Birtingur - 01.12.1960, Blaðsíða 6

Birtingur - 01.12.1960, Blaðsíða 6
innar; ætíð samt við þig. Þú breytist ekki í grundvallaratriðum, og þótt bylgjur þínar fari einhversstaðar ham- förum, þó eru þær annarsstaðar, lengra burtu, eins rólegar og hugsast getur. Þú ert ekki einsog maðurinn, sem stað- næmist ó götunni til að horfa ó tvo hunda fljúgast ó, en nemur ekki staðar þegar líkfylgd fer hjó; sem er viðmóts- góður að morgni og skapillur að kvöldi; sem hlær í dag og grætur á morgun. Ég heilsa þér, gamla haf. Gamla haf, það væri ó engan hótt óhugsandi að þú fælir í brjósti þér framtíðarnytsemdir handa manninum. Þú hefur þegar gefið honum hvalinn. Þú gerir ekki gróðugum augum nótt- úruvísindanna auðvelt að gizka ó þús- undfalda leyndardóma innstu skipunar þinnar: slík er hæverska þín. Maður- inn gumar sí og æ, og það af smó- munum. Ég heilsa þér, gamla haf! Gamla haf, hinar mismunandi tegundir fiska, sem þú nærir, hafa ekki svarizt í bræðralag. Hver tegund lifir ó sínum miðum. Skapferli og sköpulag, sem er breytilegt hjó hverri þeirra, skýrir ó fullnægjandi hótt það, sem í fyrstu virðist ekki annað en afbrigðileiki. Þannig er það um manninn, sem hefur ekki sömu ástæður sér til afsökunar. Jarðarblettur kann að vera byggður þrjátíu milljónum manna, en þeir álíta að þeir verði að forðast að blanda sér í tilveru nágranna sinna, sem eru einsog rótfastir við næsta jarðarblett. Frá full- orðnum til ungbarna lifir hver maður einsog villimaður í helli sínum, og fer sjaldan út úr honum að heilsa upp á 4 Birlintur

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.