Austurland


Austurland - 23.12.1966, Side 9

Austurland - 23.12.1966, Side 9
Jólin 1966. AUSTURLAND 9 hann Jónsson almátt.uga, Björns- sonar. Ríkharð hét sonur þeirra ni. a. Fór til Ameríku, afkomend- ur ha-fa reynzt hæfileikamenn, einkum í hljómlist. 3. Kristborg, f. 1822. Átti I Pétur Stefánsson frá Miðfirði, var hann ekkjumaður og 30 árum eldri en hún, áttu eitt barn sem dó ungt. II átti hún Jón ........ Illugason var einnig seinni kona hans, átti ekki barn. Var hann 25 árum eldri en hún. Kristborg þótti skörungskona. Börn Oríms og Arndísar 4. Rósa, f. 27. júlí 1830, átti Guðna bónda í Leiðarhöfn Er- lendsson. Móðir hans var Anna hálfsystir Sigurðar í Gautlöndu-m. Afkvæ.ni þeirra er ma,rgt. 5. Anna f. 12. júlí 1831. Átti Eyjólf Björnsson frá Hvannfelli, Péturssonar. Frá einu barni þeirra Rósu í Vestmannaeyjum, eru ætt- ir. 6. Grímur, f. 12. júlí 1832. Hann var smiður og myndarmaður, átti Sigríði Eymundsd., systiur Sigfús- ar. Af þeim er kominn fjöldi manna. 7. Hjáknar, fæddur eftir lát föður síns 22. ágúst 1833, átti Lilju Sigfúsdóttur frá Sílisstöð- um í Kræklingahlíð. Áttu 2 börn, eru ættir frá öðru þeirra. Hjálm- ar þótti á ýmsan hátt líkur föð- ur sínum, hagvirkur og afburða- skytta, álitsmaður, rólyndur og þýðlegur. En það bar til er hann var vinnumaður í Strandhöfn á unga aldri að sæskrímsli fór að setja í skeri þar inn með land- inu. Þótti mönnum þetta undrum sæta og töldu vera hafmann. Var skotið á hann, en hann sat sem áður. Hjálmar vildi ekki gefa sig að þessu, en því fastar var leitað á hann að reyna skotleikni sína. Að síðustu lét hann undan og lét silfurhnapp í skot sitt og brenndi á hafmanninn. Valt hann þá of- an af skerinu og sást ekki síðan. En það er af Hjálmari að segja, að algerlega var honum horfin skotleikni og helzt það til ævi- loka, og fleira breyttist í fari hans, er eigi þótti til bóta. Náði hann háum aldri og lifði fram í mitt minni. Ég heyrði skilríka menn staðfesta að þetta var satt. Ath. Egill Jónsson býr á Skútu- stöðum 1712, verið gat Jón sonur hans. Fyrri kona Jóns Egilsson- ar hefur verið Guðrún Magnús- dóttir Þorvaldssonar prests í Presthólum 1703 Jónssonar. Egill sonur þeirra bjó í Kumlavík á Langanesi og var fóstri Hlaupa- Manga, en barnlaus Benedikt Gíslason, frá Hofteigi. Bffkur Ægisútgdlininr Ægisútgáfan hefur, eitt allra 'útgáfufyrirtækja, sent blaðinu til umsagnar jólabækur sínar sjö að tölu. Enda þótt bæknmar hafi borizt svo seint, að enginn tími hefur verið til lesturs skal þeirra þó stuttlega getið. Gaddaskata Stefán Jónsson, fréttamaður náði almennum vinsældum1 með fyrstu bók sinni, sem út kom 1961. Og ekki hefur dregið úr vinsældum hans við hinar síð'ari bækur. Stíll Stefáns er ákaflega persónulegur og hann hefur lag á að koma lesendum í opna skjö’du. En ég hygg, að bók- menntaménn séu ekki á því, að hér sé um1 að ræða bækur, sem hafa mikið af því sem kallað er bókmenntalegt gildi, en ósvikinn sksmmtilestur eru þær. Gaddaskata, hin nýja bók Stef- áns, er 200 bls. að stærð, prýcld teikningum eftir Ragnar Lárus- son. Sjósíys og isvaðilfarilr Jónas St. Lúðvíksson hefur á undanförnum árum sent frá sár nokkrar bækur um sjóslys og sjóhrakninga. Nú gefur Ægisút- gáfan út nýja bók eftir hann ua þetta efni. Nefnist hún Sjóslys og svaðilfarir. Hefur hún inni að halda 10 sjóslysafrásagnir 5 ís- lenzkar og 5 þýddar. Bókin er 174 bls. með mörgum myndum. Kastað í Flóanum I bók þessari segir frá upphafi togveiða við Ísland. Höfundurinn, Ásgeir Jakobsson, var sjálfur lengi sjómaður og þekkir því við- fangsefnið vel af eigin raun. Bók- in er 238 bls. myndskreytt. Hún hefur inni að halda fróðleik um togaraútgerðina, en er auk þess m'ikill skemmtilestur, ef dæma má af efnisyfirliti. Á förnum vegi Svo nefnist bók eftir Loft Guð- mundsson. Þetta eru samtalsþætt- ir 11 talsins. Sumir eru viðmæl- endur Lofts þjóðkunnir menn svo sem Halldór Kiljan Laxness, Sig- urður Sveinbjörnsson (Siggi á kassanum) og Gunnfríður Jóns- dóttir, myndhöggvari. Bókin er 218 bls. prýdd mörgum myndum. Maddame Dóróthea Þetta er skáldsaga eftir norsku skáldkonuna og Nobeisverðlauna- höfundinn Sigrid Undset og er þetta síðasta sagan, sem hún skrifaði og er söguleg skáldsaga frá 18. öld. Bókin er 251 bls. Þýðandi er Arnheiður Sigurðar- dóttir. Fione er ástarsaga eftir Denise Robins 232 bls. þýdd af Óla Hermanns. Glaðir dagar Þetta er barnabók eftir Ólöfu Jónsdóttur og hefur að geyima smásögur, ljóð og þulur og einn- ig iag eftir Fjölni Stefáns'son. Bókin, sem er myndskreytt, er 88 bls. Meira treysti ég mér ekki til að segja af þessum bókumí ólesn- um. Guðmundur Jakobsson ætti að athuga það, að senda bækur sínar fyrr, ef hann óskar ýtar- legri umsagnar uim þær fyrir jól. Því má bæta við, að allar eru bækurnar vel og smekklega út- gefnar. En a,f því, sem ég er bú- inn að lesa af Gaddaskötu, sé ég, að prófarkalesari útgáfunnar er ekki nógu vandvirkur, því ég hnaut um fjöl'miargar prentvillur. Vonandi er prófarkalestur hinna bókanna vandaðri. Það er auðséð, að Ægisútgáfan Stefán Jónsson, fréttamaður. hefur hagað vali útgáfubóka sinna svo, að allir — eða a. m. k. flestir -— gætu fundið þar bók við sitt hæfi. Reinhardt Reinhardtsson: Til fjalla svanir fljúga (Reinhardt Reinhardtsson, höfundur þessa ljóðs, fæddist á Norðfirði og ólst þar upp. Annar gamall Norðfirðingur, Svav- ar Benediktsson, hefur gert lag við ljóðiðj. Nú hýrnar vangi hlíðar og heiðar Iyftist brún. Nú brosa ;brekkur fríðar og blómgast engi og tún. Til fjalla svanir fljúga og fylla loftin söng um silungsvötnin safír blá og sumarkvöldin löng. Með aftanblænum blíða um bláan himingeim nú Iæt ég hugann líða á litlum vængjum beim Er voríð faðmar fjörðinn og fja'la bláan hring ég eins og mildur aftanblær um átthagana syng.

x

Austurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.