Austurland


Austurland - 01.04.1992, Blaðsíða 1

Austurland - 01.04.1992, Blaðsíða 1
Austurland Níu tegundir harðfisks Verslun - Videó Billjard Meira en þig grunar Tröllanaust 0 71444 Neskaupstaöur Samgöngumál Norðfjarðar leyst - Flugfélag stofnað - Guðmundur Bjarnason bœjarstjóri, Smári Geirsson forseti bœjar- stjórnar og Birgir Porgilsson ferðamálastjóri. Selma Unnsteinsdóttir fegurðardrottning Austurlans 1991 krýnir hér arftaka sinn Malenu Dögg Þorsteinsdóttur frá Hallormsstað sem valin var fegurðardrottning Austurlands 1992 í Egilsbúð sl. laugardagskvöld. Lengst til hœgri er Stella Ingigerður Steinþórs- dóttir Neskaupstaðsem valin var besta Ijósmyndafyrirsœtan. Ljósm. AB Borgarfjöröur Álfasteinn verðlaunaður Bæjarráð Neskaupstaðar samþykkti á aukafundi sínum í dag að taka tilboði hollensku Fokkerverksmiðjanna um kaup á einni af gömlu F27 vélunum sem Flugleiðir hafa nú skilað inn fyrir nýju F50 vélarnar. Ekki fékkst uppgefið kaupverð vélar- innar en hún verður keypt sam- kvæmt kaupleigutilboði. Pessi ákvörðun bæjarráðs kemur flestum í opna skjöldu þvf ekki var annað vitað en samningar stæðu yfir við Odin Air eða íslandsflug. Haft er eftir Guðmundi Bjarnasyni bæjarstjóra að menn þar á bæ hefðu ekki viljað láta neitt uppi um þessa samninga fyrr en þeir væru í höfn. Forsaga málsins er sú að í ferð bæjarstjóra og forseta bæjar- stjórnar í Amsterdam nýlega kom upp sú hugmynd að ekki væri útilokað að leita eftir sam- komulagi við stórt erlent flugfélag um þjónustu við Norð- firðinga. f kvöldverðarboði Fokker spunnust um þetta nokkrar umræður og næsta morgun gerðu forráðamenn verksmiðjanna boð fyrir bæjar- fulltrúana og buðu þeim til kaupleigu fyrrnefnda flugvél. Þótt F27 vélarnar séu nú komn- ar nokkuð til ára sinna eru þær enn sem nýjar vegna stöðugs viðhalds og eftirlits. Félag íslenskra atvinnuflug- manna hefur sem kunnugt er gagnrýnt stefnu Flugleiða í innanlandsflugi og hafa þeir lýst sig reiðubúna til að manna vél Norðfirðinga. Birgir Þorgilsson ferðamála- stjóri hefur verið bæjarstjóm- armönnum innan handar í þess- um samningum og hefur lagt sitt af mörkum til að ná til réttra aðila. M. a. standa nú yfir samn- ingar við færeyska flugfélagið Atlantsflug (en það félag hefur nýverið sótt um að fá að fljúga á milli Færeyja og íslands) um samvinnu um flug á milli Sör- vogs og Norðfjarðar, en for- maður færeyska flugfélagsins telur það arðbæra leið. Síldarvinnslan hefur lagt sitt af mörkum til þessara samn- inga, m. a. hefur verið ákveðið að gamla skreiðarskemman verði gerð upp og notuð sem flugskýli. Óneitanlega munu þessi flug- vélarkaup gjörbreyta sam- göngumálum Norðfirðinga. Áformað er að fljúga fimm daga vikunnar til Reykjavíkur og tvo daga verða ferðir bæði kvölds og morgna en þá daga verður flugvélin yfirfarin í flugskýli flugmálastjórnar. Strax í vor verður hafist handa um að malbika planið fyrir fram- an flugstöðina til að gera að- stöðuna sem besta. Þá verður veitingasala í flugskýlinu boðin út og sótt hefur verið um leyfi til að selja þar tollfrjálsan vaming í til-' efni Færeyjaflugsins. Strax eftir undirritun samninganna í dag var sent skeyti til Samgönguráðu- neytisins þar sem sótt var form- lega um sérleyfið Norðfjörður- Reykjavík-Norðfjörður og er fullvíst talið að það gangi eftir með fulltingi ferðamálastjóra. Fljótlega verður auglýst eftir framkvæmdastjóra og öðru starfsfólki en reynt verður þó að halda mannahaldi í lágmarki. Ekki fékkst staðfest í dag hvert nafn hins nýja flugfélags verður, en heyrst hefur að það verði „Dupe Airlines“ í tilefni dagsins. Höfn Æskan seld til Eyja Úterðarfélagið Eyjavík í Vestmannaeyjum hefur keypt hlutafélagið Auðun á Höfn. Með í kaupunum fylgir Æskan SF, eins árs gamalt 150 tonna fjölveiðiskip. Æskan var smíð- uð í Portúgal og fylgir henni 600 tonna kvóti í þorskígildum. Álfasteinn í Borgarfirði hlaut annað tveggja íslenskra fyrir- tækja norrænu umbúðarverð- launin Scanstar, sem veitt vom í Óðinsvéum í Danmörku í síð- ustu viku. Álfasteinn hlaut þessi verð- laun fyrir tréöskjur, fóðraðar með hálmi og með glerloki. Það eru hagsmunasamtök umbúða- framleiðenda á öllum Norður- löndunum sem veitt hafa Scan- star verðlaunin annað hvert ár til þessa. Pað er mikill heiður fyrir Álfastein að fá þessa viðurkenn- ingu en aðeins einu sinni áður hefur íslenskt fyrirtæki hlotið verðlaunin en það var Sól Hf. sem þau hlaut fyrir fáum árum. Jón Pórisson leikmyndateikn- ari hjá Leikfélagi Reykjavíkur hannaði verðlaunaumbúðirnar. Það var Helgi Amgrímsson framkvæmdastjóri og einn aðal- frumkvöðull að stofnun Álfa- steins sem veitti verðlaununum móttöku í Óðinsvéum. Hitt íslenska fyrirtækið sem hlaut verðlaun var Nói-Síríus. Guðmundur, Smári og sölustjóri Fokker velta fyrir sér hugsanleg- um flugvélarkaupum. * SPARISJOÐURINN -fyrir þig og þína

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.