Morgunblaðið - 06.10.2011, Side 40
FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 279. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Hlegið að Íslendingum
2. Planar síðasta prakkarastrikið
3. Skjálftar undir Mýrdalsjökli
4. Spænski drengurinn látinn
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Allar skáldsögur Kristínar Marju
Baldursdóttur hafa verið endurprent-
aðar í kilju í Þýskalandi í tilefni af
bókasýningunni í Frankfurt. Nýjasta
skáldsaga hennar, Karlsvagninn, hef-
ur einnig verið gefin út innbundin.
Morgunblaðið/Einar Falur
Skáldsögur Kristínar
gefnar út á þýsku
Fjórðu tónleikar
tónleikarað-
arinnar gogoyoko
Wireless verða
haldnir í kvöld kl.
22 á Hvítu perl-
unni í Austur-
stræti. Að þessu
sinni leikur hljóm-
sveitin Agent
Fresco órafmagnað ásamt strengja-
sveit og aukahljóðfæraleikurum. Tón-
listarveitan gogoyoko stendur að
tónleikaröðinni.
Agent Fresco með
strengjasveit
Sagafilm og dreifingarfyrirtækið
Shine International hafa samið við
sjónvarpsstöðina TV2 í Noregi um
endurgerð sjónvarpsþáttanna Næt-
urvaktarinnar. Fram-
leiðslufyrirtækið
Monster sér um
endurgerðina. Þá
hefur dreifing-
arfyrirtækið Nor-
dic World tekið
að sér að
dreifa þátt-
um fram-
Næturvaktin
endurgerð í Noregi
Á föstudag Hæg breytileg átt og skúrir vestanlands, en norð-
vestanátt og lítilsháttar él við norðausturströndina. Þykknar upp
syðra. Hvessir með rigningu suðvestantil um nóttina. Hiti 1-6 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 2-20 m/s, hvassast austantil.
Rigning eða slydda nyrðra, en þurrt að kalla syðra. Dregur smám
saman úr vindi. Hiti yfirleitt 0-8 stig, kaldast í innsveitum nyrðra.
VEÐUR
Kolbeinn Sigþórsson, fram-
herji Ajax og íslenska lands-
liðsins í knattspyrnu, varð
fyrir miklu áfalli í gær en þá
kom í ljós að hann er ökkla-
brotinn og verður frá keppni
næstu 3-4 mánuðina. „Það
var mikið áfall þegar ég
fékk fréttirnar frá lækn-
unum,“ sagði Kolbeinn við
Morgunblaðið í gærkvöldi
en hann hefur farið frábær-
lega af stað með hollensku
meisturunum. »1
Mikið áfall segir
Kolbeinn
„Þeir eru langbesta liðið í riðlinum en
þar með er ekki sagt að við getum
ekki veitt þeim keppni. Við unnum þá
síðast þegar við
mættum þeim á
Englandi og von-
andi verðum við í
jafnmiklu stuði
nú og við vor-
um í þeim
leik,“ segir
Eyjólfur Sverr-
isson, þjálfari
U21 árs
landsliðsins
í knatt-
spyrnu, um
enska lands-
liðið sem Ís-
land mætir á
Laugardalsvelli í
kvöld. »4
Vonandi verðum við í
jafnmiklu stuði nú
Fram og FH fögnuðu sigrum þegar
þriðja umferð N1-deildar karla í
handknattleik hófst í gærkvöld.
Framarar lögðu Akureyringa og hafa
þar með unnið alla þrjá leiki sína í
deildinni. Íslandsmeistarar FH-inga
unnu sinn annan leik í röð en þeir
höfðu betur á móti bikarmeisturum
Vals á heimavelli sínum í Kapla-
krika. »2-3
Framarar með fullt hús
og FH lagði Val að velli
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Gestir Eyvindarstofu geta gætt
sér á útilegumannamat og lifað
sig inn í líf Fjalla-Eyvindar og
Höllu. Eyvindarstofa verður opn-
uð á Blönduósi næstkomandi
laugardag.
Eigendur veitingastaðarins
Pottsins á Blönduósi eru að inn-
rétta Eyvindarstofu á efri hæð
hússins. Stofan verður rekin í
tengslum við veislusal.
Útbúa Eyvindarhelli
„Þetta kom upphaflega til af
því að ég rak ferðaþjónustu á
Hveravöllum en þar voru heim-
kynni Eyvindar og Höllu um
tíma. Við vorum að vinna að hug-
mynd um uppbyggingu gesta-
stofu þar með aðkomu ríkisins.
Það gekk hægt, og raunar er enn
ekkert farið að gerast, svo ég
ákvað að líta mér nær,“ segir
Björn Þór Kristjánsson sem rek-
ur veitingastaðinn Pottinn með
konu sinni, Söndru Kaubriene.
Ekki er full lofthæð í hluta
rýmisins og því kom upp hug-
myndin að nýta það pláss fyrir
Eyvindarhelli. Reynt er að ná
upp stemningu hálendisins og
hveranna. Sögunni um Fjalla-
Eyvind er miðlað með myndefni
og textum.
Sérstök upplifun
Matur er borinn fram á diskum
og skálum sem gerð eru í stíl
handverks Eyvindar, að vísu ekki
úr tágum heldur leir, en Fjalla-
Eyvindur var rómaður fyrir hag-
leik sinn.
Matseðillinn er líka óvenju-
legur og tekur mið af sömu hugs-
un. Aðalrétturinn er léttsaltaður
lambaskanki. Hrár silungur er
settur út í súpuna. Eftirrétturinn
er rúgbrauðskaka með rjómaís og
rabarbaragraut. Allt eru þetta
þjóðlegir réttir sem Eyvindur og
Halla gætu hafa lifað á í heim-
kynnum sínum á hálendinu. Sil-
ung hafa þau sótt í vötnin og soð-
ið brauð í hverum. Að vísu eru
lömbin keypt af bændum en ekki
tekin ófrjálsri hendi úr sum-
arhögum. Þá tekur veitingamað-
urinn fram að annar matur sé í
boði fyrir þá sem ekki vilja úti-
legumannafæði.
„Við viljum geta sinnt hópum
sem nú fara í gegnum Blönduós,
veitt þeim sérstaka upplifun.
Einnig getum við nýtt aðstöðuna
fyrir fundi og boðið hana fyrir
hvataferðir,“ segir Björn Þór um
markmiðið með framtakinu.
Boðið upp á útilegumannafæði
Eyvindarstofa
opnuð á Blönduósi
um helgina
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Eyvindarstofa Björn Þór Kristjánsson og Sandra Kaubriene hafa lagt sig fram um að ná upp hálendis- og útilegu-
mannastemmningu í Eyvindarstofu og tengdum veislusal á efri hæð Pottsins á Blönduósi.
„Þetta er eins og vertíð.
Maður dregur saman seglin
þegar vertíðin er búin,“
segir Björn Þór Krist-
jánsson veitingamaður. Auk
Pottsins og Eyvindarstofu
rekur hann kaffihúsið Við
árbakkann, félagsheimilið á
Blönduósi og sumarhótel í
Húnavallaskóla. Áður rak
hann ferðaþjónustuna á Hveravöll-
um í nokkur ár.
Björn Þór var lengi skipstjóri,
mest á rækjutogurum á
fjarlægum miðum, og neitar
því ekki að sú reynsla nýtist
sér. Hann er með talsvert á
þriðja tug starfsmanna á
sumrin, heldur fleiri en voru
á togurunum, en minna er
að gera á vetrum og þá eru
um tíu starfsmenn.
„Þetta er fjölbreytt og
skemmtilegt starf. Maður hittir
margt fólk og það eru engir tveir
dagar eins,“ segir Björn.
Eins og að vera á vertíð
SKIPSTJÓRI Í FJÖLÞÆTTUM VEITINGAREKSTRI
Frá Hveravöllum.