Austurland


Austurland - 29.05.1991, Blaðsíða 8

Austurland - 29.05.1991, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR, 29. MAÍ 1991. Myndlist Af manneskjum og modelum 31. maí til 9. júní í Egilsbúð Neskaupstað Um sjomannadagshelgina opnar Alda Sveinsdóttir frá Barðsnesi einkasýningu á verk- um sínurn í fundarsal Egilsbúð- ar. Eins og yfirskrift sýningar- innar ber með sér eru myndirnar ýmist af lifandi fyrirsætum eða líkönum og að sjálfsögðu gefur listamaðurinn hverri og einni persónu líf og lit að sínum hætti. Alda er fædd á Norðfirði 1936 og starfaðj þar um árabil að myndlistarmálum eftir nám við Myndlistarskólann í Reykajvík 1954. Alda útskrifaðist sem stúdent frá Hamrahh'ð 1982 og hóf þá nám í kennaradeild Myndlista- og handíðaskóla íslands. Þaðan tók hún lokapróf 1987. Alda hefur unnið geysimikið starf í þágu fatlaðra tengt myndlist t. d. safnaði hún mynd- um og setti upp sýningu fatlaðra „Úr hugarheimi“ í Listasafni Alþýðu 1990. Síðustu fjögur Frá opnun sýningar Öldu Sveinsdóttur í Egilsbúð 1987. árin hefur hún kennt við Bú- staðaskóla í Reykjavík. Nú á vordögum setti hún upp sýningu með nemendum sínum á Lista- hátíð æskunnar í Reykjavík „Fiðrildi og furðudýr". Sú sýn- ing hefur hlotið mjög lofsam- lega dóma. A síðasta ári fór ,{((( NESKAUPSTAÐUR Opnunartími sundlaugar Sundlaugin í Neskaupstað verður opin sem hér segir í sumar: Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga Þriðjudaga og fimmtudaga Laugardaga og sunnudaga kl. 07“ - 19“ kl. 07“ - 21“ kl. 10“ - 16“ Bæjarstjóri Lífeyrissjóður Austuriands sendir austfirskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra innilegar hamingjuóskir í tilefni sjómannadags LÍFEYRISSIÓÐUR Egilsbraut 25 Alda til Japans til þess að kynna sér vefnaðarlist fatlaðra. Þrátt fyrir miklar annir við kennslu og önnur störf hefur Alda ávallt þroskað sig og tekist á við ný og ný verkefni í sjálf- stæðri listsköpun. Hún á margar samsýningar að baki og auk þess einkasýningar í Vestmannaeyj- um 1981, Reykjavík 1986 og 1990, Neskaupstað 1987 og Þýskalandi 1989. Verk hennar eru í eigu nokkurra opinberra aðila s. s. Listskreytingasjóðs Ríkisins, Reykjavíkurborgar, Neskaupstaðar, Ólafsvíkur og Vestmannaeyja. Sýningin verð- ur opnuð föstudag 31. maí kl. 17°° og verður opin til kl. 19“, laugardag og sunnudag kl. 14“ - 17“. Föstudag 7. júní verður sýningin opin kl. 17“ - 20“, laugardag 8. júní kl. 14“ - 19“ og sunnudag 9. júní kl. 14“ - 22“. Halldór Asgeirsson (til vinstri) afhendir Guðmundi Bjarnasyni bœjarstjóra plönturnar. Neskaupstaður Lionsmenn gefa trjáplöntur Lionsklúbburinn í Nes- trjáplöntum í fjallshlíðinni ofan kaupstað hóf gróðursetningu á við Urðarteig í fyrra. Þá voru settar niður 2500 plöntur og sl. fimmtudagskvöld voru Lions- Frá Síldarvinnslunni hf. Að gefnu tilefni skal tekið fram að reikningar, sem greiða á á föstudegi, verða að hafa borist á skrifstofuna fyrir hádegi á miðvikudegi. AUSTURLANDS 740 Neskaupstaður NESKAUPSTAÐUR ATVINNA Starfslið vantar í eftirtaiin störf í Neskaupstað: - í hlutastarf við heimilisþjónustu - Matráðskonu á leikskólann Sólvelli - Fóstrur og ófaglært starfslið á leikskólann Sólvelli eftir sumarleyfi - Viðtómstundastarf aldraðra í Breiðabliki frá 1. september nk. Upplýsingar veitir undirrituð í síma 71700 Félagsmálastjóri menn enn á ferðinni og þá voru settar niður 2000 plöntur. Við það tækifæri voru bænum form- lega gefnar plönturnar og tók Guðmundur Bjarnason bæjar- stjóri við gjöfinni fyrir hönd bæjarins. Þetta framtak Lionsmanna er mjög þarft og á eftir að verða til mikillarprýði þegar fram líða stundir. Stöðvarfjörður Byggingu grunnskólans haldið áfram í sumar Samkvæmt upplýsingum Bryndísar Þórhallsdóttur oddvita Stöðvarhrepps verður áframhald framkvæmda við við- byggingu grunnskólans helsta verkefni sveitarfélagsins í sumar. Áformað er að fram- kvæma fyrir 6 milljónir króna og ljúka húsinu alfarið utanvert. Þá sagði Bryndís að ráðgert væri að leggja bundið slitlag á eina til tvær götur í kauptúninu en hinsvegar væru litlar fram- kvæmdir við höfnina á áætlun í ár. Sveitarfélagið mun standa fyrir unglingavinnu í sumar og gefa 15 og 16ára unglingum kost á að starfa við ýmis tilfallandi verkefni eins og gróðursetningu og viðhald mannvirkja.

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.