Eining - 10.01.1944, Page 5
E I N I N G
5
Siyfús Sigurhjartarson, alþm.:
Sigfús Sigurhjartarson,
alþm., fyrv. stórteniplar.
Regla Góðtemplara hefur starfað í
sextíu ár á Islandi. Gamall félagsskap-
stirnaður í formum og úreltum
starfsháttum, munu margir segja, og
það sem merkilegra er, margir munu
óska að svo sé. Fljótt á litið kann þetta
að virðast fáránleg staðhæfing, en gæt-
betur að. Það er staðreynd, að þeim
sannleikanum verður hver sárreiðastur,
sem hann annaðhvort vill ekki eða getur
ekki lotið, en þekkir hann þó, veit að
hann heitir og er sannleikur. Hinn mikli
°S eilífi sannleikur um „bræðralag allra
^fanna", sem Reglunni ber að boða,
hefur af þessum sökum eignazt marga
óvildarmenn, og þá ekki síður sá sann-
ieikur, að bindindi er hverjum bezt.
k’egar af þessum sökum hugsa ýmsir
kaldlega til Reglu vorrar, en við þetta
bætist, að þusundir voldugra manna
eiga fjáraflavonir sínar undir því, að
bræður berjist og áfengi fljóti. Ægivald
sínum gegn þeim bölvaldi, sem „stelur
^eði guma“.
Margir af nýtustu sonum þjóðarinn-
ar, fyrr 0g síðar, hafa skipað sér undir
lána Reglunnar. Þeir hafa séð hið mikla
höl, er áfengið olli og lagt fram krafta
s>na til að eyða því. Þetta starf heldur
áfram. Sá, sem vinnur að því að bæta
^ennina og fegra lífið, hefur helgað
sig þeirri þjónustu við lífið sjálft, sem
aidrei verður að fullu lokið. — Engan
skyldi því furða, þótt Reglan hafi starf-
að í heilan mannsaldur á Islandi og sé
einhver fyrstu landssamtök, er um get-
Ul' hér á landi. Félagsskapur, sem vinn-
Ur menningar- og mannúðarstörf af al-
huga og trúmennsku, verður langlífur
i iandinu.
kaldrifjaðra auðjöfra leggst gegn
hverjum þeim, sem berst gegn sundr-
ung og svalli, því að auður þeirra og
völd nærast á ófriði og áfengi. Af þess-
um sökum öllum er það, að þeir eru
ekki allfáir, sem munu óska þess, að
vor sextíu ára Regla sé frosin í göml-
um formum og að feigð sæki að henni.
En vér, sem höfum svarið fána Regl-
unnar hollustu, lítum öðruvísi á málið.
Vér óskum, að eins og bræðralagshug-
sjónin er eilíf, megi æska Reglunnar
verða eilíf, og vér strengjum þess heit,
að samhæfa starfsaðferðir Reglunnar
líðandi stund, að gera hana að virkum
og völdum þætti í framsókn þjóðarinn-
ar til betri tíma og fulkomnara lífs.
Áhorfandi spyr, hvað hafið þið gert í
þessu efni hér heima á íslandi, á síð-
ustu tímum? Spurningin er réttmæt, og
henni ber að svara. Vér höfum numið
land og ræktað skóga, þó lágvaxnir séu
enn. Vér höfum stofnað heimili til frí-
stundadvalar fyrir sjómenn og aðra,
sem fjarri eru heimilum sínum, á Siglu-
firði. Vér höfum reynt að halda uppi
heilbrigðu, áfengislausu skemmtanalífi
fyrir almennig í Reykjavík og víðar.
Vér höfum farið heim á heimili drykkju-
manna og reynt að vinna fyrir þá og
þeirra nánustu eftir beztu getu. Vér
höfum boðið þeim að leita til vor um
ráð og hjálp á vissum tímum. Vér höf-
um komið á fót hressingarheimili fyrir
drykkjumenn. Vér höfum gefið út bæk-
ur og blöð fyrir æsku þessa lands, og
eigum stærsta og elsta barnablað lands-
ins, Æskuna. Vér komum saman til
funda í viku hverri til að gefa hver
öðrum hvatning og þrótt til nýrra
starfa. Allt þetta höfum vér gert og
gerum, og ætlum að gera í enn stærri
stíl og með starfsaðferðum, sem hverj-
um tíma og tækifæri henta. Því Regla
vor er þjónn háleitra hugsjóna og henni
ber að ynna þjónsstarfið af hendi með
fullkominni trúmennsku, og henni ber
að reisa það á grundvelli raunhæfninn-
ar. Raunhæfur maðurveit.að öll siðabót,
allar framfarir, verða að byggjast á
jákvæðum áhuga, á áhuga fyrir því,
sem gott er, síður á fyrirlitningu og
fjandskap við það, sem illt er. Ef þú
villt hefja æskuna til þroska og frama,
sem sé meiri því, er ellin á bezt, þá
gefðu henni jákvæð hugðarefni. Sýndu
henni, að landið okkar bíður, heiðalönd
þess, hraun og svartir sandar, láttu
hana heyra, að það kallar, kallar á sér-
hvern son og sérhverja dóttur og biður
um skrúð skóganna. Sýndu henni að
maðurinn, sem ver ævi sinni ómenni-
lega, þráir að verða fyrirmyndarmaður,
kenndu henni að heyra, að hann kallar
á samhug og samstarf við að byggja upp
sitt eigið líf. Sýndu henni, að hver bær
við sjó og í sveit á að verða fagur og
hagkvæmur, á að vera gróðurreitur
fyrir fagurt og gott mannlíf.
Kenndu henni að heyra, hvernig léleg
húsakynni, ljótar götur, óþrifnaður og
vanræksla, hrópa á umbætur, hrópa á
f
•!•
r
X
Reglan 60
ára
Me'8 geislafald um glaftar brár,
af Gu8i send a8 þerra tár,
vor Regla kom eitt auSnuár,
á öldinni, sem lei8.
Þá var liún ung og œskurjó'S,
me'8 eld í sál og logheitt bló8,
og vakti hug hjá heilli þjó8;
en hennar margt þar bei8:
A8 deyfa þjáning drykkjumanns
og draga úr böli vina hans,
a8 annast hreinleik œskumanns,
og ey8a kvöl og ney8.
y
?
T
♦*♦
I
X
f
I
f
♦*♦
t
I
?
?
i
!
?
?
?
f
f
f
f
f
?
|
f
||
f
I
f
?
?
I
1
I
?
f
f
X
Hún kom a8 heyja heilagt strí8,*
a8 hefja sterkan, frjálsan lý8,
a8 búa öllum betri tí8,
og bœta sérhvern mann.
Me8 geislafald um gldSar brár,
af Gu8i send a8 þerra tár,
hún sat a8 völdum sextíu ár,
og sigra marga vann.
Og Reglan orkar enn í dag,
a8 efla sátt og brœ8ralag,
a8 blessa þjó8ar bú og hag,
og bo8a kœrleikann.
Þótt ví8a ríki ógnaröld,
me8 ölvun, strí8 og syndagjöld,
mun Reglan hljóta ví8tœk völd,
og vaxta mennt hjá þjó8,
I von og trú hún velur sér
þa8 verk setn Gu8i kœrast er,
og kœrleikseld í brjósti ber,
þar brennur heilög gló8,
a8 ylja þeim, sem eiga bágt,
og efla á jör8u fri8 og sátt.
í dag ber merki hennar hátt.
Og heitt er enn vort bló8.
Pétur Sigur8sson.
I
?
?
{■
I
1
?
X
?
1
I
■i
I
?
?
i-
?
?
1
X
?
f
f
?
:
góða menn til að vinna, vinna til að
gera heiminn betri.
Allt þetta veit vor aldna Regla, og á
þessum grundvelli vill hún starfa gegn
áfengisnautninni og fyrir bræðralagið.
Hversu vel henni tekst er undir oss
komið, sem höfum svarið henni trúnað-
areiða, og á sextugsafmæli hennar vilj-
um vér allir strengja þess heit að efla
hið jákvæða starf hennar, að leggja
meira á okkur en nokkru sinni fyrr
til að samræma starf hennar kröfum
nútímans og gera það að verulegum
þætti í menningar- og framfarabaráttu
þjóðarinnar.