Birtingur - 01.12.1960, Blaðsíða 12

Birtingur - 01.12.1960, Blaðsíða 12
Karel Capek: Það var alvanalegt lögreglumál: klukkan fjögur að morgni hafði bíll ekið yfir gamla, drukkna konu og horfið svo í burtu á fullri ferð. Og nú átti ungi lögreglufull- trúinn, dr. jur. Mejzlík, að hafa upp á þessum bíl. Ungir embættismenn eins og hann taka öll mál alvarlega. ,,Hm“, sagði dr. Mejzlík við lögregluþjón nr. 141, „þér tókuð sem sé eftir bíl í þrjú hundruð skrefa fjarlægð og sá sami bíll ók í burtu með ofsa hraða, síðan sáuð þér, hvar manneskja lá á götunni. Hvað gerðuð þér fyrst?“ „Fyrst hljóp ég til hinnar slösuðu" upp- lýsti lögregluþjónninn, „til að veita fyrstu aðstoð". „Fyrst áttuð þér að huga að bílnum“, drundi dr. Mejzlík, „og þar á eftir sinna kerlingunni. En það má vera“, bætti hann við og klóraði sér í höfðinu með penna- stönginni, „það má vera, að ég hefði gert það sama í yðar sporum. Þér tókuð sem sé ekki eftir númerinu á bílnum“, hélt hann áfram, „en veittuð þér engu öðru eftirtekt í sambandi við þennan bíl ...?“ „Ég er ekki frá því“, sagði lögregluþjónn nr. 141 hikandi, „ég er ekki frá því, að hann hafi verið dökkur. Kannski blár eða rauður, það var ekki svo gott að átta sig á því, vegna reyksins". „ó, guð minn góður“, veinaði dr. Mejzlík, „hvernig á ég að komast að því, hvaða bíll þetta var. Á ég kannski að hlaupa á milli bílstjóranna og spyrja: Afsakið, herra minn, yður hefur líklegast ekki orðið það á, að keyra yfir gamla kerlingu? Góði maður, hvað viljið þér að ég geri með þessar upplýsingar ?“ Skáldið 10 Birtingur

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.