Nýtt útvarpsblað - 31.10.1948, Qupperneq 7

Nýtt útvarpsblað - 31.10.1948, Qupperneq 7
visitalores á íslandi af Ólafi erkibiskupi, þ. e. eftirlitsmenn erkibiskups í kirkjumálum lanclsins. Og nú er bezt að láta sagnaritar- ann tala. „Höfðu þessir fjórir leigt allt landið um þrjú ár, með sköttum og skyldum af kon- ungimim. Fóru visitatores kirkjunnar vegna en þeir fyrrnefndu Ieikmanna vcgna um allt ísland, aflandi og heimtandi peninga aí lærðum og leikum, sem þeir kunnu að fá. Átti undir þessu að standa landsfólkið, og þyngt með þessum afdraetti". Þetta er samtíma vitnisburði um stjórn- arfarið í lanclinu. Skyldi landsfólkið ekki hafa getað hugsað sér eitthvað betra? Skyldi ungur maður ekki hafa skilið fljótt, hvað landsfólkinu þótti að, og skyldi ungur mað- ur ekki háfa átt löngun til þess að láta landsfólkið hafa eitthvað betra, en standa undir skattráni fjögurra hirðstjóra, sem lifðu konunglegu lífi á því, að skattpína fólkið fyrir sjálfan sig og útlendan konung? iSvo kom annað bil, Jón biskup Skalli kom út 1359. Honum var tekið vel af fólkinu í byrjun, en brátt risu úfar við hann á bisk- upsstóli. Stóðu fyirr því Eyfirðingar, með Þorstein prest Hallsson á Möðruvöllum í broddi fylkingar. Hafði dregizt að Jón bisk- upfengi skilríki sín fyrir biskupsembætti, og var biskupstign hans rengd, og fóru Eyfirð- ingar heim að Hólum og krafði Þorsteinn prestur biskup um skilríki sín fyrir Hólastað og biskupsdómi. Skagfirðingar og Húnvetn- ingar stciðu með Jóni biskupi, með hinn mikilhæfa prest, Einar Hafliðason á Breiða- bólstað í broddi fylkingar. Gerðu Eyfirð- ingar óspektir á Hólurn og Silfrastöðum. I'óku góðs staðarins undir sig, norðan öxnadalsheiðar og Reykjadals og Möðru- vallastað. Stóðu fyrir þessu allir prestar og leikmenn á þessu svæði. Jón biskup vildi ekki tala við Eyfirðinga, en þeir afsögðu alla hlýðni við hann og tóku Þorstein prest Hallsson fyrir yfirmann. Tók biskup messu- embætti af öllum prestum, sem Þorsteini fylgdu, en þeir sungu messur eítir sem áður. Brutu svo Eyfirðingar upp kistu í kirkju á Silfrastöðum og tóku þar vín, er þangað hafði verið gefið frá Hólum. Var nú hinn mesti cldtir og fjandskapur út af þessum málum í Norðurlandi, og varð Jón biskup eigi hrakinn af staðnum. Stóðu með hon- um allir prestar og höfðingjar vestan Örna- dalsheiðar. Þetta skeði hið sama ár og Smið- ur kom út, 1361. En snemrna næsta ár fara utan Þorsteinn prsetur Hallsson og Þorsteinn Eyjólfsson frá Urðum og fleiri, er við þessi mál voru riðnir í Eyjafirði. Keyptu þeir ferju til ut- anferðar á Þverárstað. Fengu þeir hinar hraklegustu viðtökur í Noregi og greip Hreðiar Darri bæði skip og góðs og fagn- aði leikmenn og færði í liald til konungs. Má ef til vill setja aðfarir Eyfirðinga á Grund við Smið í samband við þessar mót- tökur Norðmanna á Eyfirðingum. En svo fall Smiðs á Grund við það, að Þorsteinn Eyjólfsson var fagnaður í Noregi, færður í Vaðbergshús á Halllandi, ttnz konungur frelsaði liann. Vilhjálmur Þ. Gíslason flytm á löstudaginn erindi um íslenzka blaðamennsku hundrað ára. Bók, eftir hann um sama efni, er væntanleg innan skamms á vegum Norðraútgáfunnar. í þeirri bók mun verða rakin saga íslenzkrar blaða- mennsku frá öndverðu til þessa tíma. * NÝTT ÚTVARPSBLAÐ 7

x

Nýtt útvarpsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt útvarpsblað
https://timarit.is/publication/824

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.