Austurland


Austurland - 23.12.1979, Blaðsíða 27

Austurland - 23.12.1979, Blaðsíða 27
Að veljci þér ekki verri tiöjn — né vitlausari. í annað sinn voru þeir eitthvað að glettast Valdi og Bjarni. Varð j>á Bjarna að orði. Þú mátt fílotta alveg eins og við Skottu leikir. Aldrei spottar niig til meins mennskur pottasleikir. Óskari varð eitt sinn hugsað til ævilokanna og varð að orði. Þegar ég er fallinn frá farvi horfinn kinna. Þá mun eflaust blotna brá bestu vina minna. Tryggvi Vilmundarson yrkir stundum dýrt eins og j>essar vísur sýna. Hrannir fjörðinn byrgja brátt berja skörðin hrinur . Fannir svörðinn þekja þrátt þjökuð jörðin stynur. Hanna litla, hnellin, smá hýr á vanga, Ijós á brá. Blíð og mild sem hlessuð sól þig hlessi guð um þessi jól. (Jóhann Elíasson) Sjálfur mínar sorgir ber ég sjálfum kenni ég mér um flest. Sjálfs míns böðull sjálfur er ég sjálfur lcekna ég mig best. (Hafliði Nikulásson) Að endingu er hér ein vísa frá bæjarstjómarfundi fyrir nokkrum árum. Menn voru sem fyrr afskaplega sammála og hver eftir annan stóð upp og lýsti skoðun sinni J>annig „að }>eir væru á ]>ví að j>etta j>yrfti að gera“ o. s. frv. Fundarritari, Birgir Stefánsson fylgdist með umræðum en laumaði svo að mér miða með J>essari vísu. Við höfum margir alltaf verið á því og á því hef ég verið löngum stundum. Og ekki getur heldur farið hjá því að hinir séu á því á svona fundum. — Kristinn V. Jóhannsson Ljósið dó og dimmdi í kró dofi sló þá sérhvert hró. Þorri hló og hreytti snfó hertum spjó á land og sjó. Hylja snjóir flóru fróns flóum byljir skvetta. Vilja sjóir löngu lóns lófum mylja kletta. Hér koma svo nokkrar vísur án skýringa. aðeins getið nafns höfunda. Nípan háa nú er lág nærri bláum hulin sjá. Hnjúkar háir teygja tá tregur þá ég kveðja má. (Davíð Árnason frá Grænanesi) Eina vísu yrkja var ég beðin boðin var mér brátt í stað bíldótt sauðkind fvrir það. (Stefanía Árnad., Grænanesi) Elli mér er undra leið þci ungu sé ég fljóðin. Mér er ekki gatan greið gegnnm nýja móðinn. (Sveinn Sölvason) Heima í Brennu hef ég skjól hart þó blási norðan. Meðan kærleiks býr mér ból blíðlynd hringaskorðan. (Guðbjörg Bjarnadóttir frá Brennu) Þarsem eilíft orðaskak angrar mig á stundum. Er mér jafnan tungutak tregt á svona fundum. (Birgir Stefánsson) Bestu óskir, bærinn minn blasi við þér framtíðin hamingjuna hljót þú æ hnossin bestu um land og sæ. (Margrét Halldórsdóttir) Óskum viðskiptavinum okkar GLEÐILEGRA JÓLA og farsæls komandi árs. Þökkum ánæg juleg viðskipti á árinu sem er að líða. RAFSILFUR SF. Neskaupstað GLEÐILEG JÓL Farsælt komandi ár SJÁLFSBJÖRG Óskum viðskiptavinum okkar GLEÐILEGRA JÓLA og farsæls komandi árs. Þökkum ánægjuleg viðskipti á árinu sem er að líða. RAFGEISLI Neskaupstað Óskum viðskiptavinum okkar á Austurlandi GLEÐILEGRA JÓLA og farsæls komandi árs Þökkum ánægjuleg viðskipti á árinu sem er að líða. Trésmiðjan Hvammur Neskaupstað Óskum viðskiptavinum og starfsmönnum GLEÐILEGRA JÓLA og farsæls komandi árs. Þökkum ánægjuleg viðskipti á árinu sem er að líða. RAFALDA HF. Neskaupstað Austurland jólablað 1979 27

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.