Morgunblaðið - 06.10.2011, Síða 36
Menning
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2011
Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is
Málmvíkingarnir í Skálmöld eru
þessa dagana á þeysireið um Evrópu
undir merkjum farandhátíðarinnar
Heidenfest ásamt fimm öðrum málm-
böndum af áþekkum meiði. Þrjár
sveitir til viðbótar slást svo í hópinn
um helgar en flösu verður feykt dag-
lega til 23. þessa mánaðar.
Leikar hófust í Geiselwind og Gie-
ßen í Þýskalandi en þaðan lá leiðin til
Berlínar og pólsku borganna Varsjár
og Krakár, þar sem Skálmöld var
niðurkomin þegar Morgunblaðið náði
tali af Snæbirni Ragnarssyni bassa-
leikara.
„Það eru fjögur gigg að baki og
þetta hefur gengið vonum framar,
fullt út úr dyrum og við merkjum
ekki annað en fólk fíli okkur ágæt-
lega,“ segir Snæbjörn og bætir við að
ljúft hafi verið að heyra í lýðnum þeg-
ar stigið var af sviði í Varsjá – „Skol-
múld! Skolmúld!“
„Við erum ekki stærsta númerið
hérna en það er alltaf gaman að sjá
einn og einn í Skálmaldarbol í mann-
fjöldanum. Tæknimennirnir, sem
fylgja okkur, hafa líka verið mjög já-
kvæðir í okkar garð. Enginn okkar
hefur tekið þátt í tónleikaferð af
þessu kaliberi og við erum staðráðnir
í að skemmta okkur.“
Skálmöld fer á svið um klukkan
þrjú síðdegis um helgar en sex síð-
degis á virkum dögum, eigi að síður
eru málmþyrstir áhorfendur löngu
búnir að taka sér stöðu. „Hér mæta
menn á réttum tíma og halda hvergi
aftur af sér enda þótt það sé mánu-
dagur,“ segir Snæbjörn en þúsund
manns að meðaltali hafa hlýtt á
Skálmöld leika til þessa.
Hvað er eiginlega í matinn?
Hann segir lítinn mun á því að
standa á sviði í Þýskalandi og Pól-
landi en á hinn bóginn sé umgjörðin
svolítið önnur. „Þó svo að við höfum
ekki yfirgefið þessa einu byggingu og
því ekki farið mikinn í að kynna okk-
ur kúltúrinn finnum við mjög vel að
við erum komnir austar en í gær.
Dyraverðirnir líta út fyrir að vera
hermenn frekar en dyraverðir, og
eru það sennilega. Klósettin lykta
mjög illa og sturturnar eins, mat-
urinn var svo sundursoðinn að engin
leið var að átta sig á hvað var hvað,
og töluverða ölvun var að sjá á
tónleikagestum enda þótt nú sé
mánudagur. Mikill munur frá
Excel-skipulögðu Þýskaland-
inu,“ svo vitnað sé beint í
spriklandi fjöruga dagbók á
heimasíðu sveitarinnar,
skalmold.is.
Skálmöld er óðum að
kynnast samreið-
arsveinum sínum og
-meyjum en rússneska
bandið Arkona, sem deilir rútu með
þeim, skartar söngkonu. Þriðja band-
ið í rútunni er Norðmennirnir í Troll-
fest og segir Snæbjörn sam-
komulagið prýðilegt. „Við tengdum
strax við Norðmennina en Rússarnir
voru svolítið þurrir á manninn til að
byrja með. Við settum hins vegar að-
eins brennivín í þá í gær og þá mýkt-
ust þeir allir upp. Eiginlega einum of,
því faðmlög og kossar með blautum
vörum eru heldur mikið af því góða
fyrir Íslendinginn – alla vega svona
við fyrstu kynni,“ segir hann hlæj-
andi.
Hlíft við óvæntum uppákomum
Framundan eru tónleikar í Hol-
landi, Bretlandi, Austurríki, Frakk-
landi og fleiri löndum. „Ég veit ekki
hvaða víðáttubrjálæðingur skipulagði
túrinn en hann er ekkert að spara
bensínið, við þurfum að aka allt upp í
12 til 13 tíma á nóttu til að komast
milli staða,“ segir Snæbjörn en bætir
við að skipulagið sé til fyrirmyndar.
„Sé okkur sagt að við verðum komin
á áfangastað klukkan eitt erum við
komin klukkan eitt, ekki klukkan
fimm mínútur yfir eitt. Skipuleggj-
endur vita að álagið er mikið og bönd-
unum er fyrir vikið hlíft við óvæntum
uppákomum. Það er til fyrirmyndar.“
Framhaldið leggst vel í Snæbjörn
en hann fæst ekki til að tala um vænt-
ingar. „Við rennum þannig lagað séð
blint í sjóinn, höfum ekki hugmynd
um hvaða þýðingu þessi túr kemur til
með að hafa fyrir okkur. Ætli við ger-
um þetta ekki bara upp þegar við
verðum komnir heim og búnir að
kasta mæðinni.“
Skálmöld Húsvískur heiðingjametall fer nú sem eldur í sinu um Evrópu.
Skálmað um Evrópu
Skálmöld komin af stað í langa og stranga tónleikaferð um
Evrópu Deila rútu með böndum frá Noregi og Rússlandi
Hin málmböndin sem flengjast
með Skálmöld um Evrópu eru í
meira lagi skrautleg. Nægir þar að
nefna sjóræningjaþungarokks-
sveitina Alestorm (Stormur í öl-
glasi, í lauslegri þýðingu) sem er
frá Skotlandi og Írlandi. Að
sögn Snæbjarnar verður
að segjast alveg eins og
er að konseptið lítur
ekki mjög vel út á papp-
írunum. Aðalsöngv-
arinn spilar á Keytar og
textarnir fjalla allir um
fjársjóði, staurfætur,
romm og hreinar meyjar. „Í stuttu
máli gengur þetta fullkomlega
upp,“ segir í dagbókarfærslu.
„Sennilega hefur það talsvert með
færni og form að gera, bandið er
þéttara en rasskinnarnar á
íþróttaálfinum. Eftir tónleikana í
gær kynntumst við þeim síðan
svolítið og þeir eru bæði mjög
skemmtilegir og vel hæfir til
drykkju. Skárra væri það nú, sjó-
ræningjasveit sem er á samningi
hjá Captain Morgan, ekki væru
þeir mjög sannfærandi ef þeir
væru templarar.“
Stormur í ölglasi
SKRAUTLEGAR SAMREIÐARSVEITIR
Túrrútan Nítján kojur eru á efri hæðinni. Þröngt mega sáttir sofa.
Éger
brospinni!
Hvar er þinn Brospinni?
Nú um helgina eru Brospinnar
seldir til styrktar bættum aðbúnaði
á geðdeildum Landspítalans.
Kauptu Brospinna
og veifaðu honum framan í
heiminn og hver veit nema
heimurinn brosi framan í þig!
www.brospinnar.is
Styrktaraðilar:
Actavis - Alcoa Fjarðaál - Astra Zeneca - Boðskipti - Byr
sparisjóður - Ernir Eyjólfsson ljósmyndari
Guðrún Valdimarsdóttir - Janssen - Leturprent - Lilly - Lundberg
Netvistun - Roche - Skaparinn auglýsingastofa - Umslag
Haffi Haff,
tónlistarmaður o.fl.