Líf og list - 01.04.1951, Side 4
M YNDLIST
Nýjustu myndir Braques, Picassos og Matisses
Eftir Patrick Heron
FYRRI GREIN.
FYRIR TÆPUM tveim árum (1949) átti ég
því láni að fagna að koma í vinnustofu Braques
í París og dvelja þar góða stund. I>etta er stórt
og mikið herbergi með' víðfeðmum glugga, sem
veit í suður, og ég man, að þegar ég gekk inn í
stofuna, tók ég fyrst eftir svartri krukku, sem kom
mér kunnuglega fyrir sjónir. Þessi krús hékk ein-
hvers staðar í miðju lofti fyrir framan rjómalitað
gluggatjald, sem hjúpaði gluggann eins og gagnsæ
Nljleg mynd af vinnuatofu Braques
slæða. Gluggablæjan braut sólarljósið þannig, að
geislarnir dreifðust jafnt yfir herbergið. Gegnt
hennr var hin kröftuga, svarta krukka heillandi
hliðarmynd, voldug táknmynd. Krúsin var aðeins
þunnt koparstykki eða pjátursplata, sem hafði
verið skorin eða klippt eins og skuggamynd (sil-
houette) af krús; hún hékk á næstum ósýnilegum
þræði og snerist öðru hverju. Sern fnimleg hug-
mynd var hún þrungin undraverðum, en kyrrlát-
um krafti. Hún var gædd þeim lífrænu eiginleik-
um, sem einkenna myndir Braques af ólífrænum
og dauðum hlutum, að minnsta kosti þeim eigin-
leikum, sem koma fram í myndlist hans síðan
1940.
Þessi sérstaka lífsangan, þessi hæfileiki að vera
lifandi — þessi hæfileiki hlutanna að vera lifandi
— er eínnig táknræn fyrir myndsköpun Picassos.
En af krúsinni, sem ég gat um áðan, stafaði sann-
færandi glæsifágun (elegansi) og kvrrð, sem vó
upp á móti hinu róraskandi andrúmslofti, er skap-
ast af sjálfstæðu, annarlegu Hfi. Slík ró og slík
glæsifágun —- og þá ekki sízt tilfinning á ákveðnu
lokamarki formsins — er nokkuð', sem Braque
hefir fram yfir hinn mikla samtíðarmann sinn,
Picasso. Picasso er snillingur í að finna upp, mynd-
ir hans eru eins og uppdrættir af sifelldum nýjum
tilraunavélum; en Braque skilur aldrei við neitt a
tilraunastiginu; hann framkvæmir ávallt áætlun-
ina, hugmyndina, þar til hann kemur að síðustu
pensilförunum, sem oft eru hreinar skreytingar.
Hinar einföldu svipmyndir (skissur) hans eru jafn-
vel gæddar þeim auðuga hæfileika, að vera eitt-
hvað, sem er algerlega fullgert og unnið: í hinum
einföldustu smáteikningum hans er fylling, mað-
ur hefir það á tjlfjnningunni, að hugmynd lista-
mannsins hafj verið gerð rækileg skil með náttúru-
fræðilegri fullkomnun. Braque forðast uppdrættn
jafnveM skissum sínum, en Picasso heffe- jafnvel
LÍF og LIST