Eining - 10.01.1944, Qupperneq 3
E I N I N G
viðurkenningar ríkis og bæjar, stofnana
og einstaklinga, og það að verðleikum.
Heimilið er starfrækt sumarmánuðina,
og eiga þar sjómenn, sem fjarri eru
heimilum sínum, öruggan griðastað,
þegar landlegudagar eru á Siglufirði.
Á lesstofu liggja frammi flest íslenzk
blöð og tímarit. Pappír og ritföng til
bréfaskrifta fá sjómennirnir eftir
þörfum. Bækur eru þeim lánaðar úr
bókasafni heimilisins. Veitingar eru
seldar miklu lægra verði en á veitinga-
búsum. Ennfremur aðstoðar heimilið
sjómennina á ýmsan hátt, sem hér yrði
°f langt mál upp að telja.
Það mun mála sannast, að þjóðin
stendur í þakklætisskuld við templara
fyrir stofnun og rekstur þessarar menn-
ingar- og mannúðarstofnunar.
Jaðar, landnám templara í Reykjavík,
niun í framtíðinni verða eftirsóttur
skemmti- og dvalarstaður fyrir templ-
nra. Landnám þetta er í útjaðri Heið-
nierkur á undurfögrum stað skammt frá
Elliðavatni. Þar er mikið unnið árlega
°g mest í þegnskylduvinnu. Svæðið er
allstórt, ca. 10 ha., afgirt fjárheldri
girðingu. Þúsundir plantna hafa verið
gróðursettar og dafna þær vel. S. 1.
sumar var þar brotið allmikið land og
sáð í það. Verður þar íþróttavöllur. Nú
or að því unnið að reisa að Jaðri mikla
byggingu, er verði til afnota fyrir
templara í Reykjavík. Borgarstjóra
Reykjavíkur og bæjarstjórn var í sum-
ni’ boðið að Jaðri. Létu þeir hið bezta
yfir þeim framkvæmdum, sem þar
höfðu verið unnar.
Hressingarheimilið í Kumbaravogi
stofnaði Stórstúka íslands á s. 1. ári og
hefur rekið það síðan, unz ríkið tekur
nú við því samkvæmt lögum, er sam-
Þykkt hafa verið á Alþingi. Stofnun
bessi er þjóðarnauðsyn og hefir, að
hómi kunnugra, farið myndarlega af
stað.
Umdæmisstúkan nr. 1 vinnur nú ötul-
lega að stofnun barnaheimilis. Keypti
Umdæmisstúkan jörðina Kumbaravog
í þeim tilgangi og hefur lagt þar í
^nikinn kostnað, fullgert byggingar, er
bar voru og reist viðbyggingu. Mun þar
strax verða komið á fót barnaheimili,
begar Hressingarheimilið getur flutt
baðan. Templarar norðanlands hafa
einnig í undirbúningi stofnun barna-
heimilis fyrir norðlenzk börn.
Þingstúka Reykjavíkur opnaði í haust
uPplýsingastöð um bindindismál og
hefur hún síðan verið opin tvær klukku-
stundir í viku. Margir, sem sárt eru
ieiknir af völdum áfengisins, hafa leitað
&ðstoðar og ráða hjá upplýsingastöðinni
°g þykir hún vinna hið mesta þjóð-
Pytjastarf.
Um húsbyggingar á vegum Reglunn-
ar er að sjálfsögðu ekki að ræða á þess-
Uln tímum. Þó eru stúkurnar í Reykja-
vík nú að láta gera vistlegan og vandað-
au fundarsal í Templarahöllinni, Frí-
bú’kjuvegi 11, er þær keyptu fyrir
tveim árum. Tekur salur þessi um 100
P^anns í sæti og er eingöngu ætlaður
fyrir starfsemi Reglunnar í höfuðborg-
inni.
Þá hafa templarar á Akureyri nýlega
lokið gagngerðri viðgerð og miklum
breytingum á Templarahúsinu Skjald-
borg.á Akureyri, þannig að það er nú
sem nýtt hús og hið vandaðasta.
III.
Þá vil eg nefna þann mikla þátt, sem
templarar í Reykjavík, og nú einnig á
Akureyri, hafa átt í því að bæta
skemmtanalífið í þessum bæjum. Unga
fólkið vill dansa. Öll samkomuhús borg-
arinnar eru þéttskipuð um helgar af
dansandi fólki. Ábyrgum og hugsandi
mönnum er hinsvegar ekki sama við
hvaða skilyrði æskan skemmtir sér. —
Templarar í Reykjavík hafa undanfar-
in ár haft dansleiki í húsi sínu, þar
sem menn hafa getað notið skemmtunar
án ónæðis drukkinna manna. Hefur þar
jafnan verið gætt fyllstu regiu og ölvuð-
um mönnum vísað á dyr, hafi þeir kom-
izt inn. Nú hefur skemmtifélag Góð-
templara (S. G. T.) leigt stærsta sam-
komusal borgarinnar, Sýningarskálann,
og haft þar dansleiki nokkrum sinnum
í viku. Er þar sami myndarbragurinn
á öllum samkomum. Þar fá ölvaðir menn
ekki aðgang og því síður griðastað. Þá
hafa templarar á Akureyri hafið sams-
konar starfsemi í hinu nýviðgerða húsi
sínu og hlotið lof fyrir í norðlenzkum
blöðum.
Þessi viðleytni templara að bæta
skemmtanalífið, hefir borið góðan ár-
angur, og Reglan hefur verið hvött til
að halda þessari starfsemi áfram og
auka hana, ef unnt væri. —
IV.
Einn merkasti atburður í sögu bind-
indismálsins á síðari árum tel ég vera
samvinnu þá, sem hafin er um bind-
indismál milli Stórstúku íslands, I.
S. I., U. M. F. í. og Bindindisfélaga í
skólum. Nefnd, kosin af þessum aðilum,
hefur nú starfað í nær tvö ár. Hóf hún
útgáfu blaðs þessa, er hvarvetna hefur
verið vel tekið og á væntanlega fyrir
sér mikla útbreiðslu og sigurför um
landið. Auk þess hefur nefndin ýmsar
ráðagerðir á prjónunum, er miða að
því að efla bindindi með þjóðinni. Ein
sú merkasta er að koma, þegar fært
þykir, á fót sýningu í Reykjavík fyrir
skóla og almennig. Sýnt yrði með mynd-
um og línuritum áhrif áfengisnotkunar
í þjóðfélaginu, t. d. heilsuspjöll af völd-
um áfengisneyzlu, lögbrot o. s. frv. —
Að þessu máli er nú unnið og er þess
að vænta, að takast megi, áður langir
tímar líða, að opna slíka sýningu. Þar
yrðu það fyrst og fremst tölurnar, sem
töluðu, en þegar um áfengismál er að
ræða, verða menn helzt að geta þreifað
á, til þess að trúa.
Enn má benda á margt, sem Reglan
hefur nú með höndum og vert er frá-
sagnar. Eg bendi að lokum á bókaút-
gáfu Stórstúkunnar. Reglan á og gefur
út elzta, stærsta og útbreiddasta barna-
blað landsins, Æskuna. Til blaðs þessa
er vandað eftir föngum og mun það
standast samjöfnuð við beztu erlend
barnablöð. Þá gefur Stórstúkan árlega
út nokkrar barna- og unglingabækur
eftir þekkta höfunda. Bækur Æskunnar
þykja vandaðar, bæði að efni og frá-
gangi og útgefandanum til sóma.
Þá hafa og reglufélagar og stúkur
víðsvegar um land beitt sér fyrir ýms-
um menningarmálum og þarfafyrir-
tækjum, hlúð að bókasöfnum, lestrar-
félögum, ræktunarstarfi og uppeldis-
málum allverulega, þar sem um ung-
linga- og barnastúkustarfið er að ræða,
sem áreiðanlega hefur unnið þjóðinni
meira gagn, en menn almennt gera sér
ljóst.
V.
Eg hefi hér að framan nefnt nokkur
fyrirtæki, sem rekin eru á vegum Góð-
templarareglunnar, til þess að sýna, að