Eining - 10.01.1944, Side 2

Eining - 10.01.1944, Side 2
2 E I N I N G Kristinn Stefánsson, stórtemplar: Athafnalíf og hagur Reglunnar Kristinn Stefánsson, kand. theol. I. Góðtemplarareglan á Islandi er 60 ára. Að baki er merkileg saga um sigra og einnig um ósigra, viðbui’ðarík saga, er sýnir mikið og fói’nfúst starf í þágu göfugs málefnis, saga um þrotlausa og markvissa baráttu að ákveðnu marki. Sú saga er skráð í stórum dráttum á öðrum stað í þessu blaði. Hér verður gerð tilraun til að lýsa því að nokkru, hvernig hag Reglunnar er nú farið, hvaða áhrif og þýðingu starfsemi Regl- unnar hefir fyrir þjóðfélagið og loks bent á nokkur verkefni, sem Reglunnar bíða í náinni framtíð. sem jafnvel geta komið niður á afkom- endunum í 3. og 4. lið. I þessu er meginstarf Reglunnar fólgið, — að þurrka landið. En Reglan hefur einnig snúizt að ýmsum öðrum menningar- og mannúðarmálum, eins og alkunnugt er, og mun svo einnig verða í framtíðinni. Engin slík mál eru Reglunni óviðkomandi. — Reglan vill styðja eftir getu, hvert það mál, sem miðar að því að auka hamingju og hreysti landsins barna og stuðlar að því að bæta mennina og gera þá að nýtari þjóðfélagsþegnum. Leiðir þetta af sjálfu sér, þar sem háleitasta hug- sjón Reglunnar er bræðralag allra manna. I fullu samræmi við það, sem nú hefir verið sagt, hefir starf Reglunnar verið og er enn, enda mun það mál þeirra, er til þekkja og skyn bera á þessa hluti, að Reglan hafi verið þjóðleg í bezta skilningi og unnið mikið mennigarstarf í þjóðfélaginu. II. Hvernig er þá hag Reglunnar komið nú? Starf Reglunnar er mjög margþætt og geysimikið, þótt unnið sé nær ein- göngu í tómstundum, endurgjaldslaust, en af áhuga fyrir málefninu. Hinn 1. febr. 1943 voru starfandi í landinu 53 stúkur fullorðinna og 53 barnastúkur eða samtals 106 stúkur. Á árinu hafa verið stofnaðar 5 barnastúk- ur. Félagar í þessum 106 stúkum voru samtals 9412 og er það litlu fleira en árið áður. Þrátt fyrir það, þótt undanfarandi stríðsár hafi reynzt örðug öllu félags- lífi í þessu landi og mörg félög hafi beðið mikið afhroð, má kalla að Reglan hafi nokkurn veginn haldið sínu. Á sumum stöðum er nú í vetur t. d. gróska í starfinu og fjöldi nýliða bætist í fylk- ingarnar. Templarar sýna nú ótrúlega mikinn félagsþrótt. Ekkert nema sleitulaust starf þúsund templara hefði megnað að halda svo í horfinu, sem raun ber vitni um, á þessum félagslega erfiðu tímum. Baráttan í áfengismálunum er að vísu örðug og ástandið alvarlegt. Þó fæst þar litlu um þokað. Ríkið sjálft heldur verndarhendi sinni yfir áfengis- verzluninni. Miljónirnar streyma í rík- iskassann. Þjóðin drekkur. Hún sóar í áfengi, ekki aðeins geysilegu fé, heldur nokkru af viti sínu, hreysti, hamingju og fegurð. En hér vinnst lítið á í bili, þótt ekkert lát sé á sókn. Reglan hefur hinsvegar sótt á á öðr- um sviðum. Starf hennar er fjölþætt og skapandi, eins og nú skulu sýnd nokkur dæmi um. Stúkan Framsókn á Siglufirði stofn- aði fyrir nokkrum árum Sjómanna- og gestaheimili á Siglufirði. Heimili þetta hefur eflzt með hverju ári og nýtur nú Góðtemplarareglan er alþjóðleg í eðli sínu og nýtur sameiginlegrar yfirstjórn- ar um heim allan, þar sem hún starfar. Grundvallarlög, siðastarf og venjur eru sameiginleg eign allra góðtemplara- stúkna, hvar sem þær eru á hnettinum. Þetta tengir hinar smæstu deildir Regl- unnar saman, þannig að úr skapast ein heild, föst í sniðum, markviss, líkleg til langlífis og afreka. En þó að Reglan sé alþjóðleg, er hún jafnframt þjóðleg. Hún er að því leyti skyld kristinni kirkju. Háleitum hug- sjónum verður ekki skorinn þröngur stakkur. Þær eru hvorki háðar tíma né rúrni, og þessvegna hvorttveggja í senn þjóðlegar og alþjóðlegar. Baráttan við áfengið, áfengisauðmagnið og drykkju- siðina, er alls staðar sama eðlis. Sú barátta hefir verið háð hér á landi af góðtemplurum í 60 ár. Hún er háð til að bægja böli frá dyrum náungans, forða þjóðinni frá hervirkjum áfengis- ins og hinum ógurlegu afleiðingum þess, Félagafjöldi Reglunnar á árunum 1886—1941.

x

Eining

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.