Tíðindi um bankamálið - 01.01.1899, Qupperneq 1

Tíðindi um bankamálið - 01.01.1899, Qupperneq 1
ýb> 332. Bji T í Ð I N D I UM BANKAMÁLIÐ. Til almennings. Oss hefur dottið í nug nokkr- um mönnum hjer í Reykjavík að gefa. út skýringar og skýrsl- ur um bankamálið fyrst um sinn meðan þing stendur yfir, og höfum vjer álitið að etigin van- þ'órý væri á því að eitthvert frjálst, óháð og einart málgagn segði afdráttarlausan sannleikann um ýms atriði er lúta að þessu máli einmitt nú þegar svo fjölda margir eru farnir að finna til þess hve óþolandi peningaástand landsins er orðið og þegar und- ir urnræðu eru, bæði innan alþing- is og utan þess, tillögur um það á hvern hátt verði bætt úr þessu ástandi. Reynslan hefur sýnt það fram á þennan dag að flestir þeir sem á einh' ern hátt þurfa að leita til bankans, kinoka sjer við að láta uppi opinberlega alit sitt um þá stofnun og stjórn hen- hennar, enda þótt vænta mætti þess samkvæmt stöðu þeirra, því það er víst og ómótmælanlegt að óánœgjan er sterk og almenn bæði út af fyrirkomulagi bankar.s í sjálfu sjer og út af því hvernig honum er stýrt að ýmsu leyti. Og aptur er það eins vist að þagað hefur verið, því sem næst algerlega, um þessa óánægju í opinberum ræðum og ritum. því. hver er það sem elcki hefur vilj- aðkomasjervel við þá stjórn hinn- ar einustu peningastofnunar lands- ins — sem bæði getur umbunað og vítt fyrir hvert orð sem um hana heyrist — eptir því hvort henni líkar betur eða miður? — En það er hneyksli næst hve múl- bundin hefur verið hin rjettláta, sívaxandi óánægja landsmanna, yfir þesuum svokallaða banka og svökölluðu bankastjórn. Að und- anteknum „Þjóðólfi" einum hefur naumlega verið andað á móti friðhelgi þessarar einkennilegu stofnunar. Grafarþögnin kring- um reglu og framkvæmdir lands- bankans hefur naumast verið rof- in af nokkrum manni — og því mun nú vera komið sem kornið er. En nú ætlum vjer að rjúfa þessa grafarþögn, og segja það um bankamalið sem þykir þurfa hvernig sem þeirn kann að líka er vanist hafa við að álíta bank- ann og bankans málefni friðhelg fyrir öllu opinberu umtali. Reykjavtk ýágústmán 1899. Utgefendur. Seðlaaukningin ekki rædd enn í þinginu, og má nú vera að öðruvísi fari um hana en uppástungumenn hafa til ætlast, þvt nú eru þeir hr. hæstarjettarmálafl.m. A.rntzen og stórkaupm. Warburg frá K.m.höfn komnirtil viðtals við þingið. Er rjett að þegja?* Fleiri en ein orsök getur verið til þess, að góðir menn, sem hollir vilja vera islenzku þjóð- :f: Vegna þess, að oflttið upplag var í fyrstu prentað af þessari ritgerð sem prentuð var hér ( baenum 1. þ. m. er hún endurprentuð hjer. — Auk þessa þykir einnig ástæða til þess að taka fram, vegna athugasemdar nokkurrar í síðasta „Fjallkonu"tölubl. um útgáfu ritgerðarinnar, að prentsiniðjan hefur í vörslum stnum eiginhandarbréfritstj. hins nefnda blaðs, þar sem sjest að titillinn: Fylgirit með „Fjallkonunni" stóð með fullkominm heimild á nokkr- urn hluta upplagsins, en um Rvk. vildi ritstjórinn ekki láta bera ritið með þeim titli, — enda hefur ekkert ein- tak verið þannig borið út hér í bæn- um eins og kunnugt er ritstjóra Fjk., cr ljet sjálfur bera ritið hjer út. inni, skoði huga sinn vandlega áður en þeir láta í ljósi opinber- lega álit sitt um hið sanna ástand bankans og landsjóðs, eins og það er nú einmitt á þessum tíma. Það er kunnugra en frá þurfi að segja, að oft getur verið afar- hættulegt, hvort heldur er fyrir menn eða stofnanir, sem reka at- vinnu og hafa mikið fé í veltu, að láta uþþi hið sanna ástand sitt, eins og það er á einhverjum sérstökum tíma vegna einhverra sérstakra atvika. — Þetta kemur af því að álit annara á fjárhag og ástandi slíkra manna eða stofnana er oft að mikluleyti grundvöllur undir atvinnu þeirra, veitir þeim einatt afl þeirra liluta, senr gjöra skal — afl, sem þeir mega ekki missa. Þetta afl er almennt nefnt lánstr au st og þetta traust má hvorki bank- inn né landsjóður missa eins og nú stendur. — Þess vegna er eðlilegt, að liver góður íslendingur kinoki sér nú við, að segja beint út, hvert álit hann hefir á fjárhag þessara tveggja stofnana. Eu á hinn bóginn geta atvik og kringumstæður knúð menn til þess að tala, ef þögnin stofnar þjóð og landi í enn þá meiri hættu heldur en opinská, hrein- skilin orð um ástandið, eins og það er, geta gjört. Framhald ncðst á bls. 6.

x

Tíðindi um bankamálið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíðindi um bankamálið
https://timarit.is/publication/835

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.