Líf og list - 01.04.1951, Blaðsíða 22

Líf og list - 01.04.1951, Blaðsíða 22
ÞJÓÐLEIKHÚSXÐ: Heilög Jóhanna Eftir G. B. SHAW Leikstjóri: HAR. BJÖRNSSON Bemard Shaw var svæsinn vantrúar- maður í þeim skilningi, að hann trúði hvorki á Mammon né kirkju- og klerka- vald. í leikriti sínu,tHeilagri Jóhönnu, tjáir hann, að eitthvað, sem hvorki byggist á vísindalegum né rökfræðileg- nm sannreyndum, en óbifandi sannfær- ingu, — þetta, sem kallast trú hjartans, geti aldrei verið frá manninum tekið, hvorki með málshöfðun, húðstrýkingu né hótunum um að brenna menn á báli. Hann byggir Ieikritið á sögunni um frönsku sveitastúlkuha, Jeanne d’Arc, sem hafði mikið af þessari hjartans trú og gerði það, sem röddin í brjóstinu (rödd guðs, eins og hún kallaði harta) sagði henni að gera. Með því að trúa einlægt á þessa innblásnu rödd, tókst henni að inna sum dularfull verk af hendi, sem fáum mcnnskum mönnum væri auðið. Þó að Shaw sty^jist við at- burði sögunnar að mestu leyti, færir hann sjálfa söguhetjuna í nútíðarbúning. Sagan hermir, að Heilög Jóhanna hafi verið brennd á báli fyrir galdra, en Shaw er ekki á því: hún er brcnnd, vegna þcss að hún vill ekki beygja sig undir lagabókstafi kaþólska kirkjuválds- íns, sem cr hliðstætt því, er gcrist nú á dögum, þegar ríksvald eða trúar- bragðastofnanir svipta cinstaklinginn skoðana- og trúarfrelsi. Leikritið þjónar vel þcim tilgangi höf- undarins, að sýna togstreitu einstak- lingslegrar og félagslegrar samvizku. * Leikur Onnu Borg cr fágaður og á- hrifamikill á köflum. Hún virðist hafa óvenjumikla tækni og skólun. Lárus Pálsson 5kilur sitt hlutvcrk bet- ur en flestir aðrir leikendumir. Persóna Shaws skín út úr hverjum drætti. Rúrik Haraldsson sýnir cftirtektar- verðan leik; einkum er honum sýnt um rösklegar hreyfingar og fallegan limaburð. Indnða Waage hefir áður tekizt bet- ur upp en í þetta sinn. Onnur hlutverk eru yfirlcitt þokka- lega af hendi leyst. Þó cru alvarlcg mistök í 6. atriði; þar kvcður ramt að því, að sumar aukapersónur ofgeri hlut- verkum sínum með fígúrulcgum svip- brigðum. Leiktjöld eru smekkleg; sérstaklega hafa þau tekizt vel í 3. atriði. Úr þriðja atriði: Á BÖKKUM LEIRU Frá hægri til vinstri: Dunois höfuðsmaður (Rúrik Haraldsson), Heilög Jóhanna (Antia Borg) og varðsveinninn. 22 LÍT og LIST

x

Líf og list

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.