Austurland


Austurland - 23.12.1966, Side 10

Austurland - 23.12.1966, Side 10
10 AUSTURLAND Jólin 1966. Vísir Einu sinni, þegar jólasveinn kom í heimsókn til að syngja fyrir börnin, söng hann þessar vísur um sig og bræður sína. Nú vitið þið auðvitað öll að jólasveinarnir eru þrettán og heita: Stekkjarstaur, Giljagaur, Stúfur, Þvörusleikir, Potta- sleikir, Askasleikir, Faidafeykir, Skyrgámur, Bjúgnakrækir, Gluiggagægir, Gáttaþefur, Ketkrókur og Kertasníkir, og þeir ko:ma til byggðar í sömu röð' og þeir eru taldir hér að fram- an. Vísurnar eru svona: Þrettán litlir jólasveinar fóru í ferðalag feikilega kait var úti þennan vetrairdaig, í ógnarlangri halarófu áfram þraimmað var, ofan í byggð þeir vildu fara og haldia jólin þar. Þrettán nóttum fyrir jól sá fynsti kom í byggð i fjárhúsunum valda kunni ógnarlegri styggð. Tólf nóttum fyrir jól þá tölti annar heim í tunglsljósinu um kvöldið sáu börnin sikugga af þeirn. Ellefu nóttum fyrir jól sá þriðji þeysti í hlað, þar var kominn Stúfur litli og bæði söng og kvað. Tíu nóttum fyrir jól sá fjórði bættist við, og fólkinu á bænum þótti nóg um' þetta lið. Níu nóttum fyrir jól sá fimmti þeirra sást fara gegnum eldhúsdyrn'ar, þetta varla brást. Átta móttum fyrir jól sá isjö.tti settist að, sá var nefndur Askasleikir, réttnefni var það. Sjö nóttum fyrir jól þanm isjöunda þangað bar sá var þekktur fyrir að vilja glettast við stúlkurnar. Sex nóttum fyrir jól komst áttundi alla leið, eftir honum skyrdallurinn sneisafullur beið. Fimm nóttum fyrir jól sá níundi gekk í garð af gömlum vana bjúgnakippa fyrir honum varð. Fjórum nóttum fyrir jól sá tíundi tölti í rann og teygði isig upp í gluggann til að gægjast inn um hamn. Þremur nóttum fyrir jól sé ellefti inn sér brá með andlitið í gættina og hörfaði síð'an frá. Tveimur nótbum fyrir jól isá tólfti strompinn skók, og til iað ná í hangikjöt hann var með langan krók. Á aðfangadagskvöldið sjálft sá þrettándi þeirra var þarna á staðmum til að leita að keirtum aistaðar. Upp eru tialdir jólasveinar allir, börnin mín, og aftur fara þeir hver á fætur öðrun heim til sín. Þetta söng hann við lagið: „Komdu niður kvað hún amma“. Það lag hljótið þið öll að kunna, en viðlagið sungu börnin sjálf, og við það sungu þau þessa vísu: Einhvers staðair uppi í fjöllum er svo fullt af skrítnum köllum, jólasveinar, jólasveinar, jólasveinar heita þeir. V. S. Tindátarnir AÐ VAR rétt eftir sólar- upprás einn sunnudags- morgun í september. Það var engin hr.eyfing á fiskibátun- um. þegar drengurinn kom út úr húsinu og stefndi niður að höfn- inni. Hann var í upplituðum skáta- buxum, berfættur og berleggjað- ur í sjómannapeysu, grannvaxinn sólbrúnn snáði. Undir hægri hand- legg bar hann lítinn, rauðian, beyglaðan kökukassa, læstum með hengilás. Hann nam ekki staðar til þess að klappa svarta kettinum á grindverkinu, og hann lék sér ekkert við litla hvolpinn, sem kom vimalegur á móti hon- Sögur og ljóð hafa löngum verið bezta Gkemmtun barn- anna. Við vonum, að svo sé enn. Sagan, sem hér birtist, er þýdd úr dönsku, en ljóðin hefur hann Valgéir Sigurðs- son, kennari á Seyðisfirði, sent okkur, en hann er, eins og þið kannski vitlð, bráð- snjali gamanvísnahöfundur, og hefur einnig samið marga dægurlagatexta. um. Ég má ekkert vera að' því, sagði hann eins og til skýringar, ég þarf að gera dálítið. Fiskibátarnir hvíldu sig eftir vikuúthaldið. Mávarnir skræktu eins og venjulega. Það angaði af fiski og tjöru. Drengurinn lét kassann á kinn- ungana áður en hann klifraði yfir í gömlu, grænmáluðu skektuna sína. Síðan flutti hann kassann yfir á þóftuna og leysti fangalín- una, tók svo aðra árina og „rikk- aði“ út úr höfninni, þá greip hann til árainna og leið hljóðlaust út á spegilsléttan hafflötinn. Spölkorn frá landi lagði hann inn áramar. Sólin bakaði herðarnar á honum þegar hann laut til þess að leita að lyklinum í buxnavasanum. Þegar hann fann lykilinn kraup hann á hné og opnaði kassaun. Þarna lágu þeir — fjórir tindátar, ásamt tveimur lögulegum stein- um. Einn dátinn var með hægri hendi á lofti reiðubúinn að kasta handsprengjunni. Sá næsti miðaði byssunni á fjandmanninn. Þriðji var á harðahlaupum og otaði byssustingnium, en fjórði lá í leyni bak við runna. Drengurinn þekkti hvert smáatriði einkennis- búninganna, já, hverja einustu skirámu. Einu sinni voru þeir hans óska- draumur. Nú hataði hann þá. Hann mundi glöggt daginn þeg- ar hann fékk þá. Það var aumi dagurinn. Síðan voru nær tvö ár. Þá var hann átta ára og það var ljóta vitleysan, isem hann gerði þá. En hvað hann mundi það allt greinilega. Pabbi og mamma höfðu gengið út í skóg að leita að isveppum og þegar þau voru <að' fara kom send- ill með peninga til þeirra og mamma hafði lagt þá upp á stofu- s'kápinn. Litla systir hans lék sér með elztu dóttur nágrannans úti í garðinum. Þær skemmtu sér vel. En honum leiddist. Hann átti engan leikfélaga, því að hann .nátti ekki eignast tinsoldáta. Pabbi og imamma vildu ekki gefa honum þá. Þau hötuðu stríð, sögðu þau. Hann mátti gjarnan fá einhver önnur leikföng, bíl, hnoðleir eða bók. En hann Var fúll og vildi það' ekki. Það voru dátarnir sem hann þurfti á að halda. Allir drengir áttu dáta, en hann ekki, ekki einu sinni gamla og ljóta. Foreldrar hans skildu ekki neitt. Hann var heldur ekkert hrifinn af stríði, eða það fannst honum að minnsta kosti. En honum þótti gamian að leika við þá Kjart- an og Eirík. En þeir vildu ekki hafa hann með, af því að hann átti enga dáta. Á fyrstu ferð siuni um stofuna tók hann ekki eftir peningunum, en i annarri ferðinni irak hann augu í þá og það var eins og þeir seiddu hann til sín. Það voru miklir peningar, einn hundrað krónu seðill og bunki af tíu krónu seðlum. Hann fór að handfjalla seðlana. Hann varð sífellt sárari út í mömmu. Þurfti hún alla þessa peninga, bara til þess að kaupa mat fyrir og hann sem þarfnaðist þeirra til miklu þýðingarmeiri nota. Allt í einu voru tveir tíu krónu seðlar komnir i vasa hans. Hann kreisti þá í lófanum. Þeir voru allir samanbögglaðir þegar hann kom út í bókabúðina, sem einnig seldi leikföng. Hann komst ekki

x

Austurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.