Birtingur - 01.12.1960, Síða 37
GINSBERG OG „BEAT” KYNSLÓÐIN
— Þegar hann var yngri og ég var
yngri, þekkti ég Allen Ginsberg, ungt
skóld sem bjó í Paterson, New Jersey.
Þar fæddist hann og ólst upp, sonur
velþekkts skólds. Hann var líkamlega
veikbyggður og sólarlega truflaður af
lífinu sem hann gekk á hólm við þessi
fyrstu ór eftir fyrri heimsstyrjöldina
eins og það birtist honum í og um-
hverfis New York City. Hann var alltaf
að því kominn að ,,fara burt"; hann
ónóðaði mig, ég hélt aldrei að honum
myndi endast líf og koma því í verk
að semja Ijóðabók. Hæfileiki hans til
að lifa, ferðast og halda ófram að
skrifa vakti undrun mína. Að hann
hefur nóð þroska og fullkomnun í list
sinni gerir mig meira en lítið híssa.
— Það er skóldið Allen Ginsberg, sem
hefur ferðast í sínum eigin líkama á
þessum síðum gegnum óhugnanlega
lífsreynslu.
Þannig talar skóldið William Carlos
Williams um Ginsberg í formóla þekkt-
asta skóldverks Ginsbergs Howl and
other poems, sem er 40 síðna kver og
hefur selst í rúmlega 30 þúsund ein-
tökum.
Allen Ginsberg er kunnasta Ijóðskóld
,,Beat" kynslóðarinnar í Bandaríkjum
Norður-Ameríku. Hann er fæddur 3.
júní 1926. Móðir hans er rússneskur
innflytjandi. Howl er tileinkað vini
Ginsbergs, dadaistanum Carl Solomon.