Líf og list - 01.04.1951, Blaðsíða 19

Líf og list - 01.04.1951, Blaðsíða 19
Svavar Guðnason. listmálari: París. - Nei. gáðu að guði Svar til Thórs Vilhjálmssonar ENDA ÞÓTT Thór Vilhjálmsson ætli að nýtt og mikið sé nú um að vera í myndlist í París, fer því þó fjarri. Og það er af því, að listin í París hefir smam saman verið innlimuð í hvers- dagslegt braskkerfi peningavaldsins. Það er verzl- að með listaverk h'kt og höndlað er með kram- vöru í verzlunarhúsunum, þar sem framkvæmdar- stjórn ákveður útlit og verð vörunnar, — hér er ekki um að ræða neitt rómantískt „stefnumót við hið stærsta í samtíðinni“, heldur óskáldlega list- pólitík sem framast má verða, — baráttu fyrir daglegu brauði, baráttu fyrir því að láta bera á sér og þjóna forstjórum. Sá, sem dvalið hefir í París og haft nokkur kynni af listafólki þar, veit, að listamaðurinn er þar í meiri ánauð en nokkurs annars staðar, hann er bókstafléga eign listkaupmanna. Hann er samn- ingsbundinn að’ afhenda ákveðna tölu mynda á ári. En ekki einasta er listamönnum stjórnað á þessa lénsvísu, listbókaforlög og rýnendur eru einnig starfræktir til auglýsinga og áróðurs. Allt til að veita peningavaldinu, en píra við listina. Óneitanlega var París áður miðsetur myndlist- ar, þar sem listamenn höfðu stefnumót og létu ínnblásast hver af öðrum og stóðu í fylkingar- brjósti frjórrar listsköpunar alls heimsins, en það er það, sem var, en ekki er nú. Með gegndarlausri og vaxandi skipulagningu listarinnar í hagkerfi peninganna hefir listkaup- mennskan innleitt óbeint einræði í list, sem hægt en óskeikult kyrkti sjálfstæða og persónulega sköpun. Þetta óbeina einræði kapítalista í listinni hefir rænt listamanninn forgöngu og grafið undan frumskapandi mætti hans. Málari eins og Man- essier (o. fl. o. fl. mætti nefna) apar t. d. eftir Klee og annar apar aftur Manessier, og enn þriðji apar apa Manessiers, sem sagt frá Klee reiknað þrisvar sinnum útvötnuð öpun á Klee, — varfærni, hálf- velgja, sem til fullkomnunar nýtur hylli kaup- mennskunnar og lélegasta smekks lýðsins. I París er ekki ekki málað eftir hjartanu, en eftir pró- grammi mammons og í ginnandi von um heims- frægð, og það er þess vegna að svo lítið gerist þar í list. Að vegsama einn af „sölunum“ á hinna kostn- að eins og Th. V. gerir kemur mér fyrir sjónir sem prettur, svo ekki sé sagt hreppapólitík og vinaþjónusta. Salirnir eru einskonar markaðstorg, hvert öðru líkt, þar sem m. a. þeir, sem ekki era komnir í skipsrúm falbjóða sig, — að fimm enn óþekktir íslenzkir menn, sem sýndu verk sín á þessum heimsmarkaði, „hlutu góðan orðstír“ gæti líka verið bending um annað en mikilleik þeirra stóru í listinni í París. Þá gerir Thór ekki minnstu tilraun til þess að útlista anda eða inntak hinnar nýju listtegundar í París og nefnir hvorki einstak- Iinga né málarahópa, en vísar til greinar eftir ann- an mann sem muni birtast, betur væri að hann gæti snúið mér villuráfandi. Að kappdeila á sal „surindependanta“, sem Thór hefir aldrei séð, er gott dæmi um þann óviðurkvæmilega belging, sem einkennir þessa ritsmíð hans. Ég hefði óskað að listamenn og listin í París hefðu verið í öðru ástandi en raun bar mér vitni um, — ég fór ekki til Parísar til að sitja þar á amerískum krám og sjá hlálegt fólk og frægðar- menn ganga hjá, heldur beinlínis til að sækja þangað eitthvað jákvætt fyrir starf mitt. Kaupmannahöfn, 9. apríl ’51. Svavar Guðnason. P.S. í dag barst mér grein Hjörleifs Sigurðs- sonar. Hann telur upp fjöldann allan af nöfnum og skýrir „nýja málara í París“, kallinn Gromaire og aðra rykfallna fiska. En þetta eru ekki né verða nýir menn, — og minnst af öllu að nýskapandi inntaki, en það er það sem hér átti að ræða um. Það er gamalþekkt að reyna að blanka gamla skó með ofnsvertu og ég tel svo hæpið að með grein H. S. og þeim ljósmyndum er fylgja henni verði platað uppá íslenzka lesendur skoðun um nýtt að gerast í París og spara mér því frekari orðræður. Líf og LIST 19

x

Líf og list

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.