Austurland


Austurland - 01.04.1992, Page 8

Austurland - 01.04.1992, Page 8
Neskaupstaður Atvinnumál í brennidepli Á síðasta fundi bæjarstjórnar Neskaupstaðar voru tvær tillög- ur frá atvinnumálanefnd kaupstaðarins teknar til umræðu og voru þær báðar afgreiddar með jákvæðum hætti. Önnur tillagan fjallar um fyrirhugað átaksverkefni í atvinnumálum bæjarins en hin fjall- ar um stofnun sérstaks eignarhaldsfyrirtækis á fiskveiðiheimildum. Bæjarstjórnin samþykkti á fundinum að möguleikar á því yrðu kannaðir að atvinnumála- nefnd bæjarins stæði fyrir átaks- verkefni sem tæki tvö ár og myndi það hefjast á hausti kom- anda. Átaksverkefnið byggir á því að virkja bæjarbúa til að stofna til nýs atvinnurekstrar eða þróa þann rekstur sem fyrir er. Almennt séð er hugsunin á bak við verkefni af þessu tagi sú að komið verði af stað hreyfingu til eflingar byggðarlagsins. Axel Beck iðnráðgjafi Aust- urlands hefur þegar komið til Eskifjörður Mokafli hjá Sæljóninu Sæljón SU landaði á mánu- daginn rúmlega 42 tonnum af þorski hjá Friðþjófi hf. og hefur skipið nú landað um 260 tonn- um af boltaþorski frá 8. mars. Sæljónið er á netum og leggur tvisvar í hverri veiðiferð. Aðal- veiðisvæðið hefur verið út af Hvítingunum. Meðalvigt þorsks- ins hefur verið nálægt sjö kílóum. Fiskurinn fer allur í salt hjá Friðþjófi hf. og þar hefur verið nóg að gera að undanförnu. Auk þess að salta fiskinn af Sæljóninu stendur enn yfir síld- arflökun hjá fyrirtækinu og eru sendir út 1 - 2 gámar af síldar- flökum vikulega. Að sögn Unn- ars Björgólfssonar hjá Friðþjófi hafa þeir fengið síld víða að til vinnslu og enn eiga þeir um 200 tunnur af ferskskorinni síld til vinnslu. Hjá Friðþjófi starfa nú um 30 manns. Neskaupstaðar og kynnt full- trúum í atvinnumálanefndinni og bæjarfulltrúum eðli átaks- verkefna en efnt hefur verið til slíkra verkefni áður hér eystra. Bæjarstjórn samþykkti einnig á fundi sínum að atvinnumála- nefndin hefði frumkvæði að því að kanna áhuga á stofnun sér- staks eignarhaldsfyrirtækis á fiskveiðiheimildum í Neskaup- stað. Fyrirtækið myndi starfa með þeim hætti að það leigði kvóta sinn útgerðum í bænum en fengist ekki við útgerð á eigin vegum. Samkvæmt heimildum blaðsins mun fyrirtæki af þess- um toga vera starfrækt á Húsa- vík. Samþykkti bæjarstjórnin að ef áhugi reyndist vera fyrir stofnun fyrirtækisins þá myndi bæjarsjóður gerast þar eignar- aðili. Könnun hefur farið fram á hugsanlegum rekstri þessa eign- arhaldsfyrirtækis og bendir flest til að reksturinn geti orðið hag- kvæmur miðað við núverandi forsendur. SG Seyðisfjörður Nýtt félag stofnað Fáskrúðsfjörður Stórtjón í bruna Eins og kunnugt er af fréttum varð stórtjón á Fáskrúðsfirði að- faranótt sl. miðvikudags er 200 m2 stálgrindarhús í eigu Guðlaugs Einarssonar skipa- smiðs brann. Guðlaugur Einars- son stofnaði skipasmíðastöð á Fáskrúðsfirði 1980 og sl. sumar var tekinn í notkun nýr slippur við stöðina. Skipasmíðastöðin hefur veitt talsverða vinnu í gegnum árin. Þar hafa starfað 5 - 8 manns og þar hafa verið smíðaðir um 20 bátar á þeim 12 árum sem stöðin hefur verið rekin. Starfsmenn eru þó aðeins 3 um þessar mundir. Minnstu munaði að eldurinn næði til nær- liggjandi húsa en slökkviliðið einbeitti sér að því að verja þau. Húsið var vátryggt fyrir um 9 milljónir króna en óvíst er með verkfæri og annað innanhúss. Ekki er talið líklegt að skipa- smíðastöðin verði endurbyggð. MSIEG Þann 26. mars sl. var stofnað nýtt félag hér í bæ. Það heitir Framtíðin félag eldra fólks á Seyðisfirði. Á stofnfundi voru félaginu sett lög sem hafa sama markmið og félög eldri borgara í öðrum byggðarlögum. Stofn- fundinn sátu 20 manns en stofn- félagar eru 25 sem er innan við fjórðungur þeirra sem gætu gerst beinir félagar, en félagið er opið öllum 60 ára og eldri. Var því ákveðið að gefa öðr- Hér á Reyðarfirði hefur hóp- ur heimaaðila verið að leita eftir hentugu togskipi síðustu vikur svo tryggja megi nægilegt hrá- efni til frystihúss KHB. Frystihúsið hefur verið í stöðugum rekstri þrátt fyrir óvissa hráefnisöflun en oft hefur legið við tímabundnum lokun- um með tilheyrandi uppsögnum á starfsfólki. Sveitarstjórn hefur haft for- ystu um málið og Reyðfirðingar binda miklar vonir við að eitt- um kost á að gerast stofnfélagar fram að næsta fundi. Styrktar- félagar geta hins vegar orðið aðrir einstaklingar á Seyðisfirði, fyrirtæki og aðrir velunnarar. Stjórn félagsins skipa: Formað- ur Valgeir Sigurðsson, gjaldkeri Elísabet Jósepsdóttir, ritari Emil Emilsson, meðstjórnend- ur eru Elín E. Frímann og Björg Sigurgeirsdótir, varamenn Hans Klemenssen og Gunnur Magn- úsdóttir. JJ hvað reki á fjörur sem bitastætt reynist. fsak Ólafsson sveitarstjóri á Reyðarfirði bjóst við að línur færu senn að skýrast, mikill hug- ur væri í heimamönnum og góð samstaða. Það eru ekki síst ung- mennin hér á staðnum sem líta hýru auga til nýrra skipakaupa, með þá von í brjósti að atvinna aukist hjá frystihúsi KHB og aft- ur hefjist saltfiskverkun hjá GSR, en þessir tveir vinnustaðir voru áður eins konar vinnuskól- ar unglinganna hér á Reyðar- firði. PH Reyðarfjörður Skipakaup í athugun Hótel Höfn. Ljósm. Þórhallur Jónasson Höfn Hótel Höfn stækkað Hafnar eru framkvæmdir við 50 m2 viðbyggingu við Hótel Höfn. Nýr aðalinngangur verður í viðbyggingunni, gestamóttaka og skrifstofa hótelstjóra. Þar sem aðalinngangur er núna verður veitingastofa eftir breyt- ingarnar og tengist hún neðri sal hótelsins. Mikið er um bókanir á Hótel Höfn fyrir sumarið og hafa fyrir- frarn bókanir aldrei verið fleiri. Rekstur hótelsins gekk vel á síð- asta ári. Eigandi og hótelstjóri er Árni Stefánsson. Fellabær Eykur hlutafé sitt í Flaustri Hreppsnefnd Fellahrepps samþykkti á fundi sínum í síð- ustu viku að auka hlutafé sitt í Flugfélagi Austurlands um 280 þúsund krónur. Samþykktin er þó háð því skilyrði að Flugfélagi Austurlands takist að safna þeim 15 milljónum í viðbótar- hlutafé sem stefnt er að. Þá hefur hreppsnefndin sam- þykkt að ganga að tilboði Bald- urs Sigfússonar um lokafrágang á skrifstofuhluta nýja ráðhúss- ins í Fellabæ. Fimm tilboð bárust í verkið en þau voru eingöngu opin heimamönnum í Fellahreppi. Kostnaðaráætlun við verkið hljóðaði upp á 6.5 milljónir króna en tilboð Baldurs hljóð- aði upp á 5.7 milljónir eða 85,5% a kostnaðaráætluninni. Framkvæmdir hefjast fljótlega og er áformað að þeim ljúki 1. ágúst. Höfn 300.000 föturafsíld í húsnæði Fiskimjölsverk- smiðju Hornafjarðar hefur Kaupfélagið hafið vinnslu á niðurlögðum síldarflökum fyrir markað í Danmörku. Á síðasta ári voru send sýnis- horn til væntanlegra kaupenda og líkaði framleiðslan svo vel að samningar tókust um sölu á 300.000 fötum af síld á þessu ári. Nú fyrir páskana verða afhentar 50.000 fötur. Síldin sem er flökuð fersk er verkuð í edikslegi og síðan sett ásamt sósu í 800 g fötur. Til þess að geta afgreitt þessar 300.000 fötur þarf um 750 tunnur af flak- aðri síld. Alls starfa 11 manns að þess- ari framleiðslu.

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.