Birtingur - 01.06.1958, Blaðsíða 35
virkjum við, hún
lýsir upp híbýli okkar . . .
Ég greiði atkvæði, herrar mínir,
gegn ónytsemd, og ég spyr:
Hvað kostar kílóvattið
af ást mannanna?
Gagnslaus ást má frekar fara í súginn
heldur en nytsöm ást, eða
eruð þið ekki sammála?
Rafmagn notum við:
það er dýrt. Ást manna
virðum við,
því við elskum líka.
En hún er ódýr, herrar mínir:
hún kostar ekkert.
3.
Á eigin spýtur
getur bifreiðin ekki fei'ðast.
Við verðum
að stjórna henni. Á eigin spýtur
ekur hún á vegleysur, ellegar
stendur kyrr ...
Ég greiði atkvæði, herrar mínir,
gegn ósérplægni, og ég spyr:
Er ekki margurinn svo
að honum verður að stjórna?
Stjórnlaus maður verðskuldar síst
að vera frjáls
frekar en bíll, eða
eruð þið ekki sammála?
Frelsi bílsins
getur orðið dýrt. Frelsi mannsins
verður ekki keypt.
Það er ódýrt, herrar mínir:
það kostar ekkert.
4.
öll þekkið þið efalaust
þjófana
í dagblöðunum.
Oft eiga þeir engan að, eru