Austurland


Austurland - 23.12.1966, Blaðsíða 15

Austurland - 23.12.1966, Blaðsíða 15
Jóiin 19ÚÚ. A U S T U R L A N D 15 að þessum atburði eru kunn nú á tímum. — Frásögn hans við árið 1745 er þannig — orðrétt: „Var vetur (1744—45) harður með frostgrimmdum. — Kom snemma hafís að Austurlandinu, so allar víkur voru fullar og firð- ir. Mátti það allt ganga. Sunnudaginn í föstuinngang (28. febr.) skeði það í Loðmund- arfirði, að bóndinn, sem bjó á Nesi, Oddur Guðmundsson, gekk til kirkju með konu sinni og börnum, og með því fjörðurinn var lagður, gekk sumt af fólkinu á ísi, en so fór, að það gekk ó- gætilega og hitti á veikan ís. Týndist þar téður bóndi með konu sinni, Þuríði Jónsdóttur, og tveimur börnum þeirra. Konan náðist lifandi úr vökinni, so hún talaði við fólk, sem nálægt var, og haft fataskipti. Þó dó hún í sama sin-n, meintu menn af of 1 miklum kulda“. Sannarlega hefur þetta ferða- lag tekizt mjög slysalega ekki síð- ur en sjóferðin, þegar báturinn fórst á Sléttanesboðanum. Hér er það tekið fram, að orsök þessara ófara hafi verið ógætni, og verð- ur þó að gera ráð fyrir, að það hafi verið sjálfur heimilisfaðirinn, sem stjórnaði ferðinni, fullorðinn og trúverðugur maður. — En næm eru slysin, segir máltækið, og það mun hafa sannazt hér. Börnin, sem drukknuðu í vökinni ásamt föður sínum, voru piltur og stúlka, Snjólfur og Guðrún að nafni. Afkomendur hjónanna á Nesi, Þuríðar frá Brimnesi og Odds, hafa verið nefndir Galdra-Imbu- ætt (smb. Ættir Austfirðinga, nr. 10643), fremur en aðrir afkom- endur Ingibjargar og séra Árna, enda hefur niðjatali þeirra verið haldið vel til haga frá upphafi, en óábyggilegar upplýsingar um hina. Börn þeirra Neshjóna voru átta, sex synir og tvær dætur. Þau, sem fórust ásamt föður sín- um eru áður nefnd, nöfn hinna voru þessi: Jón (eldri), Jón (yngri), Guðmundur, Ögmundur, Tómas og Málfríður. Hér verður svo ekki gerð nán- ari grein fyrir þessum systkinum eða afkomendum þeirra, en að minnstra kosti hjá fyrstu ættlið- um voru góðir kostir og hæfileik- ar greinilega ríkjandi einkenni. Sama má eflaust segja einnig um síðari kynslóðirnar, ef það væri athugað gaumgæfilega. I Ættum Austfirðinga, 6. b. nr. 10643—10844, eru góðar og greinilegar upplýsingar um Galdra-Imbu-ætt. Sigríðar Jónsdóttur Ketilsson- ar frá Brimnesi hefur verið getið hér að framan í kaflanum um bændur í Mjóafirði í sambandi við mann sinn, Jakob Pétursson, er siðast bjó á Brekku þar í sveit. Barna þeirra er einnig getið þar. Sigríður mun að vísu hafa gifzt aftur, að Jakob látnum, en þar sem flest er óljóst og óvíst um síðari hluta ævi hennar verður ekki nánar frá henni sagt hér. 2. — Árni Hjörleifsson bjó í Firði í Seyðisfirði sumarið 1710 og hefur greinilega verið í miklu trjáviðarhraki um þær mundir, eða svo er að sjá af skýrslunni um vogrekasöluna þar í sveit þetta sumar, þar sem þess er getið sérstaklega um kaup hans á tveimur rekaviðarspýtum, að hann hafi fengið þær keyptar vegna „stórrar þarfar“ og „stór-nauð- synja“, og þar að auki fékk hann fyrirheit um meira seinna hjá sýslumanninum. Árni var fæddur 1664, dó 1720 —30, líklega nær síðara ártalinu. Faðir hans var Hjörleifur b. á Geithellum í Álftafirði og víðar — Jónsson prests í Bjarnanesi í Nesjum (1622—71) Bjarnasonar silfursmiðs á Berunesi á Beru- fjarðarströnd — Jónssonar. En kona Bjarna silfursmiðs á Beru- nesi var Sigríður Einarsdóttir prests í Heydölum Sigurðssonar, hins mikla skálds 16. aldar og hins mikla ættföður, sem Hey- dalaætt er rakin til, svo sem kunnugt er. Kona Hjörleifs Jónssonar á Geithellum og móðir Árna bónda í Firði hét Emerenzíana Árna- dóttir — stundum kölluð Emma, ættuð af Vesturlandi (smb. Ætt- ir Austfirðinga neðanmálsgr. bls. 643, eftir E. Bj.). Árni Hjörleifs- son var því aðfluttur til Seyðis- fjarðar úr suðurhluta Múlasýslu og þaðan ættaður og upprunninn. Bessi Guðmundsson sýslumaður, sem var frá Melrakkanesi í Álfta- rui, og Árni voru því úr sömu sveit og tengdir þannig, að ein af systrum Árna var kona Brynjóifs bónda á Melrakkanesi, bróður Bessa sýslum. Fardagaárið 1699—1700 var Árni farinn að búa í Firði og trúlegt, að hann hafi flutzt þang- að fáeinum árum áður. Það' ár bjó hann þar tvíbýli og sömuleið- is þrjú þau næstu — að einu þó undanteknu — og trúlegt, að oft- ast hafi verið þar tvíbýli á þess- um árum, en búskapur var í smáum stíl hjá sambýlisbúendun- um, að því er virðist á þessu tímabili, sem kunnugt er um það efni. Árni hefur auðsjáanlega verið aðalbóndi jarðarinnar. Hann bjó enn í Firði fardagaárið 1710 —11, eins og áður er sagt, en sex árum síðar (1717) var hann kominn til Mjóafjarðar og bjó þar það ár, en ókunnugt bæði hvenær á þessu tímabili hann fluttist þangað og hvar hann bjó þar í firðinum. Tveimur árum síðar hefur hann sennilega verið farinn þaðan aftur og líklega flutzt þá að Staffelli í Fellum. Þar bjó hann að minnsta kosti síðast og andast þar. Fardagaárið 1731— 32 var ekkja hans skrifuð þar fyrir búi (smb. bændatal þar ár í norðurhluta Múlasýslu). Af þriggja ára manntalsbók- inni úr miðhluta Múlasýslu má sjá, að efnahagur Árna hefur verið með því betra, sem tíðkaðist á þessum slóðum um það ley.ti, sem hún nær til. Lausafjártíund hans samanlögð þessi þrjú ár var 31-hundr. að verðmæti, og gjöld sín greiadi hann með fiski, 18 fjórðunga tvö fyrstu árin (90 kg.), en 3. árið er tekið fram, að hann hafi goldið skatt og gjaf- toll í hörðum fiski, en þyngdin ó- tilgreind. Þess er og getið í sömu heimild, að hann væri jarðeig- andi, en ekki hver sú jarðeign væri eða getið um verðmæti hennar, en varla mun það hafa verið ábýlisjörðin, Fjörður í Seyðisfirði, sem átt var við. Hins vegar er trúlegt, að hann hafi átt Staffell í Fellum, þegar hann bjó þar, og sé annað hvort átt við þá jörð í manntalsbókinni eða hluta af henni, eða hann hafi síðar eignazt hana. Kona Árna var Ragnhildur (f. 1672) Högnadóttir prests í Ein- holti á Mýrum í Hornafirði (1650—78) — Guðmundssonar prests s.st. — Ólafssonar prests og sálmaskálds á Sauðanesi — ættföður Sauðanesættar. — Móð- ir Ragnhildar var seinni kona séra Högna, Þórunn að nafni, dóttir séra Sigfúsar prests í Hof- teigi Tómassonar og Kristínar konu hans, Eiríksdóttur frá Bót, sem nefnd voru hér að framan í sambandi við giftingu Snjólfs Indlandsfara á Urriðavatni. Ragn- hildur og séra Eiríkur Sölvason prestur í Þingmúla hafa því líka veiið systrabörn. Fyrri kona séra Högna Guð- mundssonar hét Þóra (yngri) Sigurðardóttir prests á Breiða- bólsstað í Fljótshlíð — Einars- sonar skálds í Heydölum. Séra Sigurður, faðir hennar, og Oddur biskup Einarsson voru albræður. Meðal barna þeirra — hálfsyst- kini Ragnhildar — voru þrír syn- ir, sem allir urðu prestar og komu nokkuð við sögu á sínum tíma og þó einkum ættfræðina austan- lands á 18. öldinni. Nöfn þeirra voru: Sigurður, var prestur í Einholti eftir föður sinn, Páll prestur á Valþjófsstað1 og Guð- mundur prestur á Hofi í Álfta- firði (1683—1745). Guðlaug hét systir þeirra, seinni kona Sveins Jónssonar, sem oftast er kenndur við Svínafell í Öræfum, en hann var langafi Sveins Sveinssonar ,,eldra“ bónda og hreppstj. í Vestdal í Seyðisfirði. í manntalinu 1703 eru þrjú börn skrifuð hjá þeim Árna og Ragnhildi í Firði, það elzta Emer- enzíana, 7 ára, Þrúður, 6 ára og Sigfús, 4 ára. Auk þess er kunn- ugt um tvo syni, sem þau áttu seinna, Jón og Hjörleif. — Tvö þessara barna koma við sögu síðar, Emerenzíana og Hjörleifur — og Jón einnig litið eitt, en Þrúður og Sigfús eru meðal þeirra mörgu, sem skráð eru í áður nefndu manntali, en finnast svo hvergi nefnd síðar. Veldur því einkum tvennt, annað, að lítið er um skjöl og persónuleg skilríki frá 18. öld, einkum fyrri hluta hennar. Margur lifði því eolilega ævilengd á þeim tíma og dó án þess að nafnið sé nokkurs staðar að finna í skjölum frá samtímanum eða öðrum heimild- um. Hitt er drepsóttin Stóra- bóla, sem fór um landið 4—5 ár- um eftir að öll þjóðin var skrá- sett og varð rúmlega þriðja hverjum mianni að bana. Emerenzíana giftist Þorsteini (f. 1692) Þorsteinss. b. í Firði í Mjóaf. fyrir og um 1703 — Þor- steinssonar, bróður þeirra Bjarna og Jóns Þorsteinssona, sem áður er getið. I mannt. 1703 er hann skráður hjá foreldrum sínum í Firði, 11 ára gamall, ásamt syst- kinum sínum. Hann bjó þar líka á árunum 1717—20 og ef til vill eitthvað lengur, en fluttist síðan að Kirkjubóli í Norðfirði og bjó þar lengi — líklega fram yfir 1750, því að sumarið 1754 var Jón, sonur þeirra, sem þá var um tvítugt, búandi þar annars veg- ar. Seinna bjó hann víða bæði á Norðfirði, en þó einkum á Mjóa- firði. Dótturbörn hans voru Þor- leifur b. á Brimnesi í Seyðisfirði, Kristín kona Hermanns Sigurðs- sonar, sem kallaður var „skræk- ur“ o. fl. — Jón sonur Þorleifs b. á Brimnesi, fluttist að Úlfs- stöðum í Loðmundarfirði og bjó þar síðast (1880—1904) og síðan afkomendur hans þar til fyrir fá- um árum. —- Börn Kristínar voru m. a. a) Jón Hermannsson í Hvammi í Mjóafirði (1877—88), afi Hermanns Jónssonar, fyrra manns frú Önnu Jónsdóttur frá Fjarðarkoti í Mjóaf., nú í Nes- kaupstað og sömuleiðis afi Þrúð- ar Guðmundsdóttur kennslukonu í Neskaupstað, b) Rósamunda, móðir Hermanns Þorsteinssonar kaupm. á Seyðisf. og c) Guðný, seinni kona Þorsteins Hinriks- sonar á Norðf. og síðar Mjóa- firði, o. fl. Auk Jóns áttu þau Emerenzí- ana og Þorsteinn þrjár dætur, sem kunnugt er um, hétu Guð- rún, Þórunn og Þrúður. Guðrún giftist bónda á Fljótsdalshéraði, Þórunn var kona Jóns „eldra“ Jakobssonar, eins og fyrr segir, þar sem sumira barna þeirra er einnig getið, s. s. Þorleifs, er keypti 2/3 af Nesi í Norðf. á sínum tímia — áisamt meðfylgj- andi hjáleigum (1787). En sú þriðja Þrúður (f. 1736) giftist séra Þorsteini Benediktssyni presti í Mjóafirði (1758—66) og á Skorrastað (1771—96), prýðilegum manni og góðum piresti. Afkomendur þeirra eru mjög ma-rgir og vonu lengi fjöl- mennir bæði á Norðfirði og Mjóa- firði. Meðal bama þeirra var séra Benedikt prestur á Skorrastað eftir föður sinn til 1845. Dóttur- sonur séra Þorsteins, séra Jón Hávarðsson, var lengi aðstoðar- prestur hjá honum og síðan all- lengi sóknarprestur að honum látnum. Framh.

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.