Austurland


Austurland - 12.11.1998, Side 5

Austurland - 12.11.1998, Side 5
FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1998 5 Már Lárusson Kveðja að austan Eftir eldgosið í Heimaey árið 1973 fluttu nokkrar fjölskyldur frá Vestmannaeyjum hingað austur til Neskaupstaðar. í þeirra hópi voru Guðlaug Pálsdóttir og Már Lárusson ásamt fjórum ungum dætrum sínum. Már hafði stund- að sjómennsku í rúman áratug í Vestmannaeyjum, en var kom- inn í land og orðinn verkstjóri í frystihúsinu Eyjabergi og var nú ráðinn sem yfirverkstjóri í frysti- húsi Sfldarvinnslunnar hf. Sjávarútvegsbyggðir eins og Vestmannaeyjar og Neskaup- staður eiga margt sameiginlegt og fjölskyldan aðlagaðist fljótt umhverfinu og þau Guðlaug og Már - eða Lulla og Malli - eins og þau voru ævinlega kölluð eignuðust fjölda vina og kunn- ingja. Það var mikið um að vera í fiskvinnslunni á þessum árum því eftir að síldin hvarf af Islandsmiðum 1968 var lögð síaukin áhersla á bolfiskvinnslu, bæði frystingu og söltun. Undir stjóm Malla störfuðu því oft á annað hundrað manns og við það bættist samskiptin við mikinn fjölda trillukarla, en á þessum ár- um var mikil smábátaútgerð frá Neskaupstað og flestir lögðu þeir upp hjá Síldarvinnslunni. Það var því oft unninn langur vinnu- dagur og þá mætti maður Malla oft með vindilinn í munninum og tóbaksdósina í hendinni. Hann naut þess nefnilega að vinna undir álagi, en varla er vafi á því, að það hefur komið niður á heilsu hans síðar. Malli hafði mikinn metnað, bæði fyrir sjálf- an sig og Sfldarvinnsluna og þegar frystihúsamenn víðs vegar að af landinu hittust á fundum hjá SH lét hann að sér kveða og var ófeiminn við að láta skoðanir sínar í ljós á kjamyrtri íslensku. Hann hefur líka orðið mönnum eftirminnilegur því alveg fram á þetta ár hafa gamlir starfsfélagar hans víðs vegar að af landinu spurt um hann og rifjað upp skemmtileg atvik bæði á og utan funda. En þrátt fyrir að oft væri Slöngur - Barkar - Tengi Söluaðilar á Austurlandi: Bílar og vélar, Vopnafirði Síldarvinnslan, Neskaupstað Björn og Kristján, Reyðarfirði Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga LANDVÉLAR HF Smiðjuvegi 66 - Kópavogi - 8 557 6600 mikið að gera tók Malli virkan þátt í félagslífi, var nt.a. virkur félagi í Rotary-klúbbi bæjarins og formaður hans um skeið. Hann var mjög ákveðinn sósíalisti og félagi í Alþýðubandalaginu alla tíð og formaður þess hér í bæ í ein tvö ár. Honum þótti flokkur- inn færast ískyggilega til hægri, en það líkaði honum illa og var óspar á að láta forystuna heyra þessar skoðanir og vitnaðir þá stundum í Marx gamla máli sínu til stuðnings, því hann hafði les- ið fræðin. Malli var nefnilega bókamaður, las mikið og hafði yndi af svonefndum fagurbók- menntum, ekki síður en ævisög- um og ferðasögum. Eftir 16 ára starf sem yfir- verkstjóri hjá Síldarvinnslunni hf. taldi Malli kominn tími á að fara að hægja aðeins á sér. Við tók starf í verslun SÚN, sem bæði var veiðarfæra- og útivistar- verslun. Eg held að hann hafi aldrei alveg verið sáttur við það starf. Að vísu hélt hann tengsl- unum við sjómenn og fisk- vinnsiufólk, en hann saknaði alltaf hamagangsins og látanna úr fiskvinnslunni og þegar hann fékk tímabundið frí frá störfum haustið 1990 til að fara að stjóma sfldarverkun á Eskifirði fannst mér hann yngjast um fleiri ár. En árið eftir, einmitt rétt eftir að þau hjónin höfðu tekið á- kvörðun um að flytjast suður til Reykjavíkur fékk Malli heila- blóðfall og þó hann kæmist til talsverðrar heilsu varð hann aldrei samur maður og gat ekki stundað vinnu. Hann kom all oft hingað austur næstu árin eftir að þau Lulla fluttu suður og þá var hann öllum stundum niðri við höfn og í fiskvinnslustöðvunum að heilsa upp á fólk. Rætur hans voru í sjávarútvegnum og þar naut hann sín best. Nú þegar Malli er látinn eru honum sendar kveðjur og þakkir frá Síldarvinnslunni og sam- starfsfólkinu þar og frá öllum sem unnu með honum í verslun SÚN. Við sendum þér, elsku Lulla, dætrum þínum, tengdasonum og barnabarnabörnum, sem voru afa sínum svo óendanlega mikils virði, okkar dýpstu samúðar- kveðjur og biðjum þess að góðar minningar megi verða ykkur huggun harmi gegn. Kristinn V. Jóhannsson Snæfellsblað Glettings Snæfellsblað Glettings er komið út. Þetta sérblað af tímaritinu Glettingi er tileinkað fyrirhug- uðum virkjunarsvæðum norð- austan Vatnajökuls. Fjallað er um náttúru þess í máli og mynd- um, sérstaklega um fjalladrottn- i n g u n a Snæfell og öræfin kringum það, Eyja- bakka og Vesturör- æfi, um landslag, jarðsögu, gróður og dýralíf. Einnig er fjallað um á- ætlaðar virkj- anir og áhrif þeirra á nátt- úrufar og land- nýtingu, um skipulag á há- lendinu og að- gerðir til vernd- unar. Nokkur félög og stofn- anir kynna sjón- armið sín, þar á meðal lands- virkjun og tals- menn álvers við Reyðarfjörð. Auk þess er ýmislegt blandað efni í blaðinu. Markmið blaðs- ins er að upplýsa lesendur um þau náttúruverð- mæti sem þarna eru í húfi og framkvæmdir sem þar eru fyrir- hugaðar, svo hver og einn geti gert upp hug sinn og tekið af- stöðu á eigin spýtur. Meðal höfunda eru náttúr- fræðingarnir Hjörleifur Gutt- ormsson, Armann Höskuldsson, Páll Imsland, Kristinn Haukur Skarphéðinsson, Oddur Sigurðs- son, Skarphéðinn G. Þórisson og Helgi Hallgrímsson; Anna Dóra Sæþórsdóttir, landfræðingur, Ragnheiður Ólafsdóttir, um- hverfisfræðingur, Helgi Bjarna- son, verkfræðingur, Magnús Ásgeirsson, stjórnmálafræðing- ur, Rannveig Árnadóttir, fulltrúi og Pétur Gunnarsson, rithöfundur. I grein Ármanns og Páls: „Snæfell - eldljall á gosbelti fram- tíðar“, er í fyrsta sinn reynt að gefa yfirlit um bergfræði og mynd- unarsögu Snæfells, sem lengi hef- ur verið talið útkulnað eldfjall. Niðurstaða þeirra er sú, að fjall- ið sé ennþá virkt, og hafi síðast gosið fyrir um það bil 10 þúsund árum og jafnvel síðar. Gos í fjallinu gæti orsakað jökul- og aurhlaup, auk hraunrennslis og gjósku. Merkust er þó sú tilgáta þeirra, að Snæfell muni færast yfir „möttulstrókinn" og verða á landreks-gosbelti framtíðar. Ritstjóri blaðsins er Steinunn Ásmundsdóttir skáld. Blaðið er 92 bls. og allt litprentað. Þar er að finna mikið úrval af góðum myndum, en alls eru um 65 litmyndir í blaðinu, og um 20 litprentuð kort og skýringar- myndir. Umbrot annaðist Skarphéð- inn Þórisson en Ásprent-PBO á Akureyri prent- aði. „Glettingur tímarit um aust- firsk málefni" hefur verið gefið út á Egilsstöðum síðan 1991, og er nú á 8. ár- gangi. Að jafn- aði koma út þrjú hefti á ári, en að þessu sinni er tveim- ur heftum slegið saman. Útgefandi er Útgáfufélag Glettings. Áskriftar- verð (ár- gjald) er kr. ritstjórnarvinna er án endurgjalds og ekki greidd. Nýir geta snúið sér til 1950. Oll lögð fram ritlaun eru áskrifendur gjaldkera félagsins, Sigurjóns Bjarnasonar, Selási 9, Egilsstöð- um. Snæfellsblaðið verður til sölu í helstu bókabúðum landsins og kostarkr. 1000.- (fréttatilkynning)

x

Austurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.