla kl. 9. Kaffispjall í krók
kl. 10.30. Karlakaffi í safnaðarheimili
kl. 14. Félagsvist Skólabraut kl. 14.
Félagsstarf Gerðubergi | Helgistund
kl. 10.30. Félag heyrnarlausra kl. 11.
Frá hádegi búta/perlusaumur og
myndlist. Á morgun kl. 13 hefst bók-
band. Breiðholtsdagar 18.-25. nóv. fjöl-
breytt dagskrá í hverfinu, ábendingar
óskast.
Hraunbær 105 | Handav. kl. 9. Leik-
fimi kl. 9.15, botsía kl. 10.30, postulín
kl. 13, félagsvist kl. 13.30.
Hraunsel | Qi gong kl. 10, dýnuæf-
ingar Bjarkarhúsi kl. 11.20, glerskurður
kl. 13, pílukast og félagsvist kl. 13.30,
vatnsleikfimi kl. 14.40.
Hvassaleiti 56-58 | Botsía kl. 10.
Hannyrðir kl. 13. Félagsvist kl. 13.30,
kaffisala.
Hæðargarður 31 | Við Hringborðið/
dagblöðin/kaffitár kl. 8.50. Stef-
ánsganga kl. 9. Morgunandakt hálfs-
mánaðarlega kl. 9.30. Leikfimi kl. 10.
Þegar amma var ung kl. 10.50. Söng-
hópur Hjördísar Geirs kl. 13.30. Línu-
dans Ingu kl. 15.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó kl. 17.
Línudans hópur III kl. 18. hópur IV
(byrjendur) kl. 19 í Kópavogsskóla.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun kl.
9.30 er sundleikfimi og Listasmiðjan
kl. 13.30.
Norðurbrún 1 | Botsía kl. 10. Handa-
vinna kl. 9/13. Leirlistarnámskeið kl.
9/13. Útskurður kl. 9.
Vesturgata 7 | Handavinna/
glerskurður kl. 9.15, leikfimi kl. 10.30.
Kertaskreytingar/kóræfing kl. 13, kaffi-
veitingar kl. 14.30. Þriðjudaginn 11.
okt. kl. 10.55-12 leiðbeina nem. úr 10.
bekk Vesturbæjarskóla í tölvufærni,
ókeypis. Skráning/upplýsingar í s.
535-2740.
Helgi Seljan sendir kveðju til
Vísnahornsins: „Eftir útvarps-
umræður: Undanvillingar voru þau
lömb sem villtust frá mæðrum sín-
um, þó ekki viljandi.
Ég nota það orð um þá er viljandi
yfirgáfu það fólk sem kaus þá.
Orðanna flóð af flestu bar,
flóði þó yfir barma.
Undanvillingar allir þar
ákaft fengu að jarma.
Töluvert hefur verið rætt og
skrafað um gjá milli þings og þjóð-
ar. Friðrik Steingrímsson orti:
Eflum bjartsýn okkar trú,
út á djúpið leggjum,
yfir gjána byggjum brú
úr brotnum hænueggjum.
Kristbjörg F. Steingrímsdóttir
bætti við:
Þegar sett er þing á ný
þörf er fyllstu varúðar,
gæta skyldi grannt að því
hvort gjálífi er stundað þar.
Vésteinn Valgarðsson sá í frétt-
um „að heimskunnur bandarískur
ofurhugi hefði svifið vængjum
þöndum í gegn um gat í fjalli í Kína
(nokkurs konar Dyrhólaey) fyrstur
manna, og mun afrek það verða í
minnum haft ef fréttamaðurinn var
sannspár, en menn leggja jú mikið
á sig til að gleymast ekki á end-
anum. Jæja:
Grimmir dómar gleymskunnar
glepja menn og brýna,
svífa hetjur heimskunnar
um holótt fjöll í Kína.“
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af gjá og ofurhuga