Austurland - 29.05.1991, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR, 29. MAÍ 1991.
SUMARFERÐALAG
VERKALÝDSFÉLAGS NORÐFIRÐINGA
Fariö veröur frá Neskaupstaö mánudaginn 29. júlí kl. 900, ekiö sem leið liggur í
Kirkjubæjarklaustur og gist þar.
Gist 2 nætur á Hvolsvelli
Gist 3 nætur á Laugarvatni
Gist 3 nætur í Bifröst
Gist 3 nætur í Sæluhúsinu Dalvík
Skoðunarferðir frá öllum áningarstöðum.
KOSTNAÐUR: Morgunveröur, kvöldmatur, gisting og bíll, 12 dagar kr. 5.000,- pr. dag á mann
alls kr. 60.000,-.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU FÉLAGSINS.
Þeir sem hafa hug á að fara þessa ferð hafi samband við skrifstofu félagsins fyrir 1. júlí
nk. Staðfestingargjald greiðist fyrir sama tíma. Sími 71230.
Verkalýðsfélag Norðfirðinga
Nýtt ISIýtt
Höfum fengið inn nýja iínu af barnavörum:
Heimilssdeild Kf. Fram
★ Stólar
★ Baðborð
★ Göngugrindur
★ Ferðarúm
★ Kerrur
★ Bílstólar
★ Bílpúðar
★ Barnavagnar
Mikið úrval
af leikföngum
ÍSLANDSMÓTIÐ 3. DEILD:
Neskaupstaðarvöllur (malarvöllur)
Þróttur-Skallagrímur
Laugardaginn 1. júní kl. 1415
ALLIR Á VÖLLINN
Þróttur
Glettingur
Nýtt austfirskt tímarit
, Nú um mánaðamótin maí-
júní mun fyrsta hefti nýs aúst-
firsks tímarits sjá dagsins ljós.
Tímaritið mun bera heitiö
Glettingur og áformað er að það
komi út 4 - 6 sinnum á ári og
hvert hefti verði 40 blaðsíður að
stærð.
Það er Prentverk Austurlands
í Fellabæ sem gefur tímaritið út
og mun Prentverkið sjá um alla
þætti útgáfunnar að efnisöflun
undanskilinni. Efnisöflunin
verður í höndum ritnefndar og
ritstjóra sem áformað er að ráða
í hlutastarf. Fólk hefur þegar
verið fengið til setu í ritnefnd-
inni og er það búsett á svæðinu
frá Bakkafirði í norðri til Hafn-
ar í Hornafirði í suðri. Hlutverk
ritnefndarmanna er að afla efnis
úr sinni heimabyggð og hafa
áhrif á ritstjórnarstefnu tíma-
ritsins og skipulag þess. Eins og
fyrr segir er áformað að ráða rit-
stjóra til starfa við Gletting en
fyrsta heftinu er ritstýrt af þeim
Finni N. Karlssyni, Helga Hall-
grímssyni og Sigurjóni Bjarna-
syni.
Glettingi er ætlað að vera eins
konar millistig á milli fjórðungs-
blaðanna og hérðastímaritanna
Múlaþings og Skaftfellings.
Tímaritinu er m. a. ætlað að
birta gamlar og nýjar frásagnir,
viðtöl, greinar á sviði sagnfræði,
náttúruvísinda og austfirskra
bókmennta, efni úr eldri ritum
svo og skáldskap og ádrepur.
Tímaritið á að vera ópólitískt
að öðru eyti en því að það mun
Syndum í sumar
Hér í blaðinu í dag er auglýstur opnunartími sundlaugarinnar
í Neskaupstað fyrir sumarið. Þar kemur fram að sundlaugin er
opin frá klukkan 7 til 19 mánudaga, miðvikudaga og föstudaga,
klukkan 7 til 21 þriðjudaga og fimmtudaga og á laugardögum
og sunnudögum er sundlaugin opin frá klukkan 10 til 16.
Hér er um verulega aukna opnun á sundlauginni að ræða og
er með þessum opnunartíma reynt að koma til móts við óskir
sem flestra. Aukin opnun á sundlauginni hefur að sjálfsögðu í
för með sér aukinn rekstrarkostnað, en á móti kemur aukin
aðsókn.
Verið er að kaupa yfirbreiðslu á sundlaugina og á þessi yfir-
breiðsla að draga verulega úr kyndingarkostnaði, en hún kostar
um eina milljón króna. Á næsta ári er síðan ráðgert að fara í
veruiegar endurbætur á sundlaugarkerinu.
Við skorum á bæjarbúa að sækja sundlaugina reglulega í
sumar og sýna í verki að menn meta það að sundlaugin sé meira
opin en venja hefur verið til.
Það er kunnara en frá þurfi að segjá hversu hollt það er að
stunda sund og góð heilsa er gulli betri.
Petrún Jónsdóttir Guðmundur Bjamason
Fortnaður tómstundaráðs Bœjarstjóri
draga taum fjórðungsins sem
heildar. Fyrirmyndin að Glett-
ingi mun að nokkru leyti vera
tímaritið Gerpir sem gefið var
út af Fjórðungsþingi Austfirð-
inga á árunum 1947 - 1951.
Sjálfsagt munu margir Aust-
firðingar bíða spenntir eftir að
fá fyrsta hefti þessa nýja rits í
hendur. SG
Skondin
afmælisfrétt
Af einhverjum undarlegum
ástæðum flutti Ríkisútvarpið þá
frétt á Rás 2 að morgni sl.
fimmtudags að Verkalýðsfélag
Norðfirðinga væri sjötugt þann
dag. Kom þetta ýmsum í opna
skjöldu og þá ekki síst Norðfirð-
ingum en sumir brugðust þó
skjótt við og sendu skeyti eða
hófu að undirbúa kaup á blóma-
körfum til að færa afmælisbarn-
inu. Pegar leið á daginn áttuðu
sig flestir á því að fréttin átti
ekki við rök að styðjast og var
þá skeytasendingum og blóma-
kaupum slegið á frest.
Staðreyndin er sú að Verka-
lýðsfélag Norðfirðinga verður
ekki sjötugt fyrr en á næsta ári.
VerklýðsfélagNorðfjarðar, eins
og félagið var nefnt í upphafi,
var nefnilega stofnað árið 1922
en ekki árið 1921 eins og þeir
útvarpsmenn virtust hafa upp-
lýsingar um.