Birtingur - 01.12.1960, Side 13

Birtingur - 01.12.1960, Side 13
Lögregluþjónninn yppti öxlum, ráðalaus eins og sú undirtylla sem hann var. „Af- sakið“, sagði hann, „eitt vitni hefur gefið sig fram við mig, en sá maður hefur ekk- ert séð. Hann bíður hér fyrir utan“. „Nú, látið hann koma inn“, hrópaði dr. Mejzlík reiður og rýndi árangurslaust í fáorða skýrsluna til að verða einhvers vísari. „Nafn og heimilisfang, með leyfi“, sagði hann hugsunarlaust og án þess að líta á vitnið. „Jan Kralík, stúdent í Tækniháskólanum“, sagði vitnið ákveðnum rómi. „Þér voruð sem sagt nærstaddur, herra stúdent, þegar ókunnur bíll ók yfir Bozenu Machakovu klukkan fjögur í morgun?“ „Ég held nú það, og ég verð að segja, að bílstjórinn átti alla sökina. Fulltrúinn skil- ur, það var enginn á götunni; ef bílstjór- inn hefði aðeins hægt á sér, þegar hann kom að vegamótunum ...“. „Voruð þér langt í burtu?“ greip dr. Mejzlík fram í. „Svona tíu skref. Ég var að fylgja vini mínum heim . . . úr kaffihúsi, og þegar við komum í Zitnagötu . . .“. „Hver er þessi vinur yðar?“ greip full- trúinn fram í á ný. „Hans er ekki getið í skýrslunni". „Jaroslav Nerad, skáld“, sagði vitnið og kenndi stolts í röddinni, „en liann gæti ekkert sagt yður“. „Hvers vegna ekki?“ drundi dr. Majzlík og greip í þetta hálmstrá. „Af því . . . af því hann er svona skáld. Þegar slysið varð, fór hann að gráta og flýtti sér heim eins og krakki. Núnú, þeg- ai' við vorum staddir í Zitnagötu, keyrði bílinn fram á okkur með ofsalegum hi’aða ...“. „Hvaða númer var á honum?“ „Það veit ég ekki, satt að segja, ég tók ekki eftir því. Ég sá bara þennan ofsa hraða, og þá sagði ég við Jaroslav, að ...“. „Hverskonar bíll var þetta?“ greip dr. Mejzlík fram í. „Fjórgengismótor", svaraði vitnið af sér- þekkingu. „Tegundina kannast ég ekkert við“. „Hvernig var hann á litinn? Hver sat í honurn? Var þetta opinn bíll eða ekki?“ „Það veit ég ekki“, svaraði vitnið dol- fallið. „Ég held, að það hafi verið svartur bíll, en ég sá það ekki svo greinilega, því þegar slysið varð, sagði ég við Jaroslav: Líttu á, þessir óþokkar keyra yfir mann- eskju og stanza ekki einu sinni“. „Hm“, sagði dr. Mejzlík óánægður, „þetta er vissulega alltsaman rétt og vel hugsað af yðar hálfu, en ég hefði orðið því fegn- ari, ef þér hefðuð tekið eftir númerinu. I'að er hræðilegt, hvað það er lítið sem fólk í rauninni sér. Það er augljóst mál, að þér vitið að bílstjórinn er sekur, það er augljóst, að þér hafið rétt fyrir yður, þeg- ar þér kallið þessa náunga óþokka, en þér lítið ekki einu sinni á númerið á bílnum. Hver sem vera skal getur dæmt, en að taka vel eftir því sem fyrir augun ber .. . Þakka yður fyrir, Kralík stúdent, ég skal ekki tefja yður meira“. Klukkustund síðar hringdi lögregluþjónn nr. 141 dyrabjöllunni þar sem skáldið Nerad leigði herbergi. ójú, hr. Neard var heima, en hann lá í bólinu og svaf. Skáldið glápti á lögregluþjóninn smáum, Birtingur 11

x

Birtingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.