Morgunblaðið - 06.10.2011, Qupperneq 35
MENNING 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2011
Tónlistarmaðurinn
Glen Campbell hef-
ur verið lengi að,
hálf öld er frá því
hann hóf upp raust
sína. Nú er komið
að leiðarlokum því
hann hefur lýst því yfir að Ghost on
the Canvas sé kveðjuskífan, enda
hefur hann greinst með elliglöp.
Þó að byrjunin á Ghost on the
Canvas sé lágstemmd, bara kassa-
gítar og einlæg rödd er Campbell
ekkert að breyta um stíl svona að
skilnaði; strax í næsta lagi birtast
fleiri hljóðfæri, syngjandi kántrígít-
arar og sykraðir strengir. Vindur
svo fram út plötuna – víst er hann að
kveðja, en hann gerir það á sama
hátt og hann hefur skemmt aðdá-
endum sínum í gegnum árin. Það er
helst í textunum sem Campbell velt-
ir fyrir sér óminninu sem bíður hans,
en það er svo sem ekki nýlunda held-
ur að hann syngi um dauðans óvissu
tíma og breyskleika sinn, slíkt og
þvílíkt hefur hann gert að segja út
ferilinn og er líka til siðs í þeirri tón-
listarhefð sem hann er sprottinn úr.
Glen Campbell – Ghost on the
Canvas bbbnn
Glen Camp-
bell kveður
Árni Matthíasson
bbbbn
Það telst til stór-
tíðinda þegar DJ
Shadow gefur út.
Frá því Entroduc-
ing..... kom út árið
1996 hefur hann
verið einn allra áhrifamesti hip-hop
tón og taktsmiður samtímans. Plat-
an sú var alfarið gerð með notkun
sampla og þykir mikið brautryðj-
endaverk. Á nýju plötunni The Less
You Know, the Better er að finna
helstu höfundareinkenni skuggans:
bráðsmitandi takta í bland við flottar
lagasmíðar og blöndun ólíkra stíla.
Hörðu rappi er skeytt saman við so-
ul-ballöður og rokk í þyngri kant-
inum. Sem fyrr mynda þessir ólíku
blæbrigði flotta heild sem ekki alls
ekki er gefið að gangi upp. Þó platan
sé líklega ekki það besta sem DJ
Shadow hefur gert er hún samt sem
áður mun betri en The Outsider sem
kom út fyrir fimm árum síðan og
sýnir að hann á nóg eftir. Líklega
yrðu margir ánægðir ef daðrinu við
rokkið færi að ljúka og það er deg-
inum ljósara að tónlistin yrði stíl-
hreinni fyrir vikið.
Birtir til hjá
skugganum
DJ Shadow - The Less You
Know, the Better
Hallur Már
Will Oldham, sem
hljóðritar oftlega
undir nafninu
Bonnie ’Prince’
Billy, varð Ís-
landsvinur mikill
eftir vel heppn-
aðar hljómleikaheimsóknir hingað
um og upp úr 2000. Stutt var þá
síðan þrekvirkin I See a Darkness
(1999) og Ease Down the Road
(2001) höfðu komið út og jafnframt
stutt í það þriðja, Master and
Everyone (2003). Okkar maður
eignaðist harðsnúinn hóp aðdáenda
hérlendis um þetta leyti og varð
jafnframt aðdáandi okkar um leið,
átti eftir að vinna með hérlendu
fólki og fór svo að Valgeir Sigurðs-
son (Gróðurhúsið/bedroom comm-
unity) stýrði upptökum á plötu
hans frá 2006, The Letting Go.
Ein Íslandstengingin til fylgir
þessari nýjustu plötu prinsins,
temmilega langsótt þó, en plötuna
vann hann náið með Shahzad Is-
maily sem vann og náið með Ólöfu
Arnalds að Innundir skinni.
Altént, Bonnie Prince Billy nafn-
ið var í upphafi notað er Oldham
hallaði sér í kántríáttir en það hef-
ur ekki endilega verið reyndin á
fjöldamörgum plötum hans undir
þeim hatti síðasta áratuginn.
Wolfroy Goes to Town snertir þó
nokkuð á þeim flötum, minnir dá-
lítið á hina afslöppuðu (á köflum
aðeins of afslöppuðu) plötu Beware
(2009) en einnig á meistarastykkið
hljóðláta Master and Everyone.
Platan er eiginlega eins og af-
kvæmi þessara tveggja platna, hún
er ekki eins ofurlágvær og Mast-
er... en að sama skapi er meira bit
í henni en á Beware. Platan ber þá
með sér sterka heild, ekkert lag er
öðru ofar og hún rúllar örugglega
áfram. Vert er þá að geta söng-
konunnar Angel Olsen sem ljær
nokkrum lögum undurblíða en um
leið sérkennilega rödd. Oldham er
auðheyranlega við tónlistarlega
hestaheilsu og er það vel, enda
hefur þessi hæfileikamaður mikið
að gefa þegar hann er vel „tengd-
ur“.
Myrkraprinsinn mjúki
Bonnie ’Prince’ Billy - Wolfroy
Goes to Town
bbbbn
Arnar Eggert Thoroddsen
Galdrakarl Will Oldham er listamaður fram í kynlega fingurgóma.
Erlendar plötur
Oktoberfest var sett í fyrradag á
Kex hosteli við Skúlagötu og var það
sendiherra Þýskalands á Íslandi,
Hermann Sausen sem dældi fyrsta
bjórnum í krús og færði Ásgeiri Sig-
urvinssyni, fyrrum knattspyrnu-
manni. Októberfest stendur til 9.
október með tilheyrandi ölkneifun.
Eigendur Kex pöntuðu sérstaklega
fyrir hátíðina glás af lítrabjórkrús-
um sem merktar eru staðnum og
verður á hátíðinni boðið upp á þýsk-
an mat á borð við svínaskanka, salt-
kringlur og pylsur, mat sem minnir
á Oktoberfest. Þá verður þjón-
ustufólk staðarins klætt bæverskum
klæðum, leðurstuttbuxum og kjólum
sem nefnast Dirndl.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Öl Ásgeir Sigurvinsson með ölkrúsina og sendiherrann sér við hlið.
Ásgeir fékk fyrstu krúsina
Nýstofnuð hljómsveit stígur á
stokk í kvöld á Café Rósenberg kl.
20.30. Sveitin nefnist Blágresi og
er skipuð Tinnu Marínu, Daníel
Auðunssyni og Leifi Björnssyni.
Plata er svo væntanleg í haust.
En föruneytið er stærra, því
textahöfundur sveitarinnar er
skáldið og rithöfundurinn Einar
Már Guðmundsson og verður hann
með upplestur á milli laga. Þá
stígur Bjartmar Guðlaugsson á
stokk, tekur lagið og segir sögur.
„Þau flytja tónlistina og ég tala
úr verkum mínum, flyt sögur og
ljóð,“ sagði Einar Már er hóp-
urinn kom saman á Hressó í gær.
„Svo er Bjartmar líka með inn-
slög, við víxlum þessu öllu og
þetta er blandað á staðnum, eins
og malbikið í gamla daga hjá
Sverri.“
„Við vinnum úr þeim mögu-
leikum sem eru fyrir hendi,“ bætti
Bjartmar við.
„Augnablikið leiðir okkur í gegn-
um dagskrána, oftast þannig að
hvorki við né áhorfendur rönkum
við okkur fyrr en tveir tímar eru
liðnir,“ heldur Einar Már áfram.
Fyrsta skífa Blágresis er vænt-
anleg í haust, Hvað ef himinninn
brotnar. pebl@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Blágresi Hljómsveitin á Hressó í gær með Einari Má og Bjartmari.
Hrært í tónlist, ljóðum og sögum
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
ABDUCTION Sýnd kl. 8 - 10:15
RAUÐHETTA 2 3D ÍSL TAL Sýnd kl. 6
JOHNNY ENGLISH REBORN Sýnd kl. 6 - 8 - 10:15
COLOMBIANA Sýnd kl. 8 - 10:15
STRUMPARNIR 3D ÍSL TAL Sýnd kl. 6
HANN HLÆR
FRAMAN Í
HÆTTUNA
HÖRKU
SPENNUMYND
FRÁ ÞEIM
SÖMU OG
FÆRÐU OKKUR
„TAKEN“
ÞRÆLMÖGNUÐ SPENNUMYND Í ANDA BOURNE MYND-
ANNA MEÐ TAYLOR LAUTHER ÚR TWILIGHT ÞRÍLEIKNUM
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú
greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR MR. BEAN
ROWAN ATKINSON
HHH
„JOHNNY ENGLISH Í
GÓÐUM GÍR“
- K.I. -PRESSAN.IS
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR 5%
RAUÐHETTA 2 2D ÍSL.TAL KL. 4 - 6 L
RAUÐHETTA 2 3D ÍSL.TAL KL. 4 - 6 L
ELDFJALL KL. 5.45 L
ELDFJALL LÚXUS KL. 3.30 - 5.45 L
ABDUCTION KL. 8 - 10.20 12
ABDUCTION LÚXUS KL. 8 - 10.20 12
JOHNNY ENGLISH REBORN KL. 5.45 - 8 - 10.15 7
I DON´T KNOW HOW SHE DOES IT KL. 8 - 10.10 L
WARRIOR KL. 10.20 14
SPY KIDS 4 4D KL. 3.30 L
STRUMPARNIR 3D ÍSL.TAL KL.3.30 L
RAUÐHETTA 2 3D ÍSL.TAL KL. 6 L
ABDUCTION KL. 10 12
JOHNNY ENGLISH REBORN KL. 6 - 8 - 10 7
ÞRÆLMÖGNUÐ SPENNUMYND
Í ANDA BOURNE MYNDANA
RAUÐHETTA 2 3D ÍSL.TAL KL. 6 L
JOHNNY ENGLISH REBORN KL. 8 - 10.15 7
ELDFJALL KL. 5.45 - 8 - 10.15 L
PROJECT NIM KL. 6 - 8 L
LE HAVRE KL. 6 - 10 L
BOBBY FISCHER KL. 8 - 10 L
Á ALLAR SÝNINGAR Í SMÁRABÍÓI TIL OG MEÐ 10. OKT!