Austurland - 27.08.1998, Blaðsíða 1
Hús á snjóflóðasvæði
keypt á Norðfírði
Ofanflóðasjóður hefur sam-
þykkt að veita styrk til kaupa
á sex íbúðarhúsum á snjó-
flóðahættusvæði á Norðftrði.
Fastaeignamat húsanna er
samtals um 32,4 milljónir
króna, en matsnefnd um
markaðsvirði húsanna er enn
að störfum. Húsin standa við
Strandgötu og Naustahvamm.
Ef kaupin ganga eftir verður
sameinað sveitarfélag Eski-
fjarðar, Norðfjarðar og Reyð-
arfjarðar eigandi húsanna.
Af vatnsmálum á
Eskifírði
Bæjarráð nýsameinaðs sveit-
arfélags hefur samþykkt að
fara í vatnsöflun á Eskifirði
samkvæmt tillögum frá
Verkfræðistofunni Hönnun
og ráðgjöf og Jarðfræðistof-
unni Stapa. Veittur hel'ur
veðri styrkur að upphæð 3
milljónir kr. frá Orkustofnun
fyrir hönd Orkusjóðs, Byggð-
arsjóðs og Iðnaðarráðuneyt-
isins. Jafnframt hefur bæjar-
ráð heimilað bæjarstjóra lán-
töku, allt að 13 milljónum
króna, vegna framkvæmdanna.
Makríl landað á
Norðfírði
ísfisktogarinn Sjóli landaði í
vikunni hjá Sildarvinnslunni
hf. 60 tonnum af ísuðum
markríl sent veiddur var í
Síldarsmugunni. Makríllinn
var heilfrystur og fer hann
væntanlega á markað í Rúss-
landi, Evrópu og Japan. Mak-
ríll hefur ekki verið unninn
áður hjá Síldarvinnslunni.
Sfldarvertíð
undirbúin
Undirbúningur fyrir komandi
síldarvertíð er hafinn víða um
Austurland, með tilheyrandi
tunnuþvottum og frarn-
kvæmdum. Friðþjófur hf. á
Eskifirði sem er í eigu
Samherja hf. hefur t.d. farið í
mikla endumýjun á vélbún-
aði og munu afköst aukast
mikið við það. Að sögn Frey-
steins Bjarnasonar, útgerðar-
stjóra Sfldarvinnslunnar hf.,
hafa menn orðið varir við þó
nokkuð af sfld á ntiðunum og
er vonanandi að hún geft sig
þegar vertíð hefst.
/ síðustu viku hélt Kaupfélag Héraðsbúa upp á 60 ára verslunarafmœli sitt á Reyðarfirði. Margar
uppákomur voru í tengslum við afmœlið og þegar blaðamaður Austurlands var á Reyðarfirði á
föstudag voru blessuð b'órnin við iðju sem þau fá ekki að stunda með löglegum hœtti nœstu árin,
eða að keyra bíla. Ljósm. as
Barrl á Egilsstöðum fjárfestir
Barri á Egilsstöðum og Skóg-
ræktarfélag Reykjavíkur hafa
undirritað viljayfirlýsingu um
kaup fyrmefnda fyrirtækisins á
rekstri Fossvogsstöðvarinnar og
leigu aðstöðu fyrirtækisins. Vilja-
yfirlýsingin er með fyrirvara um
að hluthafar Barra þurfi að
samþykkja kaupin en fundur er
hjá þeim í dag. Fossvogsstöðin
er stærsta gróðrarstöð landsins
en hún hefur aðallega framleitt
garðplöntur og skógarplöntur.
Kaupverð Fossvogsstöðvarinnar
er 13,6 milljónir króna og mun
Skógræktarfélag Reykjavíkur
eignast 25% hlut í Barra og
verður hlutafé fyrirtækisins
aukið samsvarandi, eða úr 40
milliónum króna að nafnvirði í
53,6.
Að sögn Jóns Kr. Arnarsson-
ar, framkvæmdastjóra Barra, er
ástæðan fyrir kaupunum marg-
vísleg hagræðing, m.a. í yfir-
stjórn, ásamt dreifingu áhættu og
aðgangi að nýjum mörkuðum.
„Samdráttur hefur orðið í
plöntuframleiðslu í ár. Kaupin á
gróðrarstöðinni eru í raun við-
brögð við erfiðri samkeppnis-
stöðu Barra gagnvart Skógrækt
ríkisins. Við vorum t.d. með
samning við Skógræktina um
framleiðslu plantna til Akra-
skóga. Þessum samningi var rift
og verkið boðið út að mestum
hluta og Skógræktin náði því
verki frá okkur“, sagði Jón í
samtali við blaðið. „Við erum
m.a. að svara þessari þróun með
kaupunum“.
Fjarðabyggð
í stað
Austurríkis?
Örnefnanefnd hefur nú gefið
út umsagnir um þær hug-
myndir sem fram hafa komið
um nafn á hið sameinaða
sveitarfélag Eskiíjarðar, Norð-
fjarðar og Reyðarfjarðar. Af
þeim sjö nöfnuni sem send
voru til nefndarinnar gat hún
aðeins fallist á eitt þeirra, en
það var nafnið „Fjarða-
byggð“. Nöfnin sem mest
hafa verið í umræðunni,
„Austurríki" og „Firðir",
samrýmast að mati nefndar-
innar ekki íslenskum mál-
venjum, þar sem eftirliður
nafnsins „Austurríki“ eigi sér
enga hefð á Islandi í heitum
sveitarfélaga og einnig sé um
að ræða nafn á þjóð í Mið-
Evrópu. „Firðir" er hinsvegar
of víðtækt og fleiri sveitar-
félög en þau ofannefndu séu
nefnd því nafni í daglegu tali.
Þess má til gamans geta að
nafnið Fjarðabyggð varð í
fjórða sæti í skoðanakönnun
sem gerð var samhliða sveitar-
stjórnarkosningum í vor.
Félagsmálaráðuneytið
hefur þegar fengið sent bréf
þar sent leitað er eftir þeirra
afstöðu til málsins og hversu
bindandi álit nefndarinnar sé.
Svar frá ráðuneytinu hafði
ekki borist þegar blaðið fór í
prentun.
Greinargerð Örnefna-
nefndar er að finna í heild
sinni á bls. 7.
Hotelbygging á Reyðarfirði
Nú er orðið ljóst að fram-
kvæmdir við hótelbyggingu á
Reyðarfirði verða boðnar út í
byrjun september. Um er að
ræða mikla stækkun og endur-
bætur á Hótel Búðareyri. Hótel-
ið, sem í dag er 5 herbergi, verð-
ur stækkað upp í 20 tveggja
manna herbergi með öllurn
nútíma þægindum, m.a. parketi
og gervihnattasjónvarpi.
Það er Jónas A. Jónsson, lög-
fræðingur, ásamt Inga Gunnari
Jóhannssyni, tónlistarmanni frá
Reykjavík, sem standa að fyrir-
hugaðri hótelbygginu.
í samtali við blaðið sagði
Jónas að gerðar hefðu verið hag-
kvæmniathuganir sem sýna að
slíkur rekstur ætti fyllilega að
geta staðið undir sér. Þessar
athuganir hafa ekki gert ráð fyrir
framkvæmdum á borð við álver
þannig að slíkar framkvæmdir
myndu þá vera einhverskonar
bónus fyrir reksturinn.
Þeir félagar munu ekki reka
hótelið sjálfir, en fara væntan-
lega í samstarf við rekstraraðila.
Ekki er ljóst í dag hverjir þeir
verða, en unnið er í því máli.
Tilboð frá u * ■
Kindabjágu
Létt rcykt sparnadarskinka
Bayoneskinka