Austurland - 12.02.1998, Page 4
4
FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1998
Halldór Laxness - minning
fæddur 23. apríl 1902 - dáinn 8. febrúar 1998
„Þetta eitt sem þú gafst
mér/það er allt sem ég hefÞessi
stef úr Maístjörnunni komu í
hugann þegar fregnin barst af
andláti Halldórs Laxness. Enginn
fslendingur hefur á þeirri öld sem
bráðum er gengin með honum
veitt þjóð sinni jafn mikið og
rausnarlega í andlegum efnum.
Enginn hefur náð utan um
tíðarandann, innbyrt hann og
umskapað í hugverkum þannig að
komist í hálfkvisti við sveinstaul-
ann og mjólkurpóstinn úr
Mosfellssveit. Fáir íslendingar
fyrr og síðar hafa verið jafn um-
deildir framan af ævi og Halldór
Kiljan en kvatt jafn óumdeildir að
leiðarlokum.
Aðeins þeir sem muna tímana
tvenna um lýðhylli Halldórs geta
ímyndað sér hvernig menn skipt-
ust í afstöðu til hans sem manns
og rithöfundar á fyrri hluta aldar-
innar. Aðdáendurnir ýmist þekktu
skáldverk hans og ritsmíðar eða
hrifust af framgöngu hans á
vettvangi þjóðmála. í þeirn hópi
var margt alþýðufólk,
róttæklingar þeirrar tíðar og lista-
menn. Andstæðingar hans komu
flestir af hægri væng stjórn-
málanna og gátu ekki fyrirgefið
hvar hann skipaði sér í sveit eða
þoldu ekki örvarnar sem hann
sendi frá sér í dægurbaráttunni.
Mörgum var í áratugi haldið frá
verkum skáldsins með áköfum
málflutningi óvildarmanna, þeirra
sem hræddust áhrifamátt þess sem
Halldór hafði að flytja. Sjálfur
kynntist ég þessu í föðurhúsum
þar sem við lá að nafn hans væri
bannorð. Þó var faðir minn
bókelskur og dáði Ibsen ungur.
Eftir að ég komst í verk Halldórs
snemma í menntaskóla greip ég í
þau til upplestrar fyrir
aldurhniginn föður minn án þess
að geta höfundar. Hann hlustaði
hugfanginn en þegar Ijóst var hver
þar hélt á penna þóttist hann illa
svikinn og gekk á dyr!
Sá sem þetta skrifar var í hópi
þeirra mörgu sem stóðu á hafnar-
Starfsemi Bridgefélags Norð-
fjarðar hefur að mestu leyti leg-
ið niðri í vetur þrátt fyrir góðan
vilja sérstaklega eins manns,
Vigfúsar Vigfússonar, til að
halda starfseminni gangandi.
Vigfús hefur reynt eftir mætti að
fá bæði gamla og nýja spilara til
að vera með en það hefur lítinn
sem engan árangur borið. BN
hefur nú eina sveit í sveita-
keppni BRE. En það var spilað á
mánudagskvöldið, með aðeins
þátttöku 6 para. Efstir urðu
Sigfinnur og Jón Einar með 74
stig, í öðru sæti Jóhanna og Vig-
fús með 68 stig og í þriðja sæti
Svavar og Oddur með 59 stig.
bakkanum í nóvember 1955 og
fögnuðu Halldóri sem þá hafði
verið tilnefndur til Nóbelsverð-
launa. Stundin var ógleymanleg
og hlutdeildin í þessum atburði.
Þetta var í hápunkti kalda
stríðsins, Atómstöðin sat enn í
merg góðborgara og Islands-
klukkan langt frá því að vera sjálf-
sögð í hillum. Upphefðin að utan
þetta haust breytti miklu í aðgengi
fólks að rithöfundinum og á eftir
fylgdi nýr kafli í skáldatíma hans
og rólegt en miskunnarlaust
uppgjör við falsmyndir í austri.
Eitt það stórkostlega í lífi
Halldórs er hvernig hann megnaði
að draga safann úr menningar-
straumum samtíma og fortíðar og
skila honum í eigin blöndu í
verkum sínum. Hispursleysi hans
og hrifnæmi í umgengni við
gamalt og nýtt, kirkju og sósíal-
isma, megnaði ekki að slá hann út
af laginu sem rithöfund eða raska
Flestir þekkja umræðuna sem
myndast hefur um nauðsyn þess
að vernda beri náttúru miðhá-
lendisins. Þrátt fyrir að flestir
eru sammála um að vernda beri
hálendið hafa tillögur um slíkt
ekki komið frá Alþingi eða frá
yfirstjórn náttúruverndarmála
áður.
Nú hefur Hjörleifur Gutt-
ormsson flutt þingsályktunartil-
lögu um þjóðgarða á miðhálend-
inu um að fela umhverfisráð-
herra að láta undirbúa, í sam-
þeim húmaníska grunni sem
sýnilegur var í verkum hans þegar
á ungum aldri og styrktist er á leið
ævina. Hver leikur það eftir að
flengjast um þrítugt milli Rómar,
Jökuldalsheiðar, Los Angeles og
Moskvu, í beinni og óbeinni
merkingu, og skila frá sér verki
eins og Sjálfstæðu fólki? Sem
dæmi um innsæi hans og framsýni
má nefna ritgerðir hans um kven-
frelsi eða þá náttúruvernd löngu
áður en þau hugtök komust í tísku.
Spor Halldórs liggja ótrúlega
víða hér heima og erlendis. Þeir
sem rekja þau komast líklega í
meiri nálægð við höfundinn og
persónur hans en ella. Þær svip-
myndir sem hann dregur upp af
ferðum sínum, fólki og náttúru,
hvort sem er í Dagleið á fjöllum
eða Reisubókarkorni, eru í senn
gefandi og bregða birtu yfir feril
hans. Örstuttar frásagnir eins og
„Vinur minn“ af samvistum hans
vinnu við skipulagsyfirvöld og
hugsanlega réttahafa, stofnun
fjögurra þjóðgarða á miðhálendi
Islands er hafi innan sinna marka
helstu jökla og aðliggjandi
landsvæði. Samkvæmt tillög-
unni á ráðherra að kynna Alþingi
stöðu málsins á vorþingi 1999
og stefnt er að að formleg
stofnun þjóðgarðanna verði árið
2000.
í greinargerð sem fylgir
tillögunni segir meðal annars:
„Ymislegt sem tengist
við Jóhann Jónsson í Leipzig og
af kveðjustund þeirra 1932 gefa
Islendingum sem þangað koma
aðgöngumiða að þessari gömlu
borg, - að ekki sé talað um Tóm-
asarkirkjuna og Café Lutze sem
stóðu af sér stríðið. Aldarfjórð-
ungi síðar fannst mér ég eiga sam-
fylgd þeirra Jóhanns og Halldórs
vísa í þessu umhverfi.
I minni hillu er Kvæðakver
Halldórs slitnust bóka, önnur
útgáfa aukin frá 1949. Ljóðagerð
var hliðargrein og ekki fyrirferð-
armikil á skáldskaparmeiði hans.
Samt er það svo að fátt tengir nú-
hugmyndinni hefur þótt óljóst,
þar á meðal mörk miðhálendis-
ins og eignar- og stjómsýslurétt-
ur á einstökum hlutum þessi.
Þessi óvissuatriði eru nú smám
saman að skýrast...“.
Það er meðal annars af þess-
um ástæðum sem áðurnefnd
þingsályktunartillaga er lögð
fram en þar er gert ráð fyrir alls
fjómm þjóðgörðum sem í tillög-
unni eru til glöggvunar, kenndir
við stærstu jöklana innan hvers
þeirra og eru Vatnajökulsþjóð-
tímann og æskufólk jafn náið við
skáldið á Gljúfrasteini og ljóð
hans, mörg hver nú sungin við
ágæt lög bestu tónsmiða okkar.
Þeir vom fáir sem tóku undir
þegar reynt var að hefja
fjöldasöng við texta skáldsins um
Hallormsstaðaskóg á sjötta
áratugnum:
„Hann sem fór áður vegarvilt í
borgum/og vínin drakk í margri
ljóti kró...“.
Nú er öldin önnur og Únglíng-
urinn í skóginum, sem rændi
höfundinn ungan skáldastyrk, er
orðinn sameign þjóðarinnar.
Sögupersónur Halldórs Lax-
ness ganga um ljóslifandi á meðal
okkar rétt eins og náin skyld-
menni eða sveitungar. Gildir þá
einu hvort á ferðinni er Þormóður
kolbrúnarskáld, Salka Valka eða
Jón Hreggviðsson. Þær eru svo
trúverðugar og vel gerðar að tekur
veruleikanum fram. Höfundur
þeirra er allur en hugverk hans
verða á sveimi rneðan íslensk
tunga og þjóðemi heldur velli.
Hjörleifur Guttormsson
garður, Hofsjökulsþjóðgarður,
Langjökulsþjóðgarður og Mýr-
dalsjökulsþjóðgarður.
I tillögunni er gert ráð fyrir að
þjóðgarðarnir verði burðarásinn
í náttverndarsvæðum á hálend-
inu. Helstu jöklar miðhálendis-
ins ásamt minni jöklum mynda
eins konar kjama þjóðgarðanna
sem ríkislendur. Jöklunum
tengist síðan náttúruverndar-
svæði og önnur verndarsvæði
sem sumpart eru þegar friðlýst.
Þjóðgarðar á hálendinu árið 2000