Austurland


Austurland - 23.12.1966, Page 1

Austurland - 23.12.1966, Page 1
Amíurland Málgagn sósialista á Austurlandi 16. árgangur. JÓLIN1966 45. tölublað. >A^AAAAAAAAA^AA»>*A«>«.v<VyVwvvvuww —IM3 » Jóhannes (ir Kötlum: Tólf hetjur Og svo var það eitt kulsamt kvöld. Þeir kvöddu fólk og land og sigldu af stað í stoltum byr og strengdu skaut og 'þand. Og fagurlega skipið skreið — það skein á seglið Ijóst. En Jesás lagðist lágt í skut og lét sér renna í brjóst. Og herra trúr hve glatt það gekk! Vor góði hirðir svaf á meðan áfram geystlst gnoð. — En gamanið fór af, Því alltaf hvessti og alda hver varð ein's og snarbratt fell, unz lengra en skyldi æddi ein og inn í bátinn féll. Þá hrollur fór um hletjur tólf — eitt hugnaðist þelm lítt: Þeir höfðu að sönnu í seinni tíð á sæluboðbkap hlýtt, en þó svo hæfði að hlakka til síns himinfarardags, þeim körlum ekkert kappsmál var að komast þangað strax. Og heldur svona hart og títt þeir hnipptu í frelsarann og æpandi í einum kór þeir ávítuðu hann: Oss finnst það snubbótt ferðalag að farast allir hér! — En Jesús blítt af blundi reis og brosti í gaupnlr sér. Hann horfði svo í heiðri ró á höfuðskepnur þær og tók að hjala Veðrið við sem vin, er reiður slær: Haf hægt um þig og hvíl þig nú . — Það hvíslið barst um sogn og fyrr en varði kappa Krfsts var komið blæjalogn. Úr Mannasyninum. <

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.