Eining - 10.01.1944, Page 1

Eining - 10.01.1944, Page 1
EINING Templarasveit! Vertu trú, vertu sterk, vertu trygg viö þín heit! Berðu œgishjálm prúð yfir aðkast og níð, afli kœrleikans knúð alla komandi tíð! Og þú hlýtur, þú hlýtur að sigra um síð! Guðm. Guðmundsson. 2. árgangur. Reykjavík, 10. janúar 1944. 1. blað. OÐTEMPLARAEEGLA A ISLANDI 60 A STOFMU® 10. JAMÍIAR 1884 A Hún hefur staðizt prófið. Hún hefur hlotið sinn sigursveig. Iienni hefur farnast líkt og öllum miklum spá• mönnum og siðabótamönnum. Hlut- skipti þeirra hefur orðið hlutskipti hennar. Hún hefur hlotið sömu með- ferð, sömu viðurkenningu, sömu and- stöðu, söm u hollustu, bœði hatur og elsku, of- sóknir og aðdáun. Hún hefur staðizt prófið — 60 ára próf hér á landi — hlotið aðals- merki og verðugan sig- ursveig. Hún fœddist í ónáð heimsdrottnanna, sem jafnan láta sér lynda að hagnast á eymd og ókjörum annarra manna. Hún ávann sér með tíð og tím a álit jafnvel forustumanna þjóðanna. Hún var tortryggð, rœgð og fyrir- litin, en bugaði alla þá andstöðu með þrautseigju og góðverkum. Sérgóðir sœllífismenn hafa verið andstœðingar hennar. Aumir og að- þrengdir hafa litið hana vonaraugum. Hún hefur beygt sig niður að hinum lítilmótlegustu, en þorað einnig að standa frammi fyrir löggefandi sam- kundum og drottnurum og átelja þá fyrir léttúð þeirra, mannúðarleysi og glœpsamleg viðskipti og verzlun með þá vöru, sem mestri bölvun hefur stráð á veg breyskra manna. Hún hefur í öllu svar- ið sig í œtt hinna miklu siðabótamanna og spá- manna. Hún hefur ráð- izt á verstu meinin, rétt hinum aumustu hjálpar- hönd, slegið varnarmúr um óspillta œsku, unnið gegn sorglegasta bölinu, keppt að hœsta markinu — brœðralagi allra manna, og sýnt í verki dœmafáa bjartsýni og fórnfýsi, helgað sér glœsilega hugsjón og spáð hinni björtustu framtíð. Hún hefur staðizt prófið. Hún á enn grimma andstœðinga, enn er hún rœgð og illa umtöluð, en hún hefur unnið hylli fjölda manna og er elskuðaf þeim, sem gerzt hafa lœrisveinar hennar. Hún hefur sagt greinilega til œttar sinnar og uppruna.

x

Eining

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.