Austurland


Austurland - 23.12.1979, Page 23

Austurland - 23.12.1979, Page 23
var það mátulegt í kerru. Vigtað var 10. hvert híf, eins og gert hafði verið við pokana. Þetta gekk svo lygilega vel, að afköstin tvöfölduðust. — Áhuginn hefur verið svona mikill. Reyndar man ég vel eftir þessu, því ég vann að uppskipuninni. Áhuginn var alveg sérstakur. Það var ekki gengið eftir bryggjunni, það var hlaupið með kerrumar. Kerrumar urðu alltaf að vera til, þegar tunnurnar komu úr lestinni. Það var glaðasólskin þennan morgun og blíðalogn. Næst tókum við svo upp hjólbörur, því pá var hægt að keyra upp á binginn. Þá var látin ein tunna í hverjar hjólbömr. — Hver var verkstjóri? Það munu }>eir hafa verið, Sigurður og Jón, svarar Ölver. Jón var mjög þjálfaður og vanur verkstjóri. — Ég heyri, að þessi saltkaup eru ykkur minnisstæð og þið dálítið roggnir af. Það er eðlilegt. Þá brutum við kaupmannavaldið á bak aftur. Ef þessi saltpöntun hefði farið út um þúfur, hefði Samvinnufélagið ekki orðið til. — En svo við snúum okkur aftur að félagsstofnuninni. Var þátttaka almenn af hálfu útvegsmanna? Á stofnfundinum gengu í félagið 44 smábáta- og trillueigendur. En við Samvinnufélagsmenn munum fljótt hafa orðið 60, þegar Suðurbæingar voru komnir með og allir árabátamenn, sem komu j>ama á þessum tíma, þegar það var aðaiatvinna manna að fiska. En sjö hinna stærri útgerðar- manna voru ekki með. Þeir stofnuðu eigið félag, „Sjöstjömuna“, en þegar fram liðu stundir gengu flestir þessara manna í Samvinnufélagið. — Var ekki Ölver fyrsti formaður félagsins? Jú, svarar Sigurður. Hann var aðalhvatamaðurinn að stofnun félags- ins og aðalmaðurinn í styrjöldinni við kaupmennina. Við svo búið yfirgef ég samkvæmið. Þremenningamir sitja eftir og halda áfram að rifja upp lærdómsríkar minningar frá þeim tíma, þegar útgerðarmenn voru að brjóta samtökum sínum leið til aukinna áhrifa og vinna þeim þegnrétt. Óskum viðskiptavinum nær og fjær gleðilegra fóla og farsæls komandi árs Þökkum ánægjuleg viðskipti á árinu sem er að líða Bókaverslun Höskuldar Stefánssonar Neskaupstað Óskum starfsfólki og viðskiptavinum gleðilegra jóia og farsæls komandi árs Þökkum ánægjuleg viðskipti á árinu sem er að líða Verzlunarfélag Austurlands Hlöðum Kaupfélagið FRAM sendir öllum viðskiptavinum sínum, félagsmönnum og starfsfólki bestu óskir um Cleðileg jól Farsælt komandi ár með þakklæti fyrir viðskiptin og samvinnuna á árinu sem er að líða. Austurland jólablað 1979 23

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.