Eining - 10.01.1944, Blaðsíða 13
Guðm. Guðmundsson, skáld,
fyrv. stórtemplar.
Sr. Sigtryggur Guðlaugsson,
Sigurður Jónsson, skólastjóri,
fyrv. stórtemplar.
Þorv. Þorvarðsson,
fyrv. stórtemplar.
Dr. Sig. Júl. Jóhannesson,
Árni Björnsson.
Guðmundur Magnússon,
skáld.
Sr. Haraldur Níelsson,
prófessor.
Einar Kvaran, rith.
fyrv. stórtemplar.
Sr. Friðrik Friðriksson
Templarahúsið í Reykjavík,
Myndir þessar eru teknar að mestu leyti
úr myndasafni Stórstúkunnar, en því miður
voru ekki við hendi myndir af ýmsum merk-
um templurum víðsvegar á landinu, og tími
ekki til að afla þeirra.
#
Attabreyting
Þegar hart er í ári og illa vorar, gæta
hienn oft til veðurs og þrá áttabreyt-
ingu. Undanfarin ár hefur verið alls-
konar ástandstíðarfar á landi hér. Hef-
ur slíku fylgt óáran í félagslífi manna,
siðum og aðgerðum á ýmsum sviðum.
Góðtemplarareglan hefur einnig orðið
vör við þessa félagslegu ótíð. En nú
iýtur út fyrir að ofurlítil áttabreyting
sé að verða. Reglan færist í aukana á
nÝ. Reykjavíkurstúkurnar fjölga nú fé-
lögum sínum. Þær stúkur, sem tekið
hafa inn á síðustu mánuðum nýja fé-
laga svo tugum skiptir, eru helst stúk-
urnar Freyja, Verðandi og Víkingur.
Þar af mun Freyja vera hæst og hefur
tekið inn um 60—70 nýja félagsmenn.
Einnig hafa stúkurnar fyrir norðan
verið að safna liði á ný, sérstaklega
stúkan Brynja á Akureyri. Sumaí’
Reykjavíkurstúkurnar hafa nú undan-
farið haldið upp á afmæli sín. Stúkan
Víkingur hafði prýðilegan afmælisfund
og samsæti í byrjun desember s. 1. og
tók þá inn 14 nýja félaga. Var það ágæt-
ur liðsauki. Nokkrar systur færðu þá
stúkunni að gjöf nýja hvíta dúka á borð-
in. Þá hélt stúkan Dröfn upp á afmæli
sitt fyrir skömmu. Færði þá Þorsteinn
Þorsteinsson, kaupmaður, stúkunni að
gjöf þúsund krónur. Oft er nú f jölmennt
á fundum og samkomum Reglunnar.
Það er sjáanleg breyting til batnaðar.
Veitir heldur ekki af að hefja nýja
sókn gegn þeim illa fjanda, sem enn
leikur þjóðina grátt, veldur slysum og
víða mikilli sorg og mæðu.
Fyrir skömmu gekkst þingstúka
Reykjvíkur fyrir almennri samkomu
til kynningar og eflingar bindindisstarf-
inu. Samkoman var í sýningarskála
listamanna og var afar fjölsótt. Hún
þótti gefast ágætlega, þótt influenzan
gerði okkur dálítil óþægindi, tók til
dæmis frá okkur suma beztu skemmti-
kraftana. Aðal ræðurnar fluttu þeir
Sigfús Sigurhjartarson, alþm. og Krist-
inn Stefánsson, stórtemplar, flutti ræðu
þá, sem Ólafur Björnsson, kaupmaður
á Akranesi, ætlaði að flytja, en gat ekki
sökum lasleika. Þingtemplar, Þorsteinn
J. Sigurðsson, setti samkomuna, Helgi
Helgason, verzlunarstj. stjórnaði fundi,
systurnar frú Þóra og Emelía Borg
skemmtu með upplestri og undirspili.
Var það ágæt skemmtun. Samkomunni
sleit svo formaður undirbúningsnefndar
— undirritaður. P. S.
Utanreglukaupendur blaðsins verða
að sýna því umburðarlyndi, þótt efni
þess sé nokkuð einhliða að þessu sinni.
Ástæðan er augljós.